Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1978, Blaðsíða 12

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1978, Blaðsíða 12
Betra er seínt en aldrei I. þing norrænna svæfingahjúkr- unarfræðinga í Bergen, Noregi, 8.-11. júní 1977. Það er mi ekki seinna vænna, en að við ferðafélagarnir - Friðrikka Sig- urðardóttir, Guðrún Margeirsdóttir og Margrét Jóhannsdóttir - koinum því í verk, að segja frá þeim frábæru dögum, sem við eyddum saman hjá frændum okkar, Norðmönnum, í Bergen á liðnu ári. Annað væri synd og skömm og hreint vanþakklæti við þá einstæðu vinsemd sem okkur var sýnd. Að þetta hefur dregist svo úr hófi, er sennilega sú von okkar, að nú komi senn andagiftin yfir ein- hverja okkar - og svo fer það stund- um, að einhver treystir og trúir um of á annan, það sannast best á okk- ur. - Fyrirgefið málæðið og komum okkur að efninu. Dagana 8.-11. júní 1977 var haldið I. Þing norrænna svæfingahjúkrun- arfræðinga í Bergen í Noregi. Að- dragandi þess að við sóttum þetta þing, var að Svæfingahjúkrunarfélagi Islands barst bréf frá ALNSF „Anes- tesisykepleiernes Landsgruppe av Norsk sykepleierforbund“ í gegnum Hjúkrunarfélag Islands, þar sem okkur var boðið að vera með í sam- starfi hinna norrænu félaga um fyr- irhugað þinghald. Var ákveðið í okk- ar félagi að svara þessu bréfi, sem Margrét Jóhannsdóttir gerði, þar sem hún gerði grein fyrir því, að vegna fámennis okkar og fjarlægðar hefðum við ekki fjárhagslegt bol- magn til að taka þátt í þessu sam- starfi að sinni, en værum aftur á móti þakklátar ef við fengjum að vita af fyrirhuguðu þingi, ef einhverjar úr okkar hópi vildu á eigin kostnað og hefðu aðstæður til, að taka þátt i þinginu. Margrét hafði einnig gert fyrirspurn á skrifstofu HFI um hvort nokkrir styrkir væru til, til að styrkja félaga til slíkrar ferðar, en svarið var neikvætt, þó annað kæmi upp á síðar. Þetta ættum við ef til vill að láta liggja milli hluta, það er orðið svo langt um liðið, en þeir sem vilja átta sig betur, geta litið í I. og III. tölubl. timarits Idjúkrunarfélags Islands 1977 og lesið um „Styrkveitingar“ og auglýsingu „þingsins“, nóg um það. „Svo lengi lærir sem lifir“. Guðrún og Margrét lögðu land undir fót þann 7. júní 1977 og voru komnar síðla dags til Bergen. Eftir að hafa bókað okkur inn á Fantoft Sommerhotel, sem er stúdenlagarður á veturna, og komið okkur fyrir á notalegu herbergi, fengum við okk- ur gönguferð um nágrennið, sem ei er í frásögur færandi, en þegar við komum inn aftur, biðu okkar gullfall- egir blómvendir frá Bergendeildinni, þar sem við vorum boðnar velkomn- ar og óskað ánægjulegra daga. Getur maður óskað sér nokkurs betra en svona vinsemdar? Það sama endur- tók sig þegar Friðrikka kom, en hún kom að morgni 8. júní frá Rubbe- 10 HJUKRUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.