Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Blaðsíða 57
sjúkraliðanema koma inn á sjúkradeildir á næst-
unni. Augljóst virðist því vera, að þörfin fyrir
hjúkrunarnema sem vinnuafl er ekki eins brýn
og áður var, og að sjúkradeildirnar hafa nú meiri
möguleika en áður til að veita þeim tilsögn og
aðhald í námi. Því var ákveðið samhljóða á að-
alfundi HNFÍ að senda skólanefnd bréf, þar
sem hjúkrunarnemar lýstu sig fúsa til að falla
frá fyrri kaupkröfum gegn því að skólanefnd
beitti sér fyrir breytingum á verklegu námi okk-
ar þannig að:
Hjúkrunarnemar séu aðeins skráðir á vinnu-
skýrslu 3 daga í viku, en hafi mætingarskyldu í
2 daga þar umfram. Þessum dögum yrði varið til
náms undir leiðsögn kennara og/'eða hjúkrunar-
kvenna eða ef þess er ekki kostur, samkvæmt
fyrirmælum frá skólanum sem gæti sett okkur
verkefni eða íalið okkur að stunda frjálst nám.
Tryggt skal að þessir 2 dagar séu ekki helgi-
dagar.
Með þessari tilhögun vonum við að hjúkr-
unarnemar muni læra að stunda frjálst nám
og afla sér þekkingar að eigin frumkvæði. Þetta
teljum við að muni auðvelda okkur og hvetja
til að viðhalda og efla þekkingu okkar að námi
loknu, en áhugi og geta til þess virðist því miður
vera af skornum skammti hjá hjúkrunarkonum
/mönnum.
Sigrí'ður Guðmundsdóttir.
Sigurður H. Jónsson.
P. S. Eftir að þetta var ritað tók skólanefnd
HSÍ síðara erindi okkar til meðferðar. Undir-
tektir nefndarmanna voru mjög jákvæðar og
munu þeir hafa ákveðið að gera sitt besta til
að umræddar breytingar á verklegu námi okk-
ar nái fram að ganga hið fyrsta.
Við kunnum skólanefnd þakkir fyrir undir-
tektirnar.
S. G„ S. H. J.
Breiðholtsundrin
Þann 12. febrúar sl. komu 6 hjúkrunarnemar
saman í lítilli, vistlegri íbúð í Breiðholti, 3 frá
Hjúkrunarskóla Islands og 3 frá Hjúkrunar-
námsbrautinni við Hl. Tilgangur þessa fundar
var að ræða um hjúkrunarmenntun og hvort
grundvöllur væri fyrir samstarfi nemafélag-
anna tveggja. Fljótt kom í ljós að skoðana-
ágreiningur var minni en ætlað hafði verið, og
um einstök einangruð málefni sem ekki virtist
ástæða til að láta spilla fyrir samstarfi um sam-
eiginleg hagsmuna- og áhugamál. Létt í skapi
ákváðum við að hittast aftur og hefja þá mál-
efnalegar umræður um væntanlegt samstarf.
Næsti fundur var svo haldinn á sama stað 17.
apríl og þá var ákveðið að lýsa yfir samstarfi
félaganna með fréttatilkynningu sem dreift var
til fjölmiðla. Tilkynningin var svohljóðandi:
Fréttatilkynning frá stjórnum Hjúkrunar-
nemafélags Islands og Félags hjúkrunarfræði-
nema við Háskóla Islands.
Undanfarið hafa átt sér stað viðræður milli
fulltrúa félaganna um menntunarmál hjúkrun-
arstéttarinnar. Stjórnir félaganna leggja áherslu
á að samræma beri grunnnám í hjúkrunarfræð-
um þar sem óæskilegt megi telja að tvær meg-
instefnur ríki í menntunarmálum stéttarinnar.
Stjórnir félaganna hyggja á áframhaldandi sam-
starf og eru einhuga um að láta ekki ágrein-
ing um einstök atriði girða leiðina að sameigin-
legu markmiði sem er: bætt hj úkrunarmenntun
í landinu.
Ákveðið var að nefndin skyldi starfa áfram
í sumar og gera samanburð á námsefni og náms-
tilhögun við hjúkrunarskólana, einnig undirbúa
sameiginlegan umræðufund beggja félaganna
um hjúkrunarmál og hjúkrunarmenntun. Einn-
ig var ákveðið að reyna að koma á nemenda-
skiptum næsta vetur, þannig að við sitjum tíma
hvert í annars skóla og reynum að öðlast sem
skýrasta mynd af námi og vandamálum hvers
annars.
Störf þessarar nefndar hafa verið rædd í
stjórnum beggja félaganna og einnig að nokkru
leyti verið kynnt félagsmönnum og óhætt er að
segja að einlægur samstarfsvilji yfirgnæfi þann
ágreining sem ríkja kann um einstök atriði.
Það er okkur gleðiefni að geta eytt þeim mis-
skilningi sem gætt hefur að hjúkrunarnemar
innan Háskóla Islands og hjúkrunarnemar utan
hans séu ósættanlegir fjandmannahópar.
Sigríður Guðmundsdóttir, HSl.
Sigiirður H. Jónsson, HSl.
Ingigerður Ólafsdóttir, HSl.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, Hl.
Guð'irún Marteinsdóttir, HÍ.
Guði'ún Dóra Guðmannsdóttir, HÍ.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 81