Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 48

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Blaðsíða 48
Fagdeild hjúkrunarfræðinga á sviði ENDURHÆFINGAR Ingibjörg Sig. Kolbeins Stofnfundur Fagdeildar hjúkrunar- frœðinga á sviði endurhœfmgar var haldinn að Reykjalundi að loknu málþingi sem hjúkrunarfrœðingar Reykjalundar stóðu fyrir. Stofnfélagar voru 63. Aðdragandinn að stofnun fagdeildarinnar var sá að hjúkrunar- fræðingar starfandi á hinum ýmsu deildum á sviði endurhæfingar höfðu lýst áhuga sínum og þörf fyrir stofnun slíkrar deildar. Þeim þótti þörf á aukinni fræðslu og þekkingu á endurhæfingar- hjúkrun. Þá var mikil þörf fyrir vitneskju um hjúkrunarviðfangsefni og hjúkrunar- meðferð á öðrum endurhæfingardeildum og stofnunum. Hjúkrunarfræðingar sáu nauðsyn þess að gera hjúkrunina sýnilegri í samstarfi við aðra faghópa og þörf á að efla virðingu og skilning annarra starfsstétta á hlutverki hjúkrunar í endurhæfingu. Forgangsverkefni fagdeildarinnar þetta fyrsta starfsár verða: • Að skilgreina hugmyndafræði endurhæfingar og hjúkrun innan hennar. • Að stofna og koma af stað vinnuhópum þar sem hjúkrunar- fræðingar með mismunandi áhugasvið innan endurhæfingar munu vinna að sameiginlegum verkefnum. Vinnu- hóparnir munu síðan kynna og taka til umfjöllunar niðurstöður verkefna innan fagdeildarinnar. Verkefnin geta verið allt frá athugunum á einstökum hjúkrunarviðfangsefnum endurhæfingar til stærri þróunarverkefna. Markmiðið er að fagdeildin verði þannig sameiginlegur vettvangur hjúkrunarfræðinga sem starfa við endurhæfingu til faglegrar umræðu, fræðslu og kynningar á rannsóknarvinnu. í stjórn fagdeildar hjúkrunar- fræðinga á sviði endurhæfingar sitja: Ingibjörg Sig