Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1985, Blaðsíða 51
Fréttir — Fréttir — Fréttir — Fréttir
Á námskeiði austfirskra
hjúkrunarfræðinga
„14. maí lauk á Eiðum námskeiði
er stjórn Austurlandsdeildar
Hjúkrunarfélags íslands gekkst
fyrir. Þátttakendur og leiðbeinend-
ur voru starfandi hjúkrunarfræð-
ingar og ljósmæður víðs vegar af
Austurlandi.
A námskeiðinu var einkum fjallað
um hjúkrun hjartasjúklinga, Iyfja-
gjafir öldrunarsjúklinga og hjúkrun
almennt. Að sögn Þuríðar Back-
man, formanns Austurlandsdeildar
Hjúkrunarfélags íslands, var einnig
fjallað um heimahjúkrun á nám-
skeiðinu - svo og heimilishjálp
aldraðra. Það var samdóma álit
þátttakenda - að sögn Þuríðar - að
efla þurfi þá þjónustu til muna enda
sé hún víða af skomum skammti og
ábótavant. Þá lögðu þátttakendur
námskeiðsins þunga áherslu á náið
samspil þessara þátta, þ. e. heima-
hjúkrunar og heimilishjálpar.
Þetta er í þriðja skiptið sem aust-
firskir hjúkrunarfræðingar efna til
námskeiðahalds á Eiðum - og hafa
námskeið þessi þegar sannað gildi
sitt. ,,Með þessum hætti kynnast
hjúkrunarfræðingar á Austurlandi
persónulega og þurfa ekki að sækja
kostnaðarsama endurmenntun jafn
oft og ella til Reykjavíkur.
Að sögn Þuríðar Backman er til-
finnanlegur skortur á hjúkrunar-
fræðingum á Austurlandi - og eru
léleg launakjör sjálfsagt einn or-
sakavaldur þess.
Stjórn Austurlandsdeildar Hjúkr-
unarfélags íslands situr nú á Egils-
stöðum en flyst milli staða skv.
ákveðnum reglum. Næst mun
stjórnin t. d. sitja á Seyðisfirði. For-
menn deilda Hjúkrunarfélags Is-
lands víðs vegar um land mynda
síðan stjórn HFI. r-i
Tímarit um félagsráðgjöf
og félagsmálastefnur
— Nordisk Socialt Arbeid, er fag-
tímarit félagsráðgjafa á Norður-
löndum. Fagfélagið í hverju Norð-
urlandi á sinn fulltrúa í ritstjórn
tímaritsins. Ritnefndir starfa síðan í
hverju landi, en aðalbækistöð rit-
stjórnarstarfsins er í Osló. I ís-
lensku ritnefndinni sitja Sævar B.
Guðbergsson, Nanna K. Sigurðar-
dóttir og Sigrún Júlíusdóttir, sem er
ritstjóri.
-Tímaritið, sem býður upp á efni
varðandi stefnur og strauma á sviði
félagsmálaþjónustu á erindi til
allra, sem starfa á félagsmálasviði
eða láta sig varða félagsstörf og
félagsmálastefnur. Einkum eru það
félagsráðgjafar og samstarfsstéttir
þeirra, stjórnendur stofnana og fé-
lagsvísindamenn, stjórnsýslu- og
stjórnmálamenn.
- Tímaritið kemur út fjórum sinn-
um á ári. Það inniheldur greinar um
rannsóknarverkefni, yfirlitsgreinar,
umræðugreinar og bókakynningar.
í hverju hefti er fjallað um sérstakt
svið. Öll löndin leggja fram sinn
skerf til greiningar á félags- og
efnahagsástandi á Norðurlöndum
og á framtíðarmöguleikum skjól-
stæðinga og félagsmálastarfsfólks.
Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Júlíusdóttir,
Geðdeild Landspítalans, E-1
Landspítalinn, 105 Reykjavík
Sími: Vs. 29000, Hs. 21428
Leiðrétting
Forsíðumynd 3.-4. tölublaðs 1984
var gjöf frá Bimu Gunnarsdóttur, til
starfsfólks gjörgæsludeildar Borg-
arspítala en ekki Landsspítala, eins
og misritaðist í blaðinu.
HJÚKRUN biður velvirðingar á
þessum mistökum.
Stjórn Austurlandsdeildar Hjúkrunarfélags íslands, frá vinstri: Þuríður Backman, formaður,
Margrét Gunnarsdóttir og Anna Guðný Árnadóttir. - MorgunblaðiðlÓlafur.
■ r mÆm
þ H mmé v liðv’
ÍM HyjjjQt %■■■
HJÚKRUN ' -2/fo - 61. árgangur 45