Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Side 39
vert mikil reynsla til að byrja með, og það leifir ekki miklu af orkunni
eftir fyrstu vaktina á FSA. Þar sem nemum er ætlað svo ábyrgð-
armikið hlutverk, ætti það að vera skilyrðislaus krafa okkar að fá meiri
deildarkennslu. Stundum væri æskilegra að hafa hjólaskauta undir iljum
en tréklossa.
Af 3. árs nemum er það að segja, að þeir slæðast þangað einn og einn
smátíma í senn og eiga þá oftast eftir að vinna nokkrar vikur á hand-
lækninga- eða lyflækningadeild. En lokapróf taka þeir aldrei á FSA.
Þess má geta, að lyflækninga- og handlækningadeildirnar eru óvenju-
stórar miðað við deildir á Landspítalanum. Auk þessara tveggja deilda
eru innan stofnunarinnar ellideild, fæðingardeild, barnadeild, röntgen-
deild, slysavarðstofa og skurðstofa. Á skurðstofu fara fram allar almenn-
ar skurðaðgerðir, aðgerðir á börnum, kvensjúkdómaaðgerðir, beinaðgerð-
ir, augnaðgerðir o. fl.
Á skurðstofu dvelja nemar 10 vikur. Þar fáum við auk almennrar til-
sagnar tíma í svæfingum og erum 2 vikur í pökkun og sótthreinsun. 1
tengslum við nám á skurðstofunni kynnast nemar göngudeild og slysa-
varðstofu. Á þessum tíu vikum þurfa nemar að vera á bakvakt aðra hverja
viku. Þar eru aðeins tveir nemar í senn.
Það er ekki einungis námið á FSA, sem okkur finnst gróði að, heldur
er líka ýmislegt hægt að gera á Akureyri í frístundum. Þar er hinn víð-
frægi „Sjalli“, sem er helzti skemmtistaður Akureyrar, og eins og gefur
að skilja hefur þar margur sprett úr spori, svo að um munar.
1 Hlíðarfjalli er líka tilvalið að iðka fótmenntir á skíðum. Þar er mjög
góð stólalyfta, sem þó hefur veitzt klaufskum yngismeyjum erfið í byrj-
un, þannig að stöðva hefur þurft allt kerfið fyrir þær, til þess að þær
sætu ekki sem fastast niður fjallið aftur. í Hlíðarfjalli er ágætishótel,
þar sem gott er að fá sér hressingu.
Á sumrin er líka vinsælt að heimsækja Hlíðarfjall, þaðan er viðsýnt
yfir Eyjafjörðinn. Svo er hægt að ganga á Súlur og fleiri fjöll í nágrenni
bæjarins.
Nemar hafa talsvert stundað það að fara á bát út á „Pollinn“ og yfir
í Vaðlaheiði. Stutt er í Vaglaskóg, og nú á dögum, þegar puttaferðalögin
tíðkast sem mest, er bókstaflega hægt að fara um allt í tveggja daga
fríum. Á Akureyri er ferðafélag með skipulagðar ferðir, einnig einstakl-
ingar með ferðir upp á Vatnajökul, og er það ævintýri út af fyrir sig.
Þess má líka geta, að leikfélag starfar á Akureyri, og þar eru mörg söfn,
sem gaman er að skoða.
Að síðustu viljum við vekja athygli á hinum fagra Lystigarði Akur-
eyrar.
Þá látum við þessum pistli lokið og biðjum fyrir beztu kveðjur til hjúkr-
unarnema og alls starfsfólks á FSA.
Ritnefndin.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 33