Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 40

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 40
FRA STARFSEMI RAUÐA KROSS ÍSLANDS 1 4. tbl. Tímarits HFÍ 1972 er auglýst eftir deildarstj óra — hjúkrunarkonu eða -manni, helzt með sérmenntun í heilsu- vernd — til þess að byggja upp heilsuverndarframkvæmdir á vegum Rauða kross Islands, svo sem kennsluáætlanir í heilsu- vernd, heimahjúkrun og þjálfun sjálfboðins liðs til mannúðar- verkefna. Er ánægjulegt, að nú skuli ráðgert að endurvekja svipaða starfsemi og íslenzkar hjúkrun- arkonur höfðu á hendi áður fyrr, um lengri eða skemmri tíma hver, og þá virtist mikil þörf fyrir. Ekki er ætlunin að ræða störf Rauða krossins að öðru leyti en því, er tekur til starfsemi Kvennadeildar Reykjavíkur- deildarinnar. KvennadeilcL Reykjavíkur- deildar RauSa kross Islands var stofnuð í desember 1966, og var fyrsti formaður hennar Sigríð- ur Thoroddsen. Núverandi stjórn er þannig skipuð: Katrín Ólafsdóttir Hjaltested, formaður. Geirþrúður Hildur Bernhöft, varaformaður. Ingunn Gíslason, ritari. Sigríður Thoroddsen, gjaldkeri. Meðsibj órnendur: Guðrún Holt. Helga Einarsdóttir. Sigríður Helgadóttir. Varastjórn: Klara M. Stephensen. Sigurlín Gunnarsdóttir. Þórunn Benjamínsson. Hefur Kvennadeildin beitt sér fyrir eftirfarandi verkefnum: 1. Fjáröflun til kaupa á rúmum og dýnum til útlána fyrir sjúka og aldraða, er dvelja í heimahúsum. 2. Rekstri sölubúðar í Landa- kotsspítala. Leyfi hefur nú fengizt til rekstrar búðar í Landspítala, og mun sú starf- semi hefjast, þegar bygg- ingarframkvæmdum í and- dyri spítalans er lokið, en það verður sennilega snemma á þessu ári. 3. I Borgarspítala, Landakots- spítala og Landspítala hafa félagskonur annazt útlán á bókum til sj úklinga og starfs- liðs.bæðifrábókasöfnum spít- alanna og bókavögnum, sem farið er með í sjúkrastofur. Bókasafn Landakotsspítala var stofnað af Kvennadeild- inni (1. nóv. 1968), er lagði fram fé til kaupa á bókum til grundvallar safninu og hefur styrkt það síðan með fjár- framlögum. I Borgarspítala hafa félagskonur til skamms tíma aðstoðað við rekstur út- varps innan spítalans, klukkustund tvisvar vikulega. 4. Aðstoð við starfsemi, sem rekin er á vegum Félagsmála- stofnunar Reykjavíkurborgar fyrir aldraða. 5. I undirbúningi er sérstök heimsóknarþjónusta við aldr- aða sjúklinga og einstæðinga, og er gert ráð fyrir, að hún geti hafizt áður en langt um líður. Þær félagskonur Reykjavíkur- deildarinnar, sem leggja fram krafta sína á þeim verksviðum, er að ofan getur, nefnast sjúkra- vinir. Hefur í því sambandi ver- ið höfð hliðsjón af starfsemi svo- nefndra „Patientvenner“ á veg- um Rauða krossins á Norður- löndum. Félagskonur, er vilja gerast sjúkravinir, sækja stutt námskeið, þar sem haldnir eru fyrirlestrar um eftirtalin efni: Sögu og skipulag Rauða kross- ins, trygginga- og félagsmál, vel- ferðarmál aldraðra, félagsleg viðhorf til geðsjúkra, sjúklinga- bókasöfn og framkomu í starfi. Fyrirlestrar þessir hafa verið fluttir á 2—3 kvöldum. Þær fél- agskonur, sem sækja alla fyrir- lestrana, fá afhent skírteini og sérstakt sj úkravinamerki, seni borið er við störfin, auk leiðbein- ingabæklingsins „Sjúkravinir“. í bæklingnum stendur m. a.: „Sjúkravinur vinnur að líknar- og mannúðarstörfum fyrir Rauða krossinn á hlutlausan og óhlutdrægan hátt“. — „Sjúkra- vinur er bundinn þagnarheiti, bæði siðferðislega og lagalega“- — „Sjúkravinur tekur ekki á móti borgun. Sjúkravinur vinn- ur ekki á nokkurn hátt launað starf“. — „Sjúkravinur má ekki brjóta á neinn hátt reglur 34 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.