Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Side 31

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Side 31
Fréttir frá Alþjóðasambandi hjúkrunarfræðinga - ICN FULLTRÚAÞING ICN Fulltrúaþing Alþjóðasambands hjúkrunarfræðinga (ICN) var lialdið í Harare í Zimbabwe 16. - 21. september sl. Af 112 aðildarfélögum ICN sóttu fundinn fulltrúar 55 félaga hjúkrunarfræðinga að þessu sinni. Asta Möller, formaður, sat fundinn f. h. Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Ákveðið var að senda fulltrúa héðan til að meta stöðu íslands innan samtakanna, gagnsemi aðildar, möguleika íslenskra hjúkrunarfræðinga á virkri þátttöku í starfi ICN og til að mynda tengsl við forystumenn samtaka hjúkrunarfræðinga á alþjóðavettvangi. Fundurinn var tvfskiptur. Fyrstu dagana voru undirbúningsfundir með óformlegu sniði en hina síðari hið eiginlega fulltrúaþing ICN sem haldið er annað hvert ár og fer með æðsta ákvörðunarvald ICN. í skýrslu formanns frá fundinum kemur fram að eftirfarandi málefni voru tekin til umfjöllunar á undirbúnings- fundunum: 1. Hlutverk fag-og stéttarfélaga hjúkrunarfræðingafélaga. 2. Framkvæmda- og fjárhagsáætlun ICN. 3. Skipulag og stjómun ICN. Ásta Möller kvaddi sér hljóðs í umræðum um vægi atkvæða innan ICN og kynnti sjónarmið norrænu hjúkrunar- félaganna þar að lútandi. Hingað til hefur reglan „eitt land, eitt atkvæði“ gilt. Það þýðir t.d. að 70 hjúkrunarfræðingar í Mónakó eiga jafnmörg atkvæði og 250.000 bandarískir hjúkmnarfræðingar eða eitt atkvæði á fulltrúaþinginu. Ásta mælti fyrir liugmyndum um breytt vægi atkvæða en niðurstaðan var eftir heitar umræður að breyta ekki þessari reglu. Ásta tók einnig þátt í umræðum um hlutverk félaga hjúkmnarfræðinga og lagði áherslu á styrk samtaka hjúkrunarfræðinga. Á fulltrúaþinginu sjálfu vom fjölmargar samþykktir gerðar og hefur þeim verið dreift til nefnda, svæðis- og Frá fulltrúafundinum í Zimbabwe, taliðfrá vinslri: Ásta Möller, Margaretta Madden Styles, formaður ICN, Mireille Kingma, ráðgjaft hjá ICN, og Laila Dávoy, formaður norska félagsins og nýbakaður formaður SSN. fagdeilda félagsins. í óformlegum viðræðum þingfulltrúa vom hafnar viðræður um formannsskipti hjá ICN en M.M. Styles, núverandi formaður, gengur úr stjórn árið 1997. Rætt var um að spænski formaðurinn hefði áhuga en margir hvöttu einnig Kirsten Stallknecht, formann danska félagsins, til að bjóða sig fram. Niðurstöður Ástu eftir að hafa sótt þingið eru eftirfarandi: 1. Þrátt fyrir fámenni íslenskra hjúkmnarfræðinga er Félag íslenskra hjúkmnarfræðinga 33. fjölmennasta félagið af 112 aðildarfélögum ICN. 2. Starfsemi ICN er í háum gæðaflokki og hefur á að skipa mjög hæfu starfsfólki. Oll gögn em vel unnin og möguleikar fslenskra hjúkmnar- fræðinga til að nýta sér hugmyndir þaðan eru miklir. 3. íslenskir hjúkmnarfræðingar hafa mikið að bjóða í alþjóðlegu starfi en þurfa að vera vakandi fyrir tækifæmm sem bjóðast. Ásta leggur til að unnið verði að því að tilnefna fulltrúa frá íslandi í stjórn ICN fyrir fulltrúaþingið 2001, sem verður haldið í Kaupmannahöfn. ÞR Vettvangsheimsókn MIREILLE KINGMA Alþjóðasamband hjúkrunarfræðinga (Intemational Council of Nurses- ICN) var stofnað í London árið 1899. Félag íslenskra hjúkmnarfræðinga er eitt aðildarfélaga sambandsins, en Hjúkrunarfélag Islands hafði verið aðildarfélag ICN frá árinu 1933. ICN styður með ýmsum hætti við starfsemi aðildarfélaganna, m.a. með upplýsinga- miðlun um ýmis málefni hjúkmnar. Samtökin leggja mikla áherslu á að efla tengsl aðildarfélagana innbyrðis, en einnig tengsl samtakanna við einstök aðildarfélög. J þeim tilgangi koma fulltrúar samtakanna í vettvangs- heimsóknir til aðildarfélaga með vissu núllibili. í ár var röðin komin að íslandi að fá slíka heimsókn og sótti Mireille Kingma, hjúkrunanáðgjafi hjá ICN, lsland heim dagana 11.-13. október sl. Með heimsókninni vildi ICN kynna sér sérstaklega aðferða- og hugmyndafræði við sameiningu fyrmm félaga hjúkrunarfræðinga í eilt félag, stöðu hjúkmnar og hjúkrunarfræðinga á íslandi, stöðu launamála hjúkmnar- fræðinga og einnig markmið og starfsáætlanir félagsins. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga ræddi sérstaklega við fulltrúa ICN um möguleika íslenskra hjúkrunarfræðinga til aukins samstarfs á alþjóðlegum vettvangi. Auk formlegra viðræðna við félagið hélt Mireille Kingma opinberan fyrirlestur um Alþjóðasamband hjúkrunarfræðinga á vegum félagsins og námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands, en einnig sótti hún Landsspítalann heim til að kynna sér vinnuaðstöðu og vinnuaðferðir hjúkrunarfræðinga þar. Það er skemmst frá því að segja að heimsókn fulltrúa ICN til íslands var afar gagnleg fyrir félagið og ánægjuleg fyrir alla aðila. ICN mun skila skýrslu um heimsókn Mireille Kingma til íslands og mun Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fá umsögn ICN til umfjöllunar. ÁM TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 4. tbl. 71. árg. 199.c 137

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.