Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1985, Page 55
Fréttir — Fréttir — Fréttir — Fréttir
Séð yfir fundarsalinn. Tv. Jóna Valg. Höskuldsdóttir hjúkrunarfrœðingur. Fyrir aftan hana
situr Inge Kemp Genefke yfirlœknir. Lengst til hcegri er eiginmaður Inge, Peter Kemp, lektor í
heimspeki við Kaupmannahafnarháskóla. - Ljósm.: Ingibjörg Árnadóttir.
Hvers vegna er fólk pyntað?
Heimspekideild Háskóla íslands
gekst fyrir fyrirlestrahaldi um pynt-
ingar, föstudaginn langa og laugar-
daginn fyrir páska sl. Gestafyrirles-
ari var Inge Kemp Genefke yfir-
læknir „Rehabiliteringscenter for
torturofre“, en hjálparstöð þessi er
fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
Markmið stöðvarinnar er að hjálpa
og endurhæfa fólk sem hefur verið
veitt pyntingum, víðsvegar að úr
heiminum, og leitast við að gera
þessa einstaklinga og fjölskyldur
Inge Kemp Genefke, yfirlœknir.
þeirra færa um að lifa nokkum veg-
inn eðlilegu lífi.
Við spurðum Inge Kemp Genefke
hver tilgangurinn væri með slíkum
pyntingum?
„Mikil brögð em af því að fólk sé
pyntað í pólitískum tilgangi. Ekki er
ætlunin að safna upplýsingum,
heldur að brjóta niður sterka per-
sónuleika, sem oft em í fararbroddi,
þora að láta skoðanir sínar í ljós og
berjast fyrir þeim.
Það kemur mun betur út fyrir ráða-
menn að framkvæma slíkt niðurbrot
en taka viðkomandi af lífi. Því við
aftöku rísa oft upp samtök fylgis-
manna fómarlambsins. Þama er
komið í veg fyrir það. Slíkt niður-
brot kemur einnig niður á allri fjöl-
skyldu einstaklingsins, svo höggið
er stórt“ sagði taugasérfræðingurinn
Inge Kemp að lokum.
Hjónin hafa sjálf lagt fram stórfé til
endurhæfingarstöðvarinnar.
Nánar verður skýrt frá starfseminni
í næsta blaði.
Það var Páll Skúlason, lektor, við
heimspekideild Háskóla íslands
sem stjómaði þessum fræðsludög-
um. .
Ingibjörg Árnadóttir.
SOS Talisman-nisti
SOS-nistið inniheldur alþjóðlegan
upplýsingastrimil með áprentuðum
skýringum á sex tungumálum. Inn á
hann skal færa allar helstu persónu-
upplýsingar, ennfremur upplýsingar
um blóðflokk og hugsanlega sjúk-
dóma, lyfjanotkun og lyfjaofnæmi.
Þessar upplýsingar geta komið að
ómetanlegu gagni til hjálpar við slys
og sjúkdóma - ætíð þegar krafist er
skjótra og réttra viðbragða og hinn
slasaði getur ekki tjáð sig.
Landssamband Hjálparsveitar skáta
sér um innflutning og dreifingu
SOS-nista á íslandi með samþykki
landlæknis, sem lýst hefur ánægju
sinni með þetta framtak.
LHS vill beina þeim tilmælum til
hjúkrunarfræðinga að þeir leiti eftir
SOS Talisman-nisti á úlnlið og
hálsi, þegar komið er með bráðsjúka
og slasaða til meðferðar og aðgæti
hvort nistið gefi upplýsingar sem að
gagni megi koma við meðhöndlun
viðkomandi sjúklings.
Hvert SOS-nisti ber númer, sem
einnig á að vera ritað á upplýsinga-
strimilinn. Þótt hann sé fjarlægður
við komu sjúklings til meðferðar á
ekki að koma til ruglings, þótt fleiri
handhafar SOS-nista séu til með-
ferðar samtímis.
Sé frekari upplýsinga þörf, erúm við
reiðubúin að veita þær.
Gunnar H. Ingimundarson.
HJÚKRUN 1 - 61. árgangur 49