Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Blaðsíða 61

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Blaðsíða 61
nauðsynlegar, námsferðir til Bandaríkjanna og Kanada, sem undirbúning að starfi í þágu hjúkr- unarmenntunar viðkomandi þjóða á Norður- löndum. Þróunin víða um heim tekur mjög ör- um og stórstígum breytingum á ýmsum svið- um og æ fleiri og fleiri þjóðir geta boðið upp á góða hjúkrunarmenntun, þótt mismunandi langt eða fjölbreytt framhaldsnám sé í boði hjá þeim. Samt virðast Bandaríkin enn vera í ótví- ræðum fararbroddi, þegar á heildina er litið. 3. IJni lucga fjnrvciliiifiu lil rckslurs viAkomnndi nirunlnslofunnn. Hjúkrunarskóli Islands hefur lengsta reynslu hérlendis af því að standa í stöðugri baráttu fyrir öflun fjár til hjúkrunarmenntunar og oft hefur mikið vantað á að nóg þætti örlæti hins opinbera fjárveitingavalds. Ekki er nú útlitið á líðandi stundu neitt sérlega glæsilegt, því sam- dráttur er augljós á ýmsum sviðum, verkföll yfirvofandi og almenningur vill lækkun skatta. Menntamálaráðherra flutti ræðu nýlega á ráð- stefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga og sagði þá m. a.: „Vissulega er vandi á höndum, þegar harðnar á dalnum, því þá þarf að velja og hafna í ríkara mæli og af meiri nákvæmni en þegar allt leikur í lyndi. En það kalla ég menntfjandsamlegar aðgerðir, ef menn taka sér fyrir hendur að krefjast einhliða lækkunar á ríkisins inntektum. Slíkt hefnir sín fyrr eða síðar, því sárar eru sameiginlegar þarfir fá- mennrar en félagslega þenkjandi þjóðar.’“ Lokaorð. Við, innan hjúkrunarstéttarinnar, getum hvert og eitt litið í eigin barm og spurt okkur sjálf. Hvað vil ég að sé gert? Hvað get ég sjálf eða sjálfur gert? Að heimta meir af öðrum en sjálf- um sér er ekkert heillamerki, enda hefur það ekki verið einkenni stéttarinnar á liðnum tím- um. Við skulum heldur ekki láta það henda neitt okkar, að við reynum að troða skóinn niður af náunganum til að tylla undir eigin tá. Þeir sem nú starfa innan hjúkrunarstéttarinnar þarfn- ast allir hvers annars stuðnings. Þeir sem á eftir koma uppskera svo vora sáningu. Nóg er starfið, þótt allir geri sitt besta, og auk þess að vinna vel og markvisst innbyrðis í stéttinni, verðum við m. a. líka að leggja fyllstu alúð við samstarf og samskipti við allar aðrar heilbrigð- isstéttir, ekki hvað síst ljósmæður og sjúkra- liða, sem oft taka þátt í viðfangsefnum hjúkr- unarstéttarinnar í ríkari mæli en flestir aðrir. Hafnarfirði 9. apríl 1975. Elín Eygerz Stefánsson. Ritkynning jVÝ I.ÖGGJÖF IJM HKIMIItlGlHSIMÚIVUSTi; Á ÍSI.AMH Út er komin á vegum heilbrigðisráðuneytisins ný löggjöf um heilbrigðisþjónustu á Islandi. Er hér um að ræða sérprentun úr sveitarstjórn- armálum, 4. hefti 1974. Löggjöfin er fáanleg í ráðuneytinu. IIKGUUOERll Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út reglugerð um geymslu og meðferð lyfja í sjúkrahúsum og öðrum stofnunum sem ’hafa lyf undir höndum. Reglugerðin er fáanleg í ráðuneytinu. A1IIIE.IIISSYGUOMME OG SYGEl’EE.IE Ritið hefur að geyma tvær skýrslur um útslitna vinnuþega og hvernig koma má í veg fyrir atvinnusjúkdóma. Höfundar eru Lis Adamsen og Mimi Jacobi. Rit nr. 7. Útgefandi Dansk Sygeplejerád. SYGEPI.E.IE I EORIII.YUEI.SE MEU IUEO- OG UOUOSTOMIOPEREREUE PATIEYTER 1 þessu riti fjalla þær Karen Elmo og Ulla Borch um hjúkrun sjúklinga eftir hinar margvís- legu aðgerðir á þörmum. Rit nr. 8. Verð danskar kr. 16.00. Útgefandi Dansk Sygeplejerád. ET ERHYERY MEU RIGE MIT.1GHEUER - SYGEPUK.IE.Y Ritið fjallar um undirbúningsmenntun, hjúkr- unarmenntun, markmið menntunarinnar, skipu- lagningu, fjárhagsvandamál meðan á námi stendur, framhaldsnám og félagsmál svo nokkuð sé nefnt. Verð danskar kr. 2.50. Útgefandi Dansk Sygeplejerád. II.IÚKHUYAHKOYUH Munii) að lilkynna búslailaskipli. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 85
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.