Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1978, Page 27
húsi í Reykjavík. Það sem einkum réði því var að mun
ódýrara var að leggjast inn á sjúkrahús en áður og eins
hafði hagur fólks batnað. St. Jósepssystur höfðu áður
hjúkrað fólki í gamalli kirkju í Landakoti og eins
höfðu tvær þeirra dvalið á Fáskrúðsfirði og byggðu
þar sex rúma sjúkraskýli einkum ætlað frönskum skútu-
sjómönnum. Systurnar stunduðu einnig hjúkrun í
heimahúsum í Reykjavík.
í upphafi taldist Landakotsspítalinn rúma 40 sjúkl-
inga en vegna mikillar aðsóknar voru starfsfólksher-
bergi tekin undir sjúkrarými, þannig að árið 1911 eru
sjúkrarúm 60 og er það óbreytt til ársins 1931, en þá
teljast rúmin 70. Árið 1933 er byrjað að endurbyggja
St. Jósepsspítalann með viðbyggingu vestur úr gamla
sjúkrahúsinu. Reis það nýja sjúkrahús í tveimur aðal-
áföngum. Var hinn fyrri vígður 28. ágúst 1935 og
voru í honum 30 sjúkrarúm. Viðbyggingin var síðan
aukin og var sá áfangi tekinn í notkun 15. september
1950 sem íbúð systranna og annars starfsfólks og við
það vannst rými fyrir nýja sjúkradeild með 21 rúmi.
I íbúðum starfsfólksins var síðan komið fyrir 30 rúma
barnadeild 12. janaúr 1961. 1956 var byrjað á síðari
hluta viðbyggingar. Viðbygging þessi var austur úr
hinni fyrri. Þessi húshluti reis norðan bins gamla
sjúkrahúss. Nýja húsið var tekið í gagnið í áföngum
og voru fyrstu sjúklingarnir vistaðir 7. janúar 1962.
Síðan var smám saman flutt inn í nýja húsið og siðast
var flutt inn í skurðstofur sjúkrahússins 15. mars 1963.
Gamla sjúkrahúsið var siðan rifið 1964, en endurbygg-
ingunni lauk með því að á hluta hússtæðis gamla spítal-
ans var reist einnar hæðar hús fyrir skrifstofur spítal-
ans og voru síðast lagðar hendur að því verki í október
1966. Rúmatala sjúkrahúsins hefur verið skráð sem hér
segir:
1935-38: 100
1939^.9: 120
1950-59: 152
1960-61: 180
1. janúar 1977 keypti
systrunum.
1962 : 195
1963-64: 190
1965 : 185
1977 : 187
íkið Landakotsspítalann af
Arið 1935 er fyrsta íslenska hjúkrunarkonan ráðin
til Landakotsspítalans (eins og hann er nefndur í dag),
en St. Jósepssystur höfðu einar annast hjúkrun þar,
fram að þeim tíma. 1926 stofnuðu þær sjúkrahús í
Hafnarfirði og nunnur úr reglu Frans frá Assisí stofn-
uðu spitala í Stykkishólmi árið 1936. Segja má að
Hjukrun
25