Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 24

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 24
Þvagleiðari frá nýra (ureter) —» ^ ( Lífbein (symphysis) /1 hann að ganga með lífstíðar- legg, annaðhvort gegnum þvag- rás eða beint út á kvið ofan lífbeins. Við slíkar aðstæður er rétt að viðhafa reglubundnar blöðruskolanir með sýklaeyð- andi efnum. Nokkur orð um eftirmeðferð. Eftir aðgerð er hafður uppi þvagleggur vegna blæðinga, við transurethral aðgerð 1-2 daga, retropubiska 3-4 daga og trans- vesicala 1 viku, en alltaf þar til blæðing er hætt og/eða blöðru- veggur gróinn. Afar mikilvægt er að sjá til þess, að þvagleggur stíflist ekki af blóðstorku, og kostar oft mikla fyrirhöfn og natni. Verður og að gæta vel að hreinlæti við skolun. Skal byrja að hreyfa sjúklinginn eins fljótt og hægt er, hvað og reyndar er almenn regla. Complicationir aðrar en al- menns eðlis eru blæðingar við og eftir aðgerð, infectionir, blöðrufistill (þvagleki út á kvið, sem þó lokast alltaf fyrr eða síðar). Bólgur og ertingar frá þvagrás eru algengar og valda oft miklum óþægindum. Síðar koma stundum þrengingar (strictura) í þvagrás og blöðru- háls, sem þá þurfa útvíkkunar eða aðgerðar við. Einstöku sinn- um verður nýr vöxtur, svo að til aðgerðar komi. Prosluiilis. Bólgur í prostata eru allal- gengar frá tvítugsaldri og upp úr. Orsökin getur verið sýklar, en oftast óþekkt. Kirtilgangarn- ir stíflast gjarnan, og vessarnir safnast fyrir í kirtlinum og sæðisblöðrunum. Greinilegt er oft samband milli prostatit og rheumatiskra sjúkdóma. Kuldi og vosbúð hefur í mörgum til- fellum slæm áhrif á sjúkdóm- inn. Oftast þarf ekki annað en að setjast í kaldan bíl til þess að fá nýtt kast. Streita hefur einnig slæm áhrif. Einkenni eru sviði, verkur og útferð í þvagrás, verkur í nár- um, spjaldhrygg, við endaþarm, í eistum, innan læris, slappleiki, tíð þvaglát. Sjaldnast öll þessi óþægindi og oft ekki nema eitt þeirra. Flestir kvarta um kyn- ferðislegt getuleysi. Prostata er aum við þreifingu og stundum í köstum, spennt, stækkuð og helaum, en við krón- ískan prostatit ójöfn og smá- hnútótt með deigkenndumflekkj- um á milli. Sjúkdómurinn hefur króniska tilhneigingu og er þá oft hvimleiður. Þrenging getur með tímanum orðið í blöðrulrálsi og hefur þá svipaðar afleiðingar og hyperplasia. Meðferð er í köstum antibio- tica, hvíld, róandi lyf og hiti (setböð). Einnig virðist oft reynast vel butazolidin, indocid eða skyld lyf. Prostatanudd reynist oft vel við krónískan prostatit, en er stranglega bannað í köstum. Gildir það bann einnig um blöðruspeglun og notkun á öðr- um tækjum í þvagrás, þ. e. a. s. í köstum. Antibiotica hefur oft- ast lítil áhrif á króníska stigið. Hormónar gefast vel í sumum tilfellum. Við blöðruhálsþreng- ingu er gerð transurethral resec- tion. Skylt er að taka fram eftir- farandi: Þessir sjúklingar hafa oft mjög miklar kynferðislegar áhyggjur og vandamál. Flestir vitja læknis „opinberlega“ vegna augljósra óþæginda, en 22 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.