Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1975, Page 5
sóknir á sviði hjúkrunar. Doro-
thy Hall, frá Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnuninni, sem er ís-
lenskum hjúkrunarkonum að
góðu kunn, hefur verið boðið á
ráðstefnuna sem sérfræðingi á
þessu sviði.
SSN hefur um nokkurn tíma
unnið að því að komið verði á
fót samnorrænni menntastofn-
un fyrir hjúkrunarkonur þar
sem hægt verði að öðlast æðri
menntun í hjúkrun. Ákveðið var
að óska eftir stuðningi Norður-
landaráðs við málið.
Dorothy Hall var sérstaklega
boðið á þennan stjórnarfund og
gerði hún grein fyrir starfsemi
WHO að því er varðar fram-
tíðaráætlanir um skipulagningu
heilbrigðisþ jónustu.
Fulltrúafundur SSN þetta ár
veröur haldinn í Reykjawík í
september n.k. Hvert veröur að-
al viðfangsefni hans?
Höfuðviðfangsefni hans verð-
ur m. a. byggt á skýrslu nefnd-
ar sem sett var á stofn af
Alþ j óðaheilbrigðismálastof nun-
inni (WHO) og Alþjóðavinnu-
málastofnuninni (ILO) á síð-
asta ári. Skýrsla þessi fjallar
um starfs- og lífsskilyrði hjúkr-
Fyrst og fremst
byggist allt á almennri
þátttöku, félagsmanna.
Ég sé að betta
ætlar að verða erfitt
samtal.
unarstarfsliðs. Einnig verður
unnið á grundvelli skýrslu
nefndar á vegum SSN sem fjall-
ar um hjúkrunarstarfið og skil-
greiningu á því. Undir þetta
falla auðvitað fjöldamörg atriði,
en ekki hefur endanlega verið
gengið frá því hver þeirra verða
tekin fyrir á þinginu.
Að síðustu, Ingibjörg, hver
eru helstu viðfangsefni stjórn-
arinnar nú sem stendur?
Eins og er þá erum við að
reyna að ganga endanlega frá
ýmsum atriðum úr síðustu
kjarasamningum sem, að okkar
mati, hafa ekki fengist rétt
túlkuð af launagreiðendum. Eitt
þeirra, og líklegast það fræg-
asta, er 25 mín. reglan. Svo er
einnig um að ræða atriði sem
ekki var búið að semja um.
Við höfum mikinn hug á því
að hægt verði að stofna til fram-
haldsnáms í hjúkrun hér heima
sem alira fyrst til þess að leysa
að einhverju leyti úr því vand-
ræðaástandi sem við búum nú
við vegna skorts á sérmennt-
uðu hjúkrunarfólki. Þar er í
mörg horn að líta og ekki gott
að segja eins og er hvernig þeim
málum lyktar. En það ríkir
bjartsýni innan stjórnarinnar.
Nú, eins og við töluðum um áð-
an þá verður að gera eitthvað
róttækt í sambandi við trún-
aðarmannakerfið. Nefnd er
starfandi til að endurskoða lög
félagsins og má gera ráð fyrir
að einhverjar breytingar verði
gerðar þótt þær verði e. t. v.
ekki stórvægilegar.
Já, og hér langar mig að
minnast á mikið og gott starf
fræðslumálanefndar en þar á ég
við námskeið í hjúkrun sem
nefndin hefur skipulagt og haft
allan veg og vanda af.
Eitt gæti ég nefnt enn sem
mér finnst brýn þörf á og það
er meiri upplýsingasöfnun og
miðlun innan félagsins. Ekki
þori ég að spá um hvernig slíkt
megi takast, en þarna finnst
mér mikið á skorta hjá okkur.
Nú að lokum, undirbúningur
fyrir SSN-fundinn á eftir að
kosta okkur geysimikla vinnu,
en með góðu samstarfi þá efast
ég ekkert um að við klórum okk-
ur fram úr því.
Eg hef áreiðanlega gleymt
heilmörgu sem ástæða væri til
að nefna en læt þetta duga að
sinni. I. Á.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 3