Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 26

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 26
Bnldur Johnsen. FYRIRB URÐARFÆDINGA R A ÍSLANDI SÍÐARIHLUTI Þetta er síðari liluti greinar dr. med. Baldurs Johnsen D.P.H., forstöðumanns heil- brigðiseftirlits ríkisins, fyrri hluta greinarinnar birtum við í U. tölubl. 1972. Orsiikir f,rrirlinri)iirfæi)in|iii. Það yfirlit, sem birt er á töflu I, um fyrirburðarfæðingar á Is- landi, er eins og áður segir tekið upp úr Heilbrigðisskýrslum og byggist fyrst og fremst á mati ljósmæðra, en einnig að nokkru á yfirmati fæðingarstofnana og héraðslækna eftir atvikum. En allt þetta er, eins og áður segir, háð mismunandi skráningar- reglum, sem þó má segja, að hafi færzt nokkuð í samræmis- horf með árunum og orðið strangari. Afleiðingin er hæg- fara hækkun og nokkuð jöfn, ef frá er dreginn toppurinn yfir allt landið árin 1951—60, sem stafar af ofsalegri fjölgun skráðra fyrirburða á því tíma- bili í Reykjavík, sem hægt er þó að sýna fram á, að eigi fær staðizt, miðað við almennt við- urkenndar skráningarreglur. Það má því segja, að tafla 1 gefi ekki miklar upplýsingar um orsakir fyrirburðarfæðinga. Þó held ég megi segja, að eftir að allir agnúar hafa verið skafnir af, verði hæg stígandi í fyrir- burðartíðninni og hærri tölur í borg heldur en í sveit, og er það síðast talda í góðu samræmi við það, sem annars staðar þekkist. Annars er talið, að benda megi á líklega frumorsök u. þ. b. helmings fyrirburðarfæðinga. Nörregárd (9) hefur fundið eftirfarandi orsakir til fyrir- burðarfæðinga í Kaupmanna- höfn 1948: 1. Sjúkdómar móður (60%). 2. Flutningur úr sveit í kaup- stað. 3. Fæðing utan hjónabands. 4. Vinna móður utan heimilis (sætisvinna). 5. Óheppilegt mataræði. 6. Reykingar. 7. Streita (stress). 8. Ofreynsla. 9. Lítið hjartarúmmál móður. Unnerus í Helsingfors ráð- leggur mæðrum með hjartarúm- tak minna en 320 ml miðað við 1 fermetra líkamsyfirborðs (ml /m-) að leggja niður vinnu utan heimilis um mestan hluta með- göngutímans (10). Þó virðist svo sem hin erfiðu og erilsömu störf sveitakonunnar, þar sem hún vinnur á heimili sínu, leiði ekki til fyrirburðarfæðinga. 1 rannsókn Allans Paavola reyndist tíðni fyrirburða í hópi óskilgetinna barna 10.4 af hundraði á móti 3.6 af hundr- aði í samanburðarhópnum (11). Reykingar eru taldar hafa mjög mikil áhrif á fyrirburðar- tíðni, einkum meðal fátækra fjölbyrja, sbr. eftirfarandi töflu úr tímaritinu Lancet (12). TAPLA 2. Fyrirburðarfæðúigar kvenna, sem reykja, og kvenna, sem reykja ekki Tíðni fyrirburða: Frum- Fjöl- Saman- Stétt I-II byrjur byrjur lagt Reykja ekki 6.0 2.5 4.0 Reykja 6.8 3.3 4.8 III Reykja ekki 4.3 2.9 3.5 Reykja 6.9 6.7 6.8 IV-V Reykja ekki 7.0 5.8 6.3 Reykja 18.9 10.3 12.6 llánarl■«>■■! fyrirburAa. 1 byrjun greinarinnar var þess getið, að í rannsókn, sem höfundur þessarar greinar gerði á dánarorsökum nýfæddra, hefði komið fram, að 71 af hund”aði hinna dánu var úr hópi fyrir- burða (3). Við heildarrannsókn á af- drifum nýfæddra barna á Fæð- ingardeild Landsspítalans kom í ljós, að perinatal mortality, þ. e. a. s. samanlagður fjöldi and- vanafæðinga fyrirburða og dá- inna lifandi fæddra barna inn- an 7 daga, var um 30 af hundr- aði eða 10 sinnum hærri en með- altal allra þyngdarflokka. Þess má geta, að þessi dánartala er heldur hærri á Fæðingardeild- inni en annars staðar vegna þess, að þangað eru send öll við- sjárverð tilfelli hvaðanæva af landinu. Af þessu má vera ljóst, að lífsmöguleikar fyrirburða eru mjög skertir og því mikils um vert að reyna að draga úr fyrir- burðarfæðingum með því með- 24 TÍMARIT HJÚKRUNARPÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.