Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Blaðsíða 50
fram bæði hér og í Oslo. Eins
og þið heyrið er allmikill rnunur
á því hvernig þetta er fram-
kvæmt. Meginmunurinn er fólg-
inn í því að í Noregi eru heilsu-
verndarstöðvarnar miklu sjálf-
stæðari og um leið starfa heilsu-
verndarhjúkrunarkonur auðvit-
að miklu meira sjálfstætt. Þann-
ig sjá heilsuverndarstöðvarnar
um miklu fleiri þætti heilsu-
verndar en hér er. Þar sem ég
vann í Oslo höfðum við t. d.
fyrst samband við flestar m.æð-
ur þegar þær komu í mæðra-
skoðun. Þetta er að sjálfsögðu
mildu betra, því þá gefst okkur
tækifæri til að ræða við og leið-
beina verðandi mæðrum um
meðferð hins væntanlega barns,
sem við höfum svo áfram eftir-
lit með. Mikilvægi slíks sam-
bands verður aldrei nóg undir-
strikað. Það er fyrst þegar mað-
ur er búinn að komast í gott
samband við móðurina að hún
getur snúið sér til okkar með
vandamál sín. Það er þá kannski
sem til okkar er leitað með ann-
að en t. d. hvað börnin eigi að
borða eða hvenær eigi að leggja
þau. Vandamálin geta verið af
félagslegum toga spunnin, sál-
fræðilegt vandamál og fleira
þess háttar. Þá er það okkar
að reyna að leiðbeina eða leysa
úr þessu eftir bestu getu. Ef
við getum ekki leyst vandann
vísum við á ýmsar stofnanir eða
til félagsráðgjafa eða sálfræð-
inga.
Það er auðsætt að starf
okkar heilsuverndarhjúkrunar-
kvenna verður að vera miklu
sjálfstæðara. Við eigum ekki að
vera handlangarnar hjá lækn-
um, eins og oft er tilfellið hér
á landi. Þetta á ekki bara við
um heilsuverndarhj úkrunarkon-
ur heldur kannski flestar okkar.
Við þurfum að öðlast þá ábyrgð
sem menntun okkar býður upp
á, bæði inni á sjúkrahúsum og
fyrir utan. I heilsuvernd ætti
heilsuverndarhjúkrunarkona að
bera meiri ábyrgð á venjuleg-
um skoðunum. Hún á að vera
ábyrg fyrir öllum mikilvægustu
leiðbeiningum til mæðra um lík-
amlegt og andlegt heilbrigði
barna þeirra og þeirra sjálfra.
Heilsuverndarhj úkrunarkonan
er að mörgu leyti i lykilaðstöðu
til að vernda andlegt og líkam-
legt heilbrigði þegnanna og
þyrfti hún því að búa sér góða
starfsaðstöðu.
Skólnlipilsuvnrml ú ísl.-imli.
1 löggjöf og leiðbeiningum um
skólaeftirlit segir svo í 31. gr.:
„Skólahjúkrunarkona skal, und-
ir umsjón skólayfirlæknis og
hlutaðeigandi skólalæknis, fylgj-
ast með andlegum og líkamleg-
um þroska nemenda, heilsufari
þeirra, klæðnaði, líkamsþrifnaði
og aðbúð í skóla og á heimili.
Hún skal í samvinnu við aðra
ábyrga aðila leitast við að temja
og kenna nemendum hollustu-
samlegar lífsvenjur og stuðla að
því að leitað sé tiltækilegrar
lækningar, eða annarrar hjálp-
ar þeim sem á slíku þurfa að
halda“. I skólanum í dag getur
verið erfitt að fylgja eftir þess-
um reglum. Kemur það aðallega
til af því að skólarnir eru of
fjölmennir miðað við þann tíma
sem hjúkrunarkonan hefur.
Miðað er við að skóli hafi u. þ.
b. 1400 nemendur svo að hægt
sé að ráða hjúkrunarkonu í fullt
starf. Það eru því nokkrir skól-
ar hér með hjúkrunarkonu í
fullu starfi. Annars er það oft
þannig að hjúkrunarkona ann-
ast einnig ungbarnaeftirlit í
hverfinu, og skiptist það til
helminga á móti skólanum.
Störf he ilsuverndarhjúkrunar-
kvenna viS skólaeftirlit.
1. Berklaprófa skal alla nem-
endur sem fyrst á haustin.
a) 6—12 ára börn eru berkla-
prófuð á hverju hausti
(Moropróf).
b) 13 ára og eldri eru aðeins
berklaprófuð á haustin
(Mantouxpróf).
2. Sjónprófa skal 6 ára, 9 ára
og 11 ára börn, og eldri nem-
endur árlega.
3. Heyrnardeild Heilsuverndar-
stöðvarinnar sér um heyrn-
armælingar í barnaskólum.
Mæld eru 7 ára, 9 ára og 12
ára börn.
4. Árlega skal vega og mæla
alla nemendur í barna- og
unglingaskólum. — Athuga
skal sérstaklega eftirfarandi:
a) líkamsþroska og eldi
b) bæklun eða burðargalla
c) húðsjúkdóma og líkams-
hirðingu.
Okkar almennu störf í skóla
eru: að berklaprófa öll börn
hvert haust, athuga sjón allra
barna, en 7 ára, 9 ára og 12 ára
börn eru heyrnarmæld á veg-
um Heyrnardeildar Heilsu-
verndarstöðvarinnar. Öll börn
vegin og mæld á hverju ári og
athuguð m. t. t. almenns útlits,
burðargalla, líkamsgalla og
þrif naðar. H j úkrunarkonan
veitir 12 ára stúlkum fræðslu
um blæðingar. Hjúkrunarkonan
aðstoða lækninn við læknisskoð-
unina, en öll 6 ára börn eru
skoðuð og annað foreldri kem-
ur með þeim. 9 ára, 12 ára og 14
ára börn eru skoðuð og bólusett
eftir því, sem við á á hverju
aldursskeiði. Hjúkrunarkonan á
líka, þegar hún er í skólanum,
að sinna öllum smámeiðslum og
ef um meiri háttar meiðsli er
að ræða að sjá um að koma við-
komandi á slysavarðstofu. Það
gefur því auga leið að lítill tími
verður til að sinna andlegri
heilsu nemendanna. Ég hef
fundið að mikil þörf er á því
að hjúkrunarkonan hafi tíma til
að tala við nemendurna og hafi
tíma til að sinna geðvernd. Oft
vantar nemendur bara einhvern
sem sýnir þeim skilning og
áhuga. Foreldrarnir eru oft svo
uppteknir eða krökkunum finnst
þau ekki skilja sig. Einn þátt-
ur í starfi okkar í skólanum er
samstarf við aðrar stéttir svo
78 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS