Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1985, Side 45
DAVÍÐ GÍSLASON, læknir
Hvað er Medic Alert?
-----------------
MEDIC ALERT
AÐGÁT VEGNA SJÚKDÖMS
Þetto merki
9®ti bjorgoð
líffi þínu
Medic Alert á íslandT
_ Sigtúnl 9, 105 Reykjavik. Sími- 3 34 oo
“KSK undir v*™0
Þann 30. janúar sl. var stofnuö í
Reykjavík sjálfseignarstofnunin
Medic Alert á íslandi. Medic Alert
er stofnað að frumkvæði Lions-
hreyfingarinnar á íslandi, en með
aðild nokkurra sjúklingafélaga, sem
sérstakan áhuga hafa á þjónustu
Medic Alert.
Medic Alert er alþjóðleg hreyfing,
sem starfar í 17 löndum í fimm
heimsálfum. Aðalstöðvar alþjóða-
hreyfingarinnar eru í Turlock í
Kaliforníu, þar sem Medic Alert
var stofnað 1956 af lækninum
Marion C. Collins. Þrem árum áður
hafði dóttir hans orðið fyrir slysi og
misst meðvitund. Henni var gefin
stífkrampasprauta, sem hún hafði
ofnæmi fyrir, lá við, að það kostaði
hana lífið.
Tilgangur Medic Alert er að útbúa
og starfrækja aðvörunarkerfi fyrir
sjúklinga, sem af einhverjum ástæð-
um gætu veikst þannig, að þeir yrðu
ófærir um að gera grein fyrir veik-
indum sínum og þar af leiðandi átt
á hættu að fá ranga meðferð, líkt og
kom fyrir dóttur Marion Collins,
eða að rétt meðferð dragist úr
hömlu.
Könnun, sem gerð var í Bandaríkj-
unum 1962, sýndi að fimmti hver
Bandaríkjamaður hafði sjúkdóm,
þar sem aðvörunarkerfi á borð við
Medic Alert gat komið að gagni í
vissum tilvikum.
Aðvörunarkerfið er
þrenns konar
A. Gerðar eru málmplötur fyrir
armbönd eða hálsmen, merkt
Medic Alert á annarri hlið en á
hinni hliðinni eru þrykktar upp-
lýsingar um sjúkdóm eða
hættuástand sjúklingsins og
símanúmer vaktstöðvar, þar
sem allar nauðsynlegustu upp-
lýsingar um heilsufar sjúklings-
ins eru geymdar. Einnig eru á
málmplötunni upplýsingar um
HJÚKRUN >■Mu - 61. árgangur 39