Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Blaðsíða 14
Tímarit Hjúkrunarfélags
fslands 50 ára
Stutt spjall við frú Sigríði Eiríksdóttur fyrrv. form.
Hjúkrunarfélags Islands
Á ÞESSU ÁRI, eða nánar nú í júní,
á rit Hjúkrunarfélags fslands
merkisafmæli, þar sem liðin eru
fimmtíu ár frá útgáfu fyrsta
tölublaðs þess.
Á fundi hjúkrunarkvenna í
apríl 1925 var útgáfa blaðsins
ákveðin og segir í formála fyrir
fyrsta tölublaðinu, að markmið
blaðsins sé að halda áhugamál-
um stéttarinnar vakandi, efla
þau og útbreiða.
1 stórt var ráðist af fámenn-
um en hugdjörfum hóp, þar sem
á árinu 1925 var aðeins 21
hjúkrunarkona í félaginu en
með störfuðu 12 aukafélagar.
Tímaritið hlaut í upphafi heit-
ið — Tímarit Félags íslenskra
hjúkrunarkvenna — og bar það
til ársins 1935, en þá var heiti
þess breytt í — Hjúkrunar-
kvennablaðið — og síðan í nú-
verandi heiti árið 1960.
I fyrstu ritnefnd voru kjörn-
ar þrjár konur, þær Guðný Jóns-
dóttir, Sigi'íður Eiríksdóttir og
Kristjana Guðmundsdóttir. Rit-
stjórn skilaði einu blaði fyrsta
árið, en síðan fjórum á ári og
var árgjald ákveðið 3 krónur.
I tilefni þessara tímamóta í
sögu blaðsins fór ritstjórn þess
á leit við frú Sigríði Eiríksdótt-
ur að fá að hafa stutt viðtal við
hana, en hún er ein á lífi úr
fyrstu ritstjórn blaðsins.
Sigríður hefur, eins og kunn-
ugt er, unnið ötullega að hjúkr-
unar- og heilbrigðismálum allt
frá því hún kom heim frá námi
á þriðja tug aldarinnar og var
hún m. a. formaður Hjúkrunar-
félags Islands á árunum 1924—
1960 og með aðra höndina við
blaðið allan þann tíma. Þegar
flett er árgöngum blaðsins dylst
engum að Sigríður á þar mikinn
fjölda greina.
Við spurðum Sigríði, hver
hafi verið aðdragandinn að því
að hjúkrunarkonur réðust í út-
gáfu félagsblaðs.
Á þessum árum var hjúkrun-
arstarfið á byrjunar- og mót-
unarstigi hér á landi og var
okkur því brýn nauðsyn á að
fá boðbera til að halda okkar
málum vakandi og til að ná
til allra í stéttinni. Nokkuð
var um útgáfu fagrita, t. d.
minnist ég þess að iðnaðar-
menn, læknar, verkfræðingar
og, að mig minnir, ljósmæð-
ur hafi gefið út fagrit fyrir
þennan tíma.
1 fyrsta tölublaði er drepið á
að framtíð blaðsins sé undir
hjúkrunarkonum sjálfum komin
og er þar að finna setninguna:
Viö eigum aö skrifa þaö allar.
Var söfnun efnis ekki erf i'ö ?
Eins og að líkum lætur vildi
það brenna við að sömu kon-
urnar skrifuðu mest í blaðið.
Blaðið hefur að sjálfsögðu
verið upp og ofan að gæðum
en einna mesta deyfð finnst
mér ríkja yfir því um 1960.
Hvernig var hjúkrunarkonum
fjárhagslega kleift aö ráöast í
blaöaútgáfu ?
1 fyrstu fjölgaði hægt í stétt-
inni og auðvitað hefði ekki
verið hægt að ráðast í þetta
„stórfyrirtæki", ef ekki hefði
komið til ókeypis vinna okkar
sem að blaðinu stóðu. Kostn-
aður var greiddur úr félags-
sjóði og blöðin send heim til
allra félagskvenna. Lengi vel
var blaðið selt í lausasölu en
seldist alla tíð lítið þannig.
42 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS