Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 37

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 37
námskeiðinu. Var þar minnzt á ýmis atriði, sem þarf að hafa í huga í viðræðum við fólk, eink- um ef erfiðleikar eru á einhverju sviði. Nefna skal hér nokkur dæmi, sem allir geta notfært sér í daglegum samskiptum manna á meðal: Koma á réttum tíma, hafi samtal verið ákveðið fyrir- fram. Halda sig við efnið og taka ekki of mikið fyrir í einu. Reyna að fá það fram sem mestu máli skiptir. Bera spurningar fram á réttan hátt, svo að ekki sé hætta á misskilningi. Reyna að vekja áhuga viðmælanda á efninu, sé hann ekki fyrir hendi. Sýna stillingu og reiðast ekki, þó að viðmælandi missi stjórn á skapi sínu. Fara, áður en við- tali lýkur, yfir niðurstöður til að koma í veg fyrir hugsanleg- an misskilning. Yfir kaffibollunum þennan dag var mikið skrafað og þá einkum um það, hversu aðstaða trúnaðarmanna væri léleg, víð- ast hvar, þar sem þeir þurfa að hafa einhvern samastað, þar sem þeir geta haft upplýsingapésa sína og pappíra og rætt í ró og næði við þá félagsmenn, sem til þeirra leita. Einnig var rætt um, hvernig trúnaðarmenn stæðu gagnvai't vinnuveitanda, þar sem ætlazt er til, að þeir vinni störf sín í vinnutíma sínum við stofn- unina. En þetta á tíminn eftir að leiða í Ijós. Þó virðist sem for- ráðamenn stofnana sýni skiln- ing á þörfum trúnaðarmanna. Annan dag námskeiðsins ræddi Haraldur Steinþórsson um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Kjarasamningar eru líklega það mál, sem flestir fylgjast með, þegar það ber á góma, en einnig það flóknasta fyrir þann, sem lítið hefur sett sig inn í þau mál. Of langt mál væri að rekja kjarasamninga til hlítar. Til fróðleiks skal aðeins drepið á setningu launalaga á íslandi. Fyrstu launalögin voru sett 19l9.Varþá ákveðinn launastigi. Héldust þessi lög til ársins 1945, var þá bætt við launaflokkum, og giltu þau lög til 1955. Þá voru launalögin endurskoðuð og launaflokkum fjölgað í 14, og var 1. flokkur hæstur. Fyrstu kjarasamningar opin- berra starfsmanna voru gerðir 1962. Var þá launaflokkum fjölgað í 28 og stiganum snúið við, þannig að 1. flokkur varð lægstur. Margt hefur breytzt, síðan fyrst var samið um laun opin- berra starfsmanna. Síðustu samningar voru gerðir 1970, eins og allir vita. Ýmsar breytingar áttu sér þá stað, t. d. stytting vinnutíma í 40 stundir á viku,þó að lenging yrði á vinnutíma sumra starfshópa, ákveðinn kaffitími allra, stórhátíðakaup, eitt yfirvinnukaup, vaktaálag og afnám 12 daganna, sem margir eru óánægðir með. En þar sem samningarnir renna út í des. 1973, mætti fara að hugsa um nýjar kröfur til að fá það bezta út úr nýju samningunum. Þriðja daginn var rætt um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Um það efni fjall- aði Guðjón B. Baldvinsson. Þar kom fram, að hjá ríkinu geng- ur fastráðning sjálfkrafa, en hjá borginni þarf að sækja um fastráðningu, eftir að reynslu- tíminn er liðinn. Við fastráðn- ingu fær starfsmaður laun sín greidd fyrirfram. Skyldur starfsmanna eru þær sömu, hvort sem um er að ræða laus- eða fastráðningu. T. d. er upp- sagnarfrestur 3 mánuðir í báð- um tilvikum. Réttindin aukast aftur á móti. T. d. lengist veik- indafrí úr lV-> mánuði í 3 mán- uði á ári á fuííum launum. Veik- indafrí reiknast þannig, að mið- að er við 12 mánuði frá veik- indum, en ekki eftir almanaks- ári. Þegar sagt er upp starfi, fellur orlof ekki inn í, nema upp- sögn sé á orlofstímanum frá 1/6 —30/9. Vinna í orlofi er sama og helgidagavinna, ef vinnuveit- andi biður launþega að vinna. Orlof borgist ekki fyrr en í maí árið eftir. Ef veikindi verða eftir að or- lof launþega byrjar, frestast or- lofið, ef launþegi lætur straxvita og sendir læknisvottorð. Þetta á aðeins við um orlof, þ. e. sumar- frí, en ekki venjulega frídaga frá vinnu. Á árinu 1973 verða lág- marksorlofsdagar 24 á ári, þ. e. 2 dagar fyrir hvern unninn mán- uð, og þá verða einnig greiddar 5 þús. krónur hverjum starfs- manni í byrjun orlofs. Þar sem réttindi og skyldur eru yfirgripsmikið mál, læt ég þetta duga, en bendi þeim, sem vilja kynna sér þetta nánar, á að lesa „Lög og reglur, er varða ríkisstarf smenn". Farið var yfir lög Hjúkrun- arfélags Islands okkur til kynn- ingar, eru þau lög frá 15. okt. 1972. Þar eru m. a. þær breyt- ingar, að landinu verður skipt í 7 svæðisdeildir, og sendir síð- an hver deild fulltrúa á aðal- fund (fulltrúaþing) HFl. Með þessu svæðaskipulagi kemur það, að rétt til atkvæðagreiðslu á aðalfundi hafa: 1. Stjórn HFl. 2. Formenn (varaformenn) allra svæðis- og sérgreina- deilda innan HFl. 3. 1 fulltrúi fyrir hverja 50 fé- lagsmenn eða færri á hverju svæði, síðan 1 fulltrúi fyrir brot úr 5 tugum, kosnir sam- kvæmt 17. gr. 4. Trúnaðarráð 1 fulltrúi. 5. Ritstjóri Tímarits HFl. Ekki skal hér gerð nánari grein fyrir lögum félagsins, en hverjum félaga bent á að lesa þau. Að lokum vil ég þakka þeim, sem að námskeiðinu stóðu, fyrir fróðlegar og ánægjulegar stundir. TekiS saman af Elsu Tryggvadóttur. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.