Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Blaðsíða 60

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Blaðsíða 60
Haft skal í huga að vel menntaður og hæfur starfsaðili er oft góður kennari, þótt hann hafi ekki sérstök kennararéttindi, t. d. hafa margir stundað kennslu við menntaskóla hérlendis á liðnum árum, án slíkra réttinda, en ekki fyrir ýkja löngu var þó komið á laggirnar námskeiði í uppeldis- og kennslufræðum fyrir slíka kennslukrafta, svo þeir mættu uppfylla tilskild- ar kröfur. Háskólinn hefur á að skipa fjölda manna við kennslu sem ekki hefur lært kennslu- fræði sérstaklega en þar er talin mikil þörf á leiðbeiningaþjónustu og fyrirgreiðslu á sviði kennslutækni fyrir kennaraliðið í heild, jafnvel þótt viðkomandi aðilar búi yfir frábærri vís- indalegri og faglegri þekkingu tiltekins starfs- sviðs. 1 tímariti HFÍ, tölubl. nr. 4 1973, á bls. 127, ritar Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deildarstjóri, eftirfarandi: „Á undanförnum tveim árum liafa svo til allar deildir Hjúkrunarfélagsins leitað til okkar í heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu varðandi sérnám í hjúkrun. Þetta eru stjórnir geðhjúkrunarkvenna, röntgenhjúkrun- arkvenna og skurðstofukvenna, að mestu þeir hópar, er átt hafa kost á sérnámi hér á landi innan sjúkrahúsa. Erindi þeirra var, að komið verði á reglum um sérnám þeirra og að námið verði aukið, sérstaklega bóknámið. Það verði samræmt meira en nú er og þeim verði veitt viðurkenning að námi loknu.“ Svo er mál með vexti að lagalega er heimilt að koma á stofn ýmiskonar fræðslu utan hins formlega menntakerfis landsins. Svo sem gef- ur að skilja getur mjög misvel tekist um að samræma einstaka þætti slíkrar fræðslu við stærri heildir, svo og að skapa aðhald um gæði og afköst viðkomandi fræðslueininga. Stundum hefur óformleg starfsþjálfun orðið upphaf ann- ars meira, venjulega vegna mikillar þarfar á að greiða götu sérmenntunar sem fræðsluyfir- völd hafa lítt eða ekkert sinnt urn á sínum veg- um. Svo fer þó oft um síðir að fræðsluyfirvöld- in hefjast handa um að útvega fjárveitingar og aðra fyrirgreiðslu, en þá — því miður — ekki alltaf í æskilegri samvinnu við þá aðila sem brautryðjendastarfið hafa unnið við erfiðar að- stæður, orðið reynslunni ríkari og gætu þar af leiðandi veitt margskonar leiðsögn og lið sem vert væri að þiggja. Af þessum sökum vil ég hvetja hjúlcrunarkonur og -menn, sem berjast vilja fyrir aukningu eigin menntunar hérlendis, aö þau beiti sér fyrir því aö hverskonar hjúkr- unarmenntun sem staöiö skal aö hérlendis sam- ræmist fræöslukerfinu í heild sem best, þar sem eftirlit meö gæöum og afköstum, ásamt viöur- kenningu prófvottoröa veröa sem best tryggö. Útvegun hæfra kennara til að annast kennslu á framhaldsstigi hjúkrunar er óhjákvæmilega eitt af því sem fræðsluyfirvöldum ber að stuðla að af fullum krafti og menntamálaráöuneytiö hefur einmitt fallist á aö styöja framgang náms- brautar í hjúkrun innan Háskóla Islands á þeim skilningsgrundvelli, aö þannig fái íslenzlcar hjúkrunarkonur og -menn bætta aöstööu og styttingu hins óhjákvæmilega hmga námstíma sem þarf til aö fullnægja inntökukröfum til hjúk'T'unarkennaranáms og annars hjúkrunar- framhaldsnáms, þar sem þaö telst best hverju sinni. Lengd hæfilegs starfsreynslutíma und- anfari slíku námi hlýtur að standa utan við sjálfan námstímann og kemur honum því ekki við. Hjúkrunarkona, sem útskrifast hefur frá Hjúkrunarskóla íslands eða frá Nýja hjúkrun- arskólanum, en sem skortir að nokkru á almenna undirstöðumenntun sem krafist er til háskóla- náms, veröur að bæta slíku undirstöðunámi við sig, ef hún vill stunda nám á háskólastigi. Slíkt tækifæri stendur til boða bæði hjá Mennta- skólanum við Hamrahlíð og Menntaskólanum í Reykjavík, e. t. v. víðar, enda færi vel á ef svo er. Ómögulegt er mér að koma auga á að slíkir einstaklingar í hjúkrunarstétt hafi nokkurt minnsta ógagn af, að aðrir, sem lokið hafa til- skildu stúdentsprófi, fái nú þegar að stunda nám í hjúkrunarnámsbraut Háskóla Islands nema síður sé. Þegar að því kemur að hjúkrunarkonur og -menn, sem lokið hafa B.S.-prófi í hjúkrun hér heima, fara að koma til íslands aftur frá er- lendu námi með M.S.-gráðu í hjúkrun upp á vasann, reiðubúnir að byggja upp betri hjúkr- unarþjónustu og nám, bæði grunnnám og fram- haldsnám, þ. e. innan þeirra marka, sem við- ráðanlegt er fyrir fámenna þjóð, án þess að hverfa frá kröfum um gæði og magn mennt- unar sem sæmir viðurkenndu framhaldsstigi, þá megum viö sannarlega gelöjast. Sú hjúkrun- arkennaramenntun sem íslenskar hjúkrunar- konur og -menn hafa aflað sér með framhalds- námi á Norðurlöndum á liðnum árum, er á marg- an hátt ágæt, einkum hin síðari ár, eftir að námstíminn hefur verið lengur í tvö námsár. Ekki er þó lengur viðunandi, að mati allmargra, að hafa ekki hlotið almenna undirbúningsmennt- un sem jafngildir undirbúningi til háskólanáms, þegar ætlunin er, að starfa sem hjúkrunarkenn- ari, hvar svo sem sjálft kennaranámið eða ann- að tilskilið framhaldsnám kann að verða stund- að.. Okkur er fullkunnugt um, að mikill fjöldi norrænna hjúkrunarkennara, ekki hvað síst starfandi við skóla, sem annast framlaaldsnám í hjúkrun, telja ómetanlegar, og raunar bráð- 84 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.