Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1985, Page 9
í dag liafa hjúkrunarfræðingar 1
klst. í viku til eigin umráða. Hefur
sá tími ýmist verið notaður til
fræðslu eða til að sinna ákveðnum
verkefnum, sem tilheyra hjúkrun-
inni eða til þess að ræða sín á milli,
um það sem er efst á baugi hverju
sinni.
Þegar sjúkraliðarnir voru ráðnir á
skurðdeildina, sameinuðust hjúkr-
unarfræðingarnir um að útbúa
ákveðinn lista yfir verkþætti sem
þeir fengu beina tilsögn í, skiptu
nokkrir þessari tilsögn á milli sín;
einnig fengur þeir tíma hjá sýkinga-
varnahjúkrunarfræðingi Borgar-
spítalans. Þetta er lágmarkstilsögn,
en sjúkraliðar eru ekkert á skurð-
deild í sínu námi.
Mjög hefur vantað á skipulagða
kennslu fyrir hjúkrunarfræðinga,
sem ekki hafa sérnámið. Vonandi
rætist úr því. Eins er mjög áríðandi,
að sem fyrst verði skipulagt ákveð-
ið ferli, sem allir nýráðnir hjúkrun-
arfræðingar fara í gegn um á skurð-
deildinni.
— Er um að rœða eitthvert samstarf
við skurðlækna hvað varðar skipu-
lag hjúkrunarþjónustunnar á skurð-
deildinni?
Á síðasta ári var stofnuð „skurð-
stofunefnd“. En sæti í henni eiga
yfirlæknar hinna ýmsu sérgreina á
skurðdeild en þeir eru 7. Deildar-
stjórar skurðdeildar, svæfingadeild-
ar og hjúkrunarframkvæmdastjóri.
Þessi nefnd kernur saman einu sinni
í mánuði og var stofnuð til þess að
endurskoða skiptingu sérgreina á
skurðstofur deildarinnar og að
skipuleggja og endurskoða starfs-
reglur skurðdeildarinnar í heild. Ég
er mjög ánægð með þessa sam-
vinnu. Mikil og fjölþætt starfsemi
fer fram á skurðdeildinni. Svo það
er mikilvægt að samstarf og starfs-
reglur séu góðar og skýrar. Von-
umst við til að þetta hafi jákvæð
áhrif á starfsemina í heild þegar
hægt verður að framfylgja því sem
búið er að vinna að. Nefndin mun
vinna áfram að uppbyggingu skurð-
deildar og takast á við mál líðandi
stundar.
— Er nauðsynlegt að hafa hjúkrun-
arfræðinga á skurðdeild að þínu
mati eða væri hægt að komast af
með tæknimenntaða stétt?
Það er nauðsynlegt að hafa hjúkr-
unarfræðinga á skurðdeild.
Þeir bera ábyrgð á hjúkrun og
„steriliteti".
Þeir stjórna, leiðbeina og kenna
hjúkrunarliðinu ásamt ýmsu öðru.
Ég held líka að það sé hægt að nýta
tæknimenntað fólk í ýmiskonar
ákveðin störf á skurðdeild. Fólk
sem uppfyllir ákveðnar kröfur og
hefur fengið ákveðna kennslu.
— Hvað finnst þér helst vera til
ráða til þess að bæta úr skorti á
hjúkrunarfræðingum á skurðdeild?
Þrátt fyrir áhuga „skurðstofunefnd-
ar“ um skipulagningu á aðgerðar-
listum gengur illa að halda „pro-
grammi dagsins" innan dagvinnu-
tíma. Ég held að það sé ekki hægt
að horfa framhjá því að vegna þess
vinnuálags sem er á skurðdeild
Borgarspítalans þarf mönnun
hjúkrunarfræðinga að miðast við að
unnið sé á vöktum.
Til að byrja með hef ég mikinn
áhuga á að koma á kvöldvakt
þannig að alltaf séu tveir skurð-
hjúkrunarfræðingar og 1 svæfinga-
hjúkrunarfræðingur á kvöldvakt
ásamt „vaktinni“.
Með því er líklegra að fólk losni á
réttum tíma eftir dagvinnu. Enn
hefur þetta ekki tekist. Hægt er að
ráða hjúkrunarfræðinga á fastar
kvöldvaktir ef einhver hefur áhuga,
en eins og ég sagði þá hefur það
ekki tekist þrátt fyrir auglýsingar.
Alltaf má eitthvað betrumbæta
skipulag almennt sem gæti stuðlað
að betri vinnustað, en til þess þarf
helst að vera nokkuð rétt mönnun
samfellt um tíma svo það sé fram-
kvæmanlegt.
Vinnuaðstaða og geymslupláss fyrir
utan skurðstofurnar var orðið mjög
aðþrengt og hindraði starfsemina.
Unnið hefur verið að umbótum
sem ekki eru endanlegar í dag.
Bæta þær m. a. geymslu á „steril-
um" Iager sem gerir það mögulegt
að hafa t. d. meira af verkfærum
pökkuðum, sótthreinsuðum og til-
búnum til notkunar. Fyrirhugað er
að pökkun og sótthreinsun á svo-
kölluðu grænu skurðtaui verði flutt
á Dauðhreinsunardeild Ríkisspítal-
anna, Tunguhálsi, nú í febrúar ’85.
Við það opnast möguleiki á aukinni
þjónustu Sótthreinsunardeildar
Borgarspítalans við skurðdeild. En
það léttir á störfum hjúkrunarfræð-
inga á skurðdeild og minnkar
e. t. v. yfirvinnuna eitthvað.
Umfang starfseminnar og fjöldi sér-
greina valda því að á skurðdeildinni
eru framkvæmdar margvíslegar að-
gerðir. Þetta hefur aukist hin síðari
ár. í dag er 1 deildarstjóri og 1 að-
stoðardeildarstjóri eins og verið
hefur alla tíð. Mér finnst álagið á
deildarstjóra vegna fyrrnefndra
atriða og alls þess sem honum er
ætlað að sinna vera orðið allt of
margþætt og þungt. Ofan á þetta
bætist að deildarstjóri og aðstoðar-
deildarstjóri taka vaktir og hlaupa í
skarðið þegar vantar hjúkrunar-
fræðinga á skurðstofur. Held ég því
að það sé tímabært að dreifa
ábyrgðinni og þá ákveðnum þáttum
á fleiri hjúkrunarfræðinga.
Æskilegt er að meiri fræðsla fari
fram. Það gæti e. t. v. laðað að
hjúkrunarfræðinga. Eins finnst mér
að hj.nemar ættu að fá lengri tíma á
skurðdeild í sínu námi heldur en er
í dag. Nauðsynlegt er að sem fyrst
verði lagðar ákveðnar línur í sam-
bandi við sérnám í skurðhjúkrun.
Fram að þessu hefur það verið
fremur óljóst.
Nú í haust mun fara af stað í Nýja
hjúkrunarskólanum sérnám í
skurðhjúkrun ef næg þátttaka verð-
ur.
Ég er sannfærð um að við erum að
vinna okkur upp úr þessum erfið-
leikum í sambandi við skor á
hjúkrunarfræðingum á skurðdeild.
Ása
HJÚKRUN >■'As - 61. árgangur 7