Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Side 46

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Side 46
komið fram slíkt efni, sem bundið er östrogenhormón og virðist gefa góða raun, aðallega notað við mjög ill- kynja frumugerð og þar sem meinvörp eru fyrir hendi og einnig þegar önn- ur ráð hafa eigi dugað. í fáum orSum: Engin með- ferð á stigi I og II, þegar krabbameinsfrumurnar eru af lítt illkynja gerð, en reglulega fylgzt með sjúklingnum. Hor- mónar eru gefnir á stigi II—IV, er krabbameinsfrumurnar eru í meðallagi og mjög illkynja. Oft eru eistun jafnframt fjarlægð. Þegar frumugerð er mjög ill- kynja, þar sem hormónar hjálpa ekki, er beitt hávoltageislun og cytostatica. Ef sjúklingur losn- ar ekki við þvag, er gerð trans- urethral resection. Horfur. Því hærra sem stigið er og því illkynjaðri sem frum- urnar eru, því verri eru horf- urnar. 80% skánar í lengri eða skemmri tíma við meðferð. 10% á stigi II—IV lifa 5 ár án með- ferðar. Skv. reynslu og rannsóknum í Lundi í Svíþjóð (G. Jonsson, 1971) lifa 39% (á stigi II—IV) 5 ár með estradurin (östradiol) og 62% 5 ár með estradurin + etivex (etinylöstradiol, hvort tveggja kvenhormónar). 75 % af fólki á sama aldri (án krabba- meins) lifðu 5 ár. Að sjálfsögðu eru þessar tölur mismunandi eftir því, hvert landið, stofn- unin, meðferðin og árið er. Krossgáta krabbameinsins er enn að mestu leyti óráðin, og á meðan er reynt að lengja þrautalaust líf þeirra, sem í hlut eiga. Framanrituð orð um helztu sjúkdóma í blöðruhálskirtli eru síður en svo tæmandi sannleik- ur, en er eingöngu ætlað að vera til yfirlits yfir helztu vandamál kirtilsins. Fróðleiksfúsu hjúkr- unarfólki ber því að leita einnig á önnur mið til upplýsingar. □ Fyrirburðarfœðingar Framh. af bls. 25. 14. Official statistics of Finland. Publ. health and Med. care 1957. 15. Official statistics of Finland. Publ. health and Med. care 1962. 16. Official statistics of Finland. Publ. health and Med. care 1967. 17. Ellis, Richard W. B. & Mitchell, Ross G.: Diseases in Infancy and Childhood. E. & G. Livingstone Ltd. London 1965, bls. 50. 18. Menkhaus, G.: Geburtshilfe und Frauenklinik. 24: 775, 1964. 19. Ylppö, A.: Prematurity. Acta pediatr. scand. 35: 160, 1947. 20. Mc Kewn, T. and Gibson, J. R.: Observation on all births (23, 970) in Birmingham, 1947. IV. „Premature birth“. Brit. med. J., 2: 513, 1951. 21. Gruenwald, Peter: Chronic fetal distress and placental insuffici- ency. Biol. Neonat., 5: 215—265, 1963. 22. Engström, Lars og Sterky, Göran: Standard-kurvor för vikt och langd hos nyfödda barn. Lák- artidningen, 63: 4922—26, 1966. 23. World Health Organisation: Public health aspect of low birth weight. Technical report series no. 217, 1961. 24. Jónsson, Vilmundur: Heilbrigð- isskýrslur (Public health in Ice- land). Útdráttur úr ársskýrslum ljósmæðra. Reykiavik 1950, bls. 182—183. 25. Biering, Gunnar: Dánar-tölur ný- fæddra barna í Reykjavík. Læknabiaðið 4. 1971. □ Hjúkrun í Astralíu Framh. af bls. 27. þangað til þau eru fimm ára gömul. Tala ungbarna, sem deyja í vöggu, er há, en aðal- sjúkdómar eldri bama eru bron- chitis, anemia og innvortis orm- ar. Eyrnaígerðir eru kvilli, sem oft er látinn „lækna sig sjálfur", og gengur mörgum frumbyggja- bömum illa að fylgjast með jafnöldrum sínum seinna meir, þegar þau fara í skóla, vegna lélegrar heyrnar. Vegna van- trausts á hvítu fólki og trúar á eigin ,,lækna“ hefur þar til síð- ustu árin verið erfitt að fá for- eldrana til að koma með börnin sín til eftirlits á heilsuverndar- stöðina. Siðir og hættir frum- byggj a eru margra alda gamlir og hafa sterkar rætur. Er eng- inn smááfangi fyrir þetta fólk að laga sig eftir tuttugustu öldinni. Þegar á allt er litið, er hj úkr- un í Ástralíu að miklu leyti eins og annars staðar í heiminum, að undanteknum vandamálum í heilsuvernd vegna fólks af mis- munandi þjóðerni, sem býr í þessu stóra landi, og vegna breytilegs veðurfars. Sjúklingar og hjúkrunarkonur eru söm við sig hvar sem er. H j úkrunarkonur, sem vilja koma til Ástralíu og vinna þar, ættu að sækja um starfsréttindi hjá fylkishjúkrunarráði (State Nurses’ Board) í því fylki, sem þær ætla að koma til, og munu geta fengið upplýsingar því við- víkjandi hjá hjúkrunarfélagi í heimalandi sínu Ef þær hafa samt sem áður ekki öll nauðsyn- leg skírteini, áður en þær koma hingað, verða þær að fara til fylkishj úkrunarráðsins með pappíra sína og upplýsingar um fyrri störf og meðmæli frá fyrr- verandi vinnuveitanda. Ef um- sækjandi kemur frá landi, þar sem enska er ekki móðurmál, verður að taka próf í ensku, munnlegt og skriflegt, og svara nokkrum spumingum um hjúkr- un. Engin hjúki-unarkona má starfa hér sem slik án leyfis frá fylkishjúkrunarráðinu. Það er þess vegna nauðsynlegt að tryggja sér öll æskileg skírteini fyrir fram til að forðast ónauð- synlega og kannski langa bið eft- ir starfsleyfi. Gjald fyrir slíkt leyfi er nokkrir dollarar ($4.00 —$6.00). □ 40 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.