Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Blaðsíða 73

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Blaðsíða 73
Formaður þakkaði fulltrúum þátttöku og fundarstjóra, Jónu Valgerði Höskuldsdóttur, góða og röggsama fundarstjórn og sagði m. a.: „Stjórn félagsins mun gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að öll framkvæmd á málefnum félagsins verði okkur öllum til hagsbóta. Þá vildi ég í lokin mega óska þess að félagsstarfsemi okkar eigi eftir að eflast í framtíðinni og að innan hjúkrunarstéttar- innar aukist samstaða um helstu hagsmunamál okkar, þannig að okkur miði betur áfram í bar- áttunni fyrir bættri menntun, betri launum og hæfari starfs- kröftum. Ég óska fulltrúum lands- byggðarinnar góðrar heimferð- ar og öllum fulltrúum góðs aft- urhvarfs til daglegra starfa. Aðalfundi HFl 1975 er slitið“. Fundi slitið kl. 22.40. /. Á. Félagsfundur. Félagsfundub HFÍ var haldinn í Glæsibæ miðvikudag'inn 9. apríl sl. kl. 20.30. Fundarefni: 1. Framhaldsmenntun. 2. Umræður um launamál. 3. Önnur mál. Formaður félagsins, Ingibjörg Helga- dóttir, setti fundinn, bauð félaga vel- komna og sagði m. a.: „Það sem ég ætla að gera að um- ræðuefni er þátttaka félagsmanna í starfsemi HFÍ, einkum með tilliti til trúnaðarmannakerfisins. Einnig mun ég aðeins koma inn á málefni er varða aðild okkar að BSRB. Á aðalfundi félagsins 1972 var samþykkt reglugerð um trúnaðar- menn og trúnaðarráð innan HFÍ — og í lögum félagsins frá 15. okt. 1972 er einnig að finna ýmis ákvæði um trúnaðarmenn. Skv. reglugerðinni voru svo kosnir trúnaðarmenn á vinnustöðum, mynd- aðar trúnaðarnefndir og skipað trún- aðarráð. Eftir því sem ég best veit þá fór þetta allt vel og skipulega af stað og hélst í horfinu um þó nokk- urn tíma, en því miður hefur þetta kerfi okkar ekki reynst eins ending- argott og skyldi, því nú er t. d. ekk- ert trúnaðarráð starfandi lengur. Að vísu eru víða starfandi trúnað- armenn á stofnunum, en heyrt hef ég að einhverjir misbi’estir hafi orðið á í sambandi við kosningar þeirra a. m. k. á sumum stofnunum. Ég tel að öflugt ti’únaðarmanna- kerfi innan stéttarfélags eins og okk- ar, sé afar þýðingarmikið. Trúnað- armenn starfa sem tengiliður á milli félagsmanna og forráðamanna þeirra stofnana sem þeir starfa við. Þeir standa vörð um réttindi og skyldur félagsmanna, veita upplýsingar um þau mál og til þeirra er vísað til úr- lausnar ýmsum ágreiningsmálum er upp kunna að koma á vinnustað, hvort heldur þau eru viðkomandi starfinu sjálfu ellegar kjaramálum svo eitt- hvað sé nefnt. Trúnaðarráði er m. a. ætlað að skapa tengsl milli trúnaðar- manna á stofnunum og stjórnar fél- agsins. Trúnaðarráð er ráðgefandi aðili fyrir trúnaðarmenn og tekur til meðferðar og afgreiðslu þau vandamál sem trúnaðarmenn kunna að þurfa aðstoð við. Það sér einnig um að afla upplýsinga um málefni hjúkrunarstéttarinnar og annast dreifingu á þeim til trúnaðarmanna. Þá leitast það við að stuðla að auk- inni fræðslu fyrir félagsmenn. Þetta eru aðeins nokkur dæmi um það hvaða tilgangi trúnaðarmanna- kerfið á að þjóna hjá okkur skv. reglugerðinni. Sé þessu framfylgt hlýtur