Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1976, Blaðsíða 36
bæði af opinberum aðilum og sjálf-
boðaliðum, svo sem heimsendingu
máltíða o. fl.
Þessi nauðsyn á samræmingu og
samstarfi hljómaði mjög kunnug-
lega í mín eyru, þar sem Þór Hall-
dórsson yfirlæknir lagði einmitt meg-
ináherslu á þetta atriði í erindi, sem
hann flutti á vegum Reykjavíkur-
deildar R.K.I. í Domus Medica á s.l.
vori, og sem skýrt hefur verið frá í
fjölmiðlum hér.
1. ÖLDRUNARDEILD
(Geriatric department)
Stobhill General Hospital
Þetta er ein hinna mörgu deilda
Stobhill General Hospital, sem er
háskólaspítali, eins og áður sagöi.
A deildinni eru rúmlega 60 rúm og
er henni skipt í tvennt — kvenna- og
karladeild.
Líkt og tíðkast á mörgum enskum
spítölum, sérstaklega þeim eldri, eru
salarkynni mjög stór, þannig voru
þarna rúmlega 30 rúm í hvorum sal.
Oft er þörf á að hafa konur og karla
í sama sal, og eru þá notuð tjöld sem
milligerðir. Yfirleitt er þörf á fleiri
rúmum fyrir konur en karla og er
hlutfallið 2%:1.
Enda þótt salarkynni væru þarna
gamaldags á okkar mælikvarða, virt-
ist búnaður deildarinnar nýtískuleg-
ur og handhægur. Áberandi var hvað
rúm voru hentug — hækkuð og lækk-
uð að vild til viðbótar við hækkun
og lækkun til höfða og fóta. Mikið
var um hverskonar hjálpartæki, sem
hafa að sögn reynst mikill léttir við
hjúkrunina.
Innlagnir
Enda þótt beiðni um innlagnir
komi frá heimilislæknum sjúkling-
anna, er þó yfirleitt enginn sjúkling-
ur lagður inn fyrr en læknar deildar-
innar hafa sjálfir skoðað hann. Þetta
er að sjálfsögðu aukið álag á lækna
deildarinnar og krefst j afnframt fleiri
70
lækna en ella væri, ef þessar vitjanir
væru ekki.
Lœknaskipan er annars sú sama og
tíðkast á öðrum deildum, þ. e. yfir-
læknir, aðstoðarlæknar og kandidat-
ar, auk ráðgefandi lækna frá öðrum
deildum, eins og venja er á deilda-
skiptum sjúkrahúsum.
Hjúkrunarþörf
Af viðtali við hjúkrunarfólk deild-
arinnar mátti ráða, að hjúkrunar-
þörf á öldrunardeild væri mikil.
Æskilegt er talið, að hlutfallið milli
hjúkrunarfólks og sjúklinga sé 1:1^4
(sj.). Þessu er þó hvergi fullnægt,
enda hjúkrunarþörf á breskum spít-
ölum almennt ekki fullnægt a. m. k.
ekki um þessar mundir.
Meirihluti hjúkrunarfólks á þess-
ari deild voru sjúkraliðar.
Eins og áður sagði er þessi deild
kennsludeild, eins og aðrar deildir
spítalans. Hjúkrunarnemar eyða
hluta af námstíma sínum á deildinni
og sama er um læknastúdenta.
Kennslustundir læknastúdenta eru
sambærilegar að fjölda við aðrar
sérgreinar (svo sem augn-, eyrna-,
nef- og hálslækningar o. s. frv.), eða
um 20-30 fyrirlestrar að viðbættum
klínískum stundum. Læknar í sér-
námi í öldrunarfræðum eru að hluta
á slíkri deild og sama er að segja um
lækna í öðru sérnámi, svo sem lyf-
lækningum.
Naumast þarf að taka fram, að
öldrunardeildin nýtur allrar sömu
þjónustu frá stoðdeildum spítalans
(Rtg, rannsóknarstofum o. s. frv.)
eins og aðrar deildir spítalans. Þessu
til viðbótar er sérstök rannsóknar-
eða vísindadeild þar sem öldrunin
sjálf er rannsökuð. Loks ber að geta
þess, að öldrunardeildin er í sam-
bandi við langlegudeild (continuing
treatment beds), þegar ekkert annað
en langlega bíður sjúklingsins vegna
hrörnunar. Aðgangur að slíkri deild
er ekki einasta nauðsynlegur, heldur
alger forsenda þess, að öldrunardeild-
in geti gegnt hlutverki sínu, þ. e. að
vera rannsókna- og lækningadeild
fyrir aldrað fólk.
II. DAGSPÍTALI
Victoria Geriatric Unit
Þessi nýi og nýtískulegi dagspítali
fyrir aldrað fólk tók til starfa í des.
1971, en byggingarframkvæmdir við
hann hófust í sept. 1969. Hann ligg-
ur á fögrum stað - á hæð — með góðu
útsýni yfir Glasgow-borg og nágrenni.
Han er skammt frá Victoria spítalan-
um (Victoria Infirmary), sem er
deildaskiptur spítali, og er raunar
hluti þess spítala svo sem hvað
stjórnun snertir. Á spítalanum eru
64 rúm. - Að frátöldum 4 einbýlis-
stofum, eru 4 rúm í öllum öðrum
sjúkrastofum. Stofurnar eru allar
bæði bjartar og rúmgóðar, og allur
búnaður virtist mjög fullkomin. 0-
þarft er að minnast sérstaklega á
matsali, dagstofur, móttöku, þar sem
aðbúnaður allur er góður eins og við
er að búast á nýjum spítala. Hins
vegar er ástæða til að geta um sér-
lega vel búnar þjónustudeildir, eins
og sjúkraþjálfunardeild (physiothe-
rapy), föndurdeild (occupational
therapy), deild fyrir tannþjónustu,
og þá ekki síst deild fyrir talæfingar
(speech therapy).
Athyglisvert fannst mér, að
þarna var sérstakt eldhús, þar sem
sjúklingum var leiðbeint um val á
hollu mataræði og þeim bent á ýmis
hjálpartæki, sem hentug væru við
matargerð. Þarna var líka gengið úr
skugga um, að hve miklu leyti sjúk-
lingar væru færir um að matreiða
fyrir sig sjálfir.
Eins og nafn spítalans - dagspítali
(day hospital) gefur vísbendingu um,
er hér um að ræða spítala þar sem
sjúklingarnir eru vistaðir daglangt.
Þeir koma að morgni kl. 9-10 og
dveljast til 4-5 síðdegis og njóta á
þessum tíma þeirrar meðferðar, sem
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS