Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Síða 27

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Síða 27
Ur Reglugerð um réttindi og skyldur starfsmanna Reykj avíkurborgar X. kafli. Um félagsskap starfsmanna. 45. gr. Með reglum þessum viðurkennir borgarstjórn Reykjavíkur Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar, Lögreglufélag Reykjavíkur og Hjúkr- unarfélag Islands sem viðræðuaðila um mál- efni, er varða starfsmenn borgarinnar og samn- ingsaðilja samkv. rg. nr. 159/1962. 46. gr. Öllum starfsmönnum borgarinnar og fyrir- tækja hennar, sem háðir eru ákvæðum reglu- gerðar þessarar, er skylt að vera í Starfsmanna- félagi Reykjavíkurborgar, Lögreglufélagi Reykjavíkur eða Hjúkrunarfélagi Islands, eft- ir því sem við á. Þó skulu viðkomandi félög leysa trúnaðarmenn borgarinnar í launamálum und- an öllum félagsskyldum eftir ósk borgarstjóra. XI. kafli. Ýmis ákvæði. 47. gr. Nú andast fastráðinn starfsmaður, og skulu þá maka hans, börnum innan 16 ára aldurs eða öðrum, er hann hafði á framfæri, greidd föst laun starfsmannsins í þrjá mánuði. 48. gr. Þegar einhver hluti launa er greiddur í fríðu, svo sem jarðarafnotum, húsnæði, ljósi, hita, fæði og öðru, skulu þessi hlunnindi metin ái'lega af skattstjóranum í því umdæmi, sem starfsmað- ur er búsettur í, og matsverðið dregið frá heild- arlaununum. Ákvörðun skattstjóra má skjóta til ríkis- skattanefndar, sem fellir fullnaðarúrskurð í málinu. 49. gr. Konur, er veita heimili forstöðu, eiga rétt til þess að vinna tvo þriðju hluta ákveðins vinnu- tíma gegn samsvarandi frádrætti í launum, enda megi slíkt verða að skaðlausu. Samsvarandi ívilnun má veita öðrum, ef sérstaklega stendur á. 50. gr. Starfsmanni, sem áður hefur unnið liluta úr starfi, en flyzt síðar í fullt starf, skal ákveð- inn starfsaldur þannig, að fyrri starfstími hans verði umreiknaður í heil starfsár eða mánuði. 51. gr. Ef starfsmaður er settur til að gegna hærra launaðri stöðu samfleytt í 4 mánuði eða leng- ur fær hann laun samkvæmt þeirri stöðu allan þann tíma. Ákvæði 48—51 eru samhljóða ákvæðum í Lög og reglur er varða ríkisstarfsmenn. Ur Lög og reglur er varða ríkisstarfsmenn Ur V. kafla. Um launagreiðslur og hlunnindi. 21. gr. Nú er starfsmaður leystur frá starfa vegna vanheilsu eða slysa, sem honum verður ekki með skynsamlegu mati gefin sök á, og ber þá að greiða honum þau föstu laun, er stöðu hans íylgja, í þrjá mánuði. Nú tekur maður, sem látið hefur af starfi vegna vanheilsu, aftur við starfi í starfsgrein sinni, og skal þá starfsaldur hans áður og eftir lagður saman og veitir þá sama rétt og óslitin þjónusta. Um greiðslu til maka látins starfsmanns fer eftir ákvæðum 1. mgr. Til trúnaðarmanna* forstöðukvenna og formanna svæða- og sérdeilda Á félagsfundi í Hjúkrunarfélagi Islands, 31. jan. 1973 var samþykkt að stofna styrktar- sjóð fyrir Vestmannaeyjadeild HFl og hefja fjársöfnun innan félagsins. Stjórn Hjúkrunar- félags Islands biður trúnaðarmenn að standa fyrir söfnuninni og skila söfnunarfé til skrif- stofu félagsins, Þingholtsstræti 30, sem allra fyrst. Reykjavík, 1. febrúar 1973. F. h. stjórnar Hjúkrunarfélags Islands María Pétursdóttir.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.