það að leiða til eflingar á starfseminni innan félagsins, stuðla að aukinni og áhrifameiri upplýsinga- miðlun og verða til þess að fleiri fél- agsmenn verði virkir þátttakendur í félagsstarfseminni. Síðast en ekki síst hlýtur þetta að hafa í för með sér aukið öryggi fyrir félagsmenn á vinnustöðum." Formaður hvatti félaga til starfa að málefnum félagsins og sagði: „Það er alltaf viss hópur félags- manna sem tekur að sér verkefni og við stöndum öll í mikilli þakkarskuld við þá einstaklinga, en við verðum líka að gæta þess að ganga ekki alveg fram af þeim. Það er staðreynd að flest allir í þessu félagi eru miklum störfum hlaðnir, flestir í tvöföldu starfi og því er enn frekar þörf á því að reyna að dreifa félagsstörfunum." María Pétursdóttir, skólastjóri, flutti fróðlegt erindi um dvöl sína í Kanada. Hún dvaldist þar í þrjá mánuði sl. haust til að kynna sér hjúkrunarmenntun. Nanna Jónasdóttir, varaformaður HFÍ, fjallaði um ýmis atriði kjara- mála, m. a. 25 mín. regluna, hluta- vinnu, gæsluvaktir, orlofsgreiðslur, röðun í launaflokka og ýmis ágrein- ingsmál er upp hafa komið síðan síð- ustu kjarasamningar voru undirrit- aðir. Miklar umræður spunnust um kjaramálin og komu m. a. fram radd- ir um hvort ekki væri rétt að segja sig úr BSRB. Formaður þakkaði félögum góða fundarsókn og sleit fundi kl. 23.45. Fundarstjóri var Rögnvaldur Stef- ánsson. Tíðahvörf... Framh. af bls. 61. Davis, M. E.: Year Book of Obstet. and Gynec. 1974—1965 bls. 336. Davis, M. E., Lanzl, L. H. and Cox, A. B.: Obstet and Gynec., N. Y. 36: 187 (1970). Diczfalusy, E. und Lauritzen, C.: Oestrogene beim Menschen. Berlin. — Göttingen — Heidelberg. Spring- er (1961). Gallagher, J. C. and Nordin, B. E. C.: Lancet 1:503—507 (1972). Gai-dener, W. U.: Cancer Res. 19:170 (1959). Greenblatt, R. B.: Clin. Obstet. Gynec. 2:232 (1959). Grönroos, M.: Acta Obstet. Gynec. Scand. 43: suppl. 5. (1965). Jaszman, L. van Lith, N. D. och Zaat, J. C.A.: Int. J. Fert. 14:106 (1969). Jönsson, G.: Klimakteriet. Intemati- onelt Sumposium, Danmarks apo- teksforening. 122 (1973). Kaiser, R. und Daume, E.: Geburtsh. Frauenheilk. 25:974 (1965). Kielholz, P.: Documenta Geigy. Acta Psychother. (Basel) 34 (1959). Kielholz, P.: Geburtsh. Frauenheilk. 20:614 (1961). Lebech, P. E. og Borgaard, B.: Klim- akteriet, Internationelt Symposium, Danmarks apoteksforening bls. 80 (1973). Lindberg, B. I.: Sv. Lákartidn. 54: 3513 (1957). Lippschutz: Steroid hormones and tumours, Baltimore: Williams and Wilkins Co. (1950). Meema, H. E., Bunker, M. L. och Meema, S.: Obstet. Gynec. 26:333 (1965). Meema, H. E., and Meema, S.: Canad. Med. Assoc. J. 99:248 (1968). Neugarten, B. L. and Kraines, R. I.: Psychosom. Med. 27:266 (1965). Newton-John, H. F. and Morgan, D. B. : Lancet 1:232 (1968). Shelton, E. K.: J. Amer. Geriat. Soc. 2:627 (1954). Stoeckel, W.: Lehrbuch der Gynáko- logie. Leipzig 1952. Tracy, R. E.: J. Chron. Dis. I 9:1245 (1966). Twombly, G. H.: Proc. Soc. Exp. Biol. Med. 44:617 (1940). Wilson, R. A. and Wilson, T. A.: J. Amer. Geriat. Soc. 20:521 (1972). TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.