Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1985, Qupperneq 29
Endurmenntunarnámskeið
Landspítalinn ráðgerir að halda endurmenntunar-
námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga í september nk.
Námskeiðið verður tvíþætt. Fyrstu tvær vikurnar
verður bókleg kennsla og sýnikennsla, þar sem
kynntar verða ýmsar nýjungar í hjúkrunarfræði. Síð-
ari tvær vikurnar verður verkleg þjálfun á deildum
spítalans.
Helstu námsþættir: heilbrigði, sjúkdómar, hjúkrunar-
ferlið, streita, aðlögun, sársauki, sýkingar, vökva- og
blóðgjafir, lyfjagjafir, sársmeðferð, hjarta- og öndun-
arstopp o. fl.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
29000.
Frá Ljósmæðraskóla íslands
Kennsla hefst í Ljósmæðraskóla íslands 2. septem-
ber 1985.
Inntökuskilyrði eru próf í hjúkrunarfræði.
Umsóknir sendist skólastjóra Ljósmæðraskóla ís-
lands fyrir 1. júní nk. ásamt prófskírteinum og heil-
brigðisvottorði.
Umsóknareyðublöð fást í skólanum.
Nánari upplýsingar eru veittar í skólanum á mánu-
dögum frá kl. 9°°-1600og fimmtudögum kl. IS^-lö00.
Reykjavík, 15. febrúar 1985.
Skólastjóri.
Námsstyrkur 3-M Nursing Fellowship
Hér með er auglýstur til umsóknar „3-M Nursing
Fellowship", námsstyrkur, er alþjóðasamtök hjúkr-
unarfræðinga, ICN, úthluta árlega, en styrkirnir eru
veittir af fyrirtækinu Minnesota Mining and Manu-
facturing Company, Bandaríkjunum.
Bandaríska fyrirtækið Minnesota Mining and Manu-
facturing Company hefur frá árinu 1969 veitt árlega
tvo 6000 dollara styrki til hjúkrunarfræðinga til fram-
haldsmenntunar, en ICN úthlutar styrkjunum.
Frá árinu 1982 eru styrkirnir þrír og upphæð hvers
styrks 7.500 dollarar.
Hvert aðildarfélag ICN hefur rétt til að senda eina
umsókn. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu HFÍ.
Umsóknir berist stjórn HFÍ fyrir 15. ágúst 1985.
Engin umsókn fór frá okkur árið 1984, en þeir ís-
lenskir hjúkrunarfræðingar sem sótt hafa um styrkinn
hafa fengið 200 dollara viðurkenningu, sem allar
hæfar umsóknir fá. Enginn íslenskur hjúkrunarfræð-
ingur hefur enn hlotið styrkinn.
Félagsmálanámskeið fyrir
hjúkrunarfræðinga
Félagsmálanámskeið á vegum Reykjavíkurdeildar
HFÍ var haldið 28. og 30. maí og 4. og 6. júní sl.
Annað námskeið verður svo haldið síðar ef næg þátt-
taka fæst.
Tilkynningar um þátttöku þurfa að berast skrifstofu
HFÍ, þar verða einnig veittar nánari upplýsingar.
Þetta er þitt tækifæri til að leggja grunn að meira og
betra félagsstarfi.
Stjórn Reykjavíkurdeildar HFÍ
Ráðstefna í gjörgæsluhjúkrun
Deild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga vill vekja athygli á
alþjóðlegri ráðstefnu í gjörgæsluhjúkrun, sem haldin
verður í Haag í ágúst 1986.
Þetta er önnur slík ráðstefna, sem haldin er; sú fyrsta
var í Lundúnum árið 1982 og sóttu hana átta íslensk-
ir hjúkrunarfræðingar.
Nánar verður sagt frá ráðstefnunni í blaðinu síðar á
þessu ári.
Fulltrúafundur SSN
á fslandi SSN
Næstkomnandi haust, dagana 10., 11. og 12.
september verður haldinn hér á landi fulltrúafund-
ur Samvinnu norrænna hjúkrunarfræðinga
(SSN), en slíkir fundir eru haldnir einu sinni á ári,
til skiptis á Norðurlöndunum. Umræðuþemafund-
arins verður: Menntun hjúkrunarfræðinga, staða
og ábyrgð með tilliti til þróunar heilbrigðismála á
Norðurlöndum. Kröfur varðandi menntun hjúkrun-
arfræðinga eru nokkuð misjafnar í löndunum.
Fyrir fundi þessa er ákveðnum aðila falið að ann-
ast undirbúning þess efnis sem lagt er til grund-
vallar umræðunum. Að þessu sinni er það dansk-
ur hjúkrunarfræðingur sem annast efnisöflun og
hlaut hún til þess styrk SSN, kr. 10.000 - norskar,
sem úthlutað er árlega. Fundinn sækja um 100
manns.
Samvinna norrænna hjúkrunarfræðinga (SSN)
var stofnuð árið 1920. Félagsmenn eru samtals
um 200.000 hjúkrunarfræðingar. Innan samtak-
anna á sér stað víðtækt samstarf um málefni
hjúkrunarfræðinga.
Stjórn samtakanna skipa formenn norrænu hjúkr-
unarfélaganna.