Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Blaðsíða 25
af vindverkjum og feitur mat-
ur getur stundum valdið óþæg-
indum einnig neysla áfengis og
þeir þurfa að varast óreglu í
mat, drykk og svefni o. s. frv.
Glutensnauður matur þarf
síður en svo að vera ólystugri
en annar matur. Því er mjög
gott að reyna að breyta matar-
æðinu á þann hátt að flestur
matur sé glutensnauður hjá
fjölskyldum sem eru með Coel-
iac sjúkling.
Glulcnsnault fæ«Ti.
Almennar ráðleggincjar.
Gluten er proteinefni í heil-
hveiti, hveiti og rúgmjöli og ber
því að forðast allar fæðuteg-
undir með þeim.
MYND 1.
Barn með Coeliac sjúkdóm sem ekki
hefur hlotið meðferð.
Eftirfarandi fæðutegundir inni-
halda gluten og ber því að forð-
ast algjörlega.
Heilhveiti, hveiti, rúgmjöl,
bygggrjón.
Allar tegundir af brauði, kök-
um og kexi sem búnar eru til
úr þessum korntegundum.
Allar tegundir af mat sem í
er notað heilhveiti, hveiti og
rúgmjöl, t. d. blóðmör, lifrar-
pylsa.
Hrökkbrauð, Allbran, Weet-
abix, semolínugrjón.
Niðursoðnar súpur, pakka-
súpur og pakkabúningar,
nema vitað sé að eru gluten-
snauð. Lyftiduft, flestar teg-
undir.
Niðursoðið kjöt, pylsur, kjöt-
MYND 2.
Sama barn 5 mánuðum eftir að hafa
neytt glutensnauðrar fseðu.
deig, fiskdeig, fiskbúðingar.
Kakómalt, gervirjómi, marzi-
pan.
Sælgæti sem inniheldur glut-
en, s. s. lakkrís, Smarties.
Mars súkkulaði og flestar teg-
undir af fylltu súkkulaði.
Flestar tegundir af barna-
mjöli.
Niðursuðuvörur nema vitað sé
að eru glutensnauðar.
Súputeningar, flestar teg-
undir.
Eftirfarandi fæðutegundir inni-
haldct ekki gluten og má því
neyta að vild.
Kartöflumjöl, maísmjöl, hrís-
mjöl, sojabaunamjöl, hrís-
grjón, sagógrjón, kakó, hafra-
mjöl.
Maísflögur (Cornflakes),
hafrahringir (Cheerios), Rice
Krispies.
Egg, eggjaduft (custard
powder).
Mjólk og mjólkurafurðir.
Smjör, smjörlíki, olíur.
Kjöt, nýtt, saltað, reykt.
Fiskur, nýr, saltaður, reykt-
ur, þurrkaður, sardínur í olíu.
Grænmeti, ferskt, frosið, nið-
ursoðið í tærum vökva.
Ávextir, ferskir, niðursoðnir,
þurrkaðir, ávaxtasafar.
Gosdrykkir.
Aldinmauk, hunang.
Matarlím.
Pressuger, perluger, hjarta-
salt, matarsódi.
Kaffi, te.
Sykur, flórsykur, brjóstsykur.
Salt, pipar, karrý (flest
krydd).
Hreint súkkulaði.
ylkol onuria ( P.K.IJ.).
Phenylketonuria er efna-
skiptasjúkdómur, sem hægt er
að sjúkdómsgreina fljótlega eft-
ir fæðingu.
Talið er að í Evrópu sé 1 barn
af hverjum 10.000 til 20.000
með þennan sjúkdóm.
Orsök þessa sjúkdóms er en-
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 53