Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 41

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 41
Frá námskeiði sjúkravina að Hallveigarstöðum. sjúkrahúss. Þó að slíkt sé gert af góðum hug, eyðileggur það samvinnu Rauða krossins við sjúkrahúsin, gerir starfið erfið- ara fyrir aðra sj úkravini og get- ur kastað skugga á alla starf- semi sjúkravina". — „Starfandi sjúkravinur skuldbindur sig til að leggja fram a. m. k. 50 vinnu- tíma árlega“. Fimm námskeið hafa verið haldin til þessa, og hafa rúmlega 200 konur sótt þau, en þar af eru um 100 starfandi. Nú í lok febr- úar er áætlað að halda námskeið fyrir væntanlega sjúkravini. Hugmyndin um sjúkravini er upphaflega komin frá hinum bandarísku “Red Cross Grey Ladies”, sem voru til ómetan- legrar hjálpar fyrir sjúka og særða á sjúkrahúsum í báðum heimsstyr jöldunum. Hefur starfsemi sj úkravina færzt mjög í vöxt í nágranna- löndum okkar: á Norðurlöndum, í Englandi, í Kanada og Banda- i'íkjunum. I þessum löndum eru sjúkra- vinir taldir jafnsjálfsagðir og aðrir starfshópar í athafnalífi sjúkrahúsanna. Er lærdómsríkt að kynnast í reynd, á hvern hátt störf sjúkra- vina fara fram, jafnhliða störf- um hjúkrunarliðs. Verkefnin eru margvísleg og unnin af ósérplægni. Störfin eru m. a. eftirfarandi: 1. aðstoða og leiðbeina sjúkling- um til og frá sjúkra- og þjón- ustudeildum, 2. veita te og kaffi því fólki, sem bíður í biðstofum, t. d. göngudeildum — röntgen- deildum, 3. umsjón dægradvalar (föndur — útvegun listamanna o. s. frv.), 4. leika við börn á barnadeild- um, 5. gera sjúklingum dagamun, á hátíðisdögum, afmælisdögum o. fl., 6. sjá um hárgreiðslu og snyrt- ingu, 7. aka fólki, sem er í daglegri geislameðferð, til og frá heimilum. Margt fleira mætti telja fram, en framangreind upptalning ætti að nægja til að sýna fram á, hversu víðtæk þessi þjónusta getur verið. Vegna fámennis okkar Islend- inga og tiltölulega stuttra vega- lengda í velferðarþjóðfélagi, þar sem fólk verður sjaldan jafn- einmana og vanmáttugt og í milljónagrúanum, er í mörgu til- liti um ólíkar aðstæður að ræða. En söm er þörf hins hrjáða hér heima sem annars staðar fyrir umhyggju og andlegan styrk í baráttunni við sjúkdóma. Með stækkun þjóðfélagsins eykst þörfin fyrir félagslega aðstoð. Starfsemi sjúkravina Rauða kross íslands hefur verið í fram- þróun hér á landi síðustu árin, því að viðfangsefnin fara vax- andi og sjúkrahúsin hafa ætíð þörf fyrir fólk, sem hefur vilja og áhuga til að starfa að mann- úðar- og velferðarmálum. Margrét JóhannescLóttir. Alda Halldórsdóttir. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.