Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Síða 37

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Síða 37
formaður SSN, talaði um SSN og alþjóðlega samvinnu. Hún álítur að ef SSN á áfrani að geta unnið að framþróun heilbrigðiskerfa Norðurlanda þá verði það að vera aðili að alþjóðlegum samtökum á borð við ICN. í erindi hennar kom fram að SSN nýtur virðingar innan ICN og að kjör Inger Ohlsson frá Svíþjóð sem fyrsta varaformanns ICN hafi verið stór sigur fyrir Norðurlönd. Þá benti hún sérstaklega á mikilvægi þess að SSN í heild sinni hafi áheyrnar- fulltrúa innan fastanefndar um málefni hjúkmnar innan Evrópusambandsins (PCN). Þjóðirnar, sem gengnar eru í Evrópusambandið, þ.e. Svíar, Danir og Finnar, munu eiga sína fullgildu fulltrúa innan PCN en þjóðir utan sambandsins, þ.e. Norðmenn og íslendingar, munu fá sinn áheymarfulltrúa í gegnum SSN. Samþykkt hefur verið að áheyrnar- fulltrúinn verði fyrst um sinn frá Noregi. Seinni dagurinn hófst á því að Björgulv Froyn, aðalritari Nordens Fackliga Samorganisation, velti því fyrir sér hvort norræn samvinna ætti sér einhverja framtíð. Síðan voru pallborðsumræður og sat Ásta Möller, formaður Félags íslenskra hjúkmnarfræðinga, þar fyrir íslands hönd, Kirsten Stallknecht fyrir Danmörku, Britta Unneby, varaformaður sænska félagsins, fyrir Svíþjóð, Tuula Öhman, fyrrverandi formaður, fyrir Finnland, Laila Dávpy fyrir Noreg og Björgulv Froyn. í pallborðsumræðunum kristallaðist vilji aðildarfélaga SSN til áframhaldandi samstarfs. í framsögu sinni skýrði Ásta frá afstöðu íslenskra hjúkmnarfræðinga til SSN. Margir þeiiTa þekktu ekki til starfa SSN vegna þess að þeir hefðu svo nýlega GÁTA Hvað er það sem flestar konur fá, yfirleitt einu sinni í mánuði, og sem þær hafa síðan í u.þ.b. eina viku? (Svarið er á hvolfi neðst á síðunni). junB"! :njB§ qia aBAg Kirsten Stallknecht hefur tilkynnt að hún muni ekki gefa kost á sér sem formaður Dansk Sygeplejerád aftur. Hún hefur verið formaður DSR síðan 1968 og formaður SSN 1989 -1995. Danskir hjúkrunarfræðingar kjósa því nýjan formann í maí 1996. tengst samstarfinu. Þessi hópur léti ekki sannfærast um ágæti samstarfsins nema hægt væri að sýna fram á gildi þess. Hún varpaði fram spurningu um hvort SSN væri farið að snúast of mikið um pólitík og of lítið um fagið. Hún benti á að þó að SSN legði þróunarstarfi lið í fjarlægum löndum mættu norrænir hjúkmnar- fræðingar ekki gleyma að líta sér nær. Það væri t.d. þekkt staðreynd að heilbrigðisástand væri slæmt á Grænlandi. Ásta sagðist álíta að umhyggjan fyrir sjúklingnum ætti að vera hornsteinn samtakanna. Það sé mikilvægt að peningar, sem félögin leggja til samstarfsins, skili sér í betri hjúkrunarþjónustu. Onnur framsöguerindi fjölluðu um laun hjúkrunarfræðinga, þátttöku heilbrigðisstarfsfólks í opinberri umræðu um heilbrigðisþjónustu og hvort breyta eigi SSN úr ópólitísku félagi í pólitískt félag. Umræður vom líflegar og snémst m.a. um það hvernig norrænir hjúkrunarfræðingar gætu best kynnt störf sín á alþjóðlegum vettvangi. I því sambandi var rætt um tungumála- erflðleika, bæði innan SSN og út á við. Að pallborðsumræðum loknum fóm fram formleg formannaskipti þar sem Laila Dáv0y, formaður norska félagsins, tók við formennsku SSN af Kirsten Stallknecht en hún hefur gegnt formennsku í samtökunum frá 1989. Laila Dáv0y ætti að vera mörgum íslenskunt hjúkrunarfræðingum kunn því að hún ávarpaði stofnfund Félags íslenskra hjúkumarfræðinga 15. janúar 1994 fyrir hönd SSN. ÞR RÁÐSTEFNA UM KJÖR HJÚKRUNARFRÆÐINGA Á NORÐURLÖNDUM Ráðstefna um kjör hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum verður haldin á fslandi 17.-18. september 1996 á veguni Samvinnu hjúkmnarfræðinga á Norðurlöndum (SSN). Ráðstefnan verður haldin á Scandic Hótel Loftleiðum og munu hjúkrunarfræðingar og starfsmenn hjúkrunarfélaga á Norðurlöndum sækja þessa ráðstefnu. Þessa dagana er unnið að undirbúningi og er m.a. í tenglum við þessa ráðstefnu stefnt að því að gefa út rit um kjör hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum. Hér að neðan er yfirlit yfir helstu umfjöllunarefni ráðstefnunnar. 1. Vinnuumhverfi h júkrunarf ræðinga A. Hvað ræður launum á vinnumarkaði hj úkrunaifræði nga? - Hefur samkeppni um vinnuafl hjúkrunarfræðinga áhrif á laun, staifskjör og vinnuumhverfi hjúkrunarfræðinga? B. Launaákvarðanir teknar á viðkomandi vinnustöðum eða launaákvarðanir teknar í miðstýrðum kjarasamningum. — Áhrif á laun og starfsumhverfi hj úkmnarfræði nga - Áhrif á stöðu og starf stéttarfélaga 2. Hvernig geta hjúkrunarfræðingar nýtt sér jafnréttislög, jafnlaunastefnu og starfsmat i kjarabaréttu? 3. Kjarabarátta vs. siðareglur hjúkrunarfræðinga 4. Barátta fyrir bættum kjörum hjúkrunar- fræðinga - 1 Ivaða aðferðir eiga hjúkmnar- fræðingar að nota í kjarabaráttu? - Hafa verkföll hjúkrunarfræðinga skilað árangri f baráttu fyrir liættum kjörum? - Hvaða áhrif hefur kjarabarátta á fmynd hjúkrunarfræðinga? - Með hverjum eiga hjúkrunar- fræðingar að starfa í kjarabaráttu, einir og sér eða innan heildarsamtaka? VJ TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 4. tbl. 71. árg. 1995 143

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.