Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1985, Qupperneq 46
þjóðerni sjúklingsins og Medic
Alert númer hans.
B. Árlega eru gerð eða endurnýjuð
nafnspjöld með fullkomnari
upplýsingum en komast fyrir á
málmplötunni, t. d. um aðra
sjúkdóma, sem máli skipta,
lyfjameðferð, nafn og síma-
númer þess læknis, sem með-
höndlar sjúklinginn.
C. Starfrækt er vaktstöð allan sól-
arhringinn, þar sem nauðsyn-
legar upplýsingar eru geymdar
um sjúklinginn, svo sem heilsu-
far hans, lyfjameðferð, nafn
og símanúmer ættingja og lækn-
is. Læknir vaktstöðvarinnar
er ætíð reiðubúinn að veita
þær upplýsingar, sem þörf er á,
ef slys eða skyndileg veikindi
ber að höndum, t. d. á ferðalög-
um erlendis.
í spjaldskrá vaktstöðvarinnar
eru menn skráðir undir Medic
Alert númeri sínu. Því er aðeins
hægt að veita upplýsingar gegn
framvísun þessa númers. Petta
hindrar að óviðkomandi aðilar
eigi aðgang að upplýsingum
vaktstöðvarinnar.
Kostnaður vegna hringinga í
vaktstöðina verður greiddur af
Medic Alert.
Medic Alert á íslandi
Hugmyndina að stofnun Medic
Alert á íslandi átti Björn Guð-
mundsson í Lionsklúbbi Kópavogs.
Hann hreyfði þessari hugmynd á
fundi í klúbbnum 11. febrúar 1981,
en það ár var hann fulltrúi Norður-
landanna í alþjóðastjórn Lions.
Undirbúningur að stofnun Medic
Alert hér á landi tók því fjögur ár.
Alþjóðahreyfing Medic Alert veitir
hverri deild fyrir sig starfsleyfi.
Uppbygging deildanna er ákaflega
mismunandi eftir löndum, en allar
þurfa þær að uppfylla ströng skil-
yrði um traustan félagslegan og
fjárhagslegan bakhjarl, sem á að
tryggja starfsemina um ókomin ár.
Hér á landi ber Lions-hreyfingin
stærsta ábyrgð á Medic Alert, en öll
félög sem gerast aðilar að Medic
Alert munu bera ábyrgð á rekstri
þess í hlutfalli við þau stofnframlög
sem greidd eru. Stofnendur Medic
Alert kjósa hver um sig einn full-
trúa í fulltrúaráð og einn til vara.
Fulltrúaráðið kýs síðan tvo menn í
stjórn og tvo varamenn, en Lions-
hreyfingin skipar þrjá menn í
stjórnina. Mun stjórnin sjá um dag-
legan rekstur stofnunarinnar, en
allar fjárhagslegar skuldbindingar
og aðrar meiriháttar ákvarðanir eru
háðar samþykki fulltrúaráðsins.
Starfsemi Medic Alert hér á landi
verður með þeim hætti að umsókn-
areyðublöðum verður dreift á
sjúkrahús, læknamóttökur, apótek
og til sjúklingafélaga. Einnig munu
allir Lions-klúbbar landsins fá þessi
umsóknareyðublöð. Þeir sem hafa
áhuga á að njóta verndar Medic
Alert fylla út persónuupplýsingar
eyðublaðsins en láta lækni sinn fylla
út þann hluta, sem fjallar um sjúk-
dóminn og meðferð hans. Ekki er
það skilyrði að um sjúkdóm sé að
ræða. Þannig má hugsa sér, að þeir
sem bera snertilinsur vilji vekja á
því athygli með Medic Alert merki,
því veröi þeir fyrir slysi og missi
meðvitund geta augun skaðast séu
snertilinsurnar ekki fjarlægðar.
Einnig má hugsa sér að menn vilji
bera Medic Alert merkið eingöngu
til þess að þeir séu auðkenndir, ef
eitthvað skyldi koma fyrir þá.
Skrifstofa Medic Alert er í Lions-
heimilinu Sigtúni 9, Reykjavík. Á
skrifstofunni eru málmplöturnar
útbúnar og Medic Alert skírteinin
útfyllt. Vaktstöðin verður á Slysa-
varðstofu Borgarspítalans. Á
hverju ári verður Medic Alert
skírteinið endurnýjað og þess gætt
að endurnýja upplýsingarnar á
vaktstöðinni, ef þess gerist þörf. Á
þennan hátt á að tryggja að upplýs-
ingarnar á vaktstöðinni séu alltaf
réttar og komi að fullum notum.
Erfitt er að gera sér nákvæma grein
fyrir því, hversu mikið þátttaka
hvers einstaklings muni kosta. í
Bandaríkjunum er notkunartími
hvers merkis að meðaltali þrjátíu
og fjögur ár, en það þarf að endur-
nýja Medic Alert skírteinin eins
lengi og merkin eru í notkun.
Ákveðið er að merkishafarnir sjálf-
ir greiði kostnaðarverð fyrir þátt-
töku í Medic Alert. Er gjaldið mið-
að við Bandaríkjadali og ákveðið
að það verði sem svarar 15 dölum
fyrsta árið. Upplýsinga- og auglýs-
ingakostnaður verður greiddur af
frjálsum framlögum.
Á vegum Medic Alert mun starfa
sérstök ráðgjafarnefnd. Hennar
verkefni verður fyrst og fremst að
koma upplýsingum um Medic Alert
til þeirra starfsstétta sem best þurfa
að þekkja til þess, t. d. heilbrigðis-
stétta, lögreglu, slökkviliðsmanna
o. fl.
Nokkur umræða hefur orðið um
nafnið Medic Alert. Að vonum
hljómar það illa í eyrum margra að
heyra erlent nafn með ókunna
merkingu. Þeir sem undirbjuggu
stofnun Medic Alert hér á landi
ræddu þetta oft sín á milli. Niður-
staðan varð þó sú, að mikilvægara
væri að nafnið Medic Alert festist
mönnum vel í minni heldur en að
finna því góða þýðingu á íslensku.
Reynslan frá öðrum þjóðum hefur
sýnt, að Medic Alert merkið eitt sér
hefur gefið sjúklingum aukna
öryggiskennd. Það hefur mikla
þýðingu að merkið sé vel þekkt í
þeim löndum, sem íslendingar
ferðast mest til. Á umsóknareyðu-
blaðinu eru talin upp þau lönd þar
sem Medic Alert er nú starfandi.
Island er fyrst Norðurlandanna til
þess að stofna Medic Alert samtök.
Islenskir Lions-menn hafa beitt sér
fyrir því við Lions-menn á hinum
Norðurlöndunum, að Medic Alert
stofnunum verði einnig komið á fót
þar. Þetta mun að sjálfsögðu hafa
mikla þýðingu fyrir íslendinga
vegna þess hversu mikið þeir ferð-
ast til þessara landa. □
40 HJÚKRUN '■- 61. árgangur