Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1975, Page 68
og skyldur starfsmanna ríkisins, öðlast gildi 1.
júlí 1954, og falla þá jafnframt úr gildi eldri
ákvæði, er brj óta kunna í bága við ákvæði henn-
ar.
LÖG
um ttrlof nr. »7/1 »71.
1. gr. — Allir þeir sem starfa í þjónustu ann-
arra gegn launum, hvort sem þau eru greidd í
peningu meða öðrum verðmætum, eiga rétt á
orlofi ásamt orlofsfé eða launum samkvæmt
reglum þessara laga.
2. gr. — Lög þessi rýra ekki víðtækari eða
hagkvæmari orlofsrétt samkvæmt öðrum lög-
um, samningum eða venjum.
Samningur um minni rétt til handa launþeg-
um en lög þessi ákveða er ógildur.
3. gr. — Orlof skal vera 2 dagar fyrir hvern
unninn mánuð á síðasta orlofsári og reiknast
hálfur mánuður eða meira sem heill mánuður
en skemmri tími telst ekki með. Það telst vinnu-
tími samkvæmt þessari grein þótt maður sé frá
vinnu vegna veikinda eða slysa meðan hann fær
kaup greitt eða hann er í orlofi. Sunnudagar
og aðrir helgidagar teljast ekki orlofsdagar.
Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.
U. gr. — Af orlofinu skal a. m. k. 21 orlofs-
dagur veittur á tímabilinu frá 2. maí til 15. sept-
ember. Ef orlof er skemmra en 21 dagur skal
það vera veitt í einu lagi á þessu tímabili. Af-
ganginn af orlofinu skal einnig veita í einu lagi
en það má veita á öðrum tíma árs.
1 vinnu við landbúnað og síldveiðar má veita
allt að helmingi orlofsins utan orlofstímabilsins.
Aðilar geta með samkomulagi vikið frá regl-
um þessarar greinar um skiptingu orlofs. Or-
lofi skal þó alltaf lokið fyrir lok orlofsársins.
5. gr. — Atvinnurekandi ákveður í samráði
við launþega hvenær orlof skuli veitt. Hann skal
verða við óskum launþega um hvenær orlof skuli
veitt, að svo miklu leyti sem unnt er vegna starf-
seminnar. Atvinnurekandi skal að könnun á
vilja launþega lokinni tilkynna, svo fljótt sem
unnt er og í síðasta lagi mánuði fyrir byrjun
orlofs, hvenær orlof skuli hefjast nema sérstak-
ar ástæður hamli.
6. gr. — Geti starfsmaður ekki vegna veik-
inda farið í orlof á þeim tíma sem vinnuveit-
andi ákveður skv. 5. gr. skal hann sanna forföll
sín með vottorði sjúkrasamlagslæknis síns eða
héraðslæknis. Getur starfsmaður þá krafist or-
lofs á öðrum tímum en ákveðið er í 4. gr. en þó
ekki síðar en svo, að orlofi hans sé lokið fyrir
31. maí næstan á eftir.
Geti starfsmaður ekki vegna veikinda farið í
orlof fyrir þann tíma á hann rétt á að fá orlofsfé
sitt greitt ef hann sannar veikindi sín á sama
hátt og að ofan greinir.
7. gr. — Atvinnurekandi skal greiða í orlofs-
fé 8l/s% af launum.
Nú er kaup greitt með fæði, húsnæði eða öðr-
um hlunnindum og greiðist þá orlofsfé af verð-
mæti þess sem miðast við mat skattayfirvalda
við síðustu ákvörðun tekjuskatts.
Eigi skal reikna orlofsfé af gi'eiðslum sem
ekki eru tekjuskattsskyldar hjá orlofsþega. Sama
gildir um orlofslaun og orlofsfé.
Krafa um greiðslu orlofsfjár er forgangskrafa
í dánar- eða þrotabú atvinnurekanda til jafns
við kröfur þær sem um ræðir í 83. gr. b. 5. lið
skiptalaganna, nr. 3 12. apríl 1878.
8. gr. — Fastur starfsmaður fær laun í orlofi
í stað orlofsfjár, auk þess eftir atvikum fæði,
húsnæði og önnur hlunnindi eftir mati skv. 2.
mgr. 7. gr.
Nú skiptir fastur starfsmaður um starf ein-
hvern tíma á orlofsárinu og ber þá að greiða
honum orlofsfé í stað orlofslauna á því orlofs-
ári öllu.
Laun fyrir orlofsdaga skulu greidd næsta
virkan dag áður en orlof hefst.
9. gr. — Nú liggur atvinnurekstur niðri, á
meðan á orlofi stendur, vegna þess að starfs-
fólkinu er veitt orlof samtímis og geta þá þeir
launþegar sem ekki eiga rétt á fullu orlofi ekki
krafist launa eða orlofsfjár fyrir þá daga sem
á vantar.
10. gr. — Félagsmálaráðherra setur reglur
um útreikning orlofsfjár launþega sem ekki taka
laun beint frá atvinnurekanda sínum heldur fá
greitt í þjónustugjaldi eða á annan hátt sem er
frábrugðinn venjulegum greiðslumáta launa.
11. gr. — Orlofsfé skal greitt á þann hátt að
tryggt sé að launþeginn fái það í hendur þegar
hann tekur orlof. Félagsmálaráðherra setur
reglugerð um þetta atriði í samráði við Alþýðu-
samband Islands, Vinnuveitendasamband Is-
lands og Vinnumálasamband samvinnufélag-
anna.
12. gr. — Óheimilt er manni að vinna fyrir
launum í starfsgrein sinni eða skyldum starfs-
greinum meðan hann er í orlofi og má setja um
þetta nánari ákvæði í reglugerð.
13. gr. — Framsal orlofsfjár og flutningur
þess á milli orlofsára er óheimilt.
Orlofsfé sem orlofsþegi hefur ekki tekið út
innan árs frá lokum orlofsársins rennur í líf-
eyrissjóð orlofsþega sem aukaiðgjald af hans
hálfu til sjóðsins. Um réttindi sem slíkar ið-
gjaldagreiðslur veita fer eftir reglum hlutaðeig-
andi sjóðs.
14. gr. — Kröfur á hendur vinnuveitendum
92 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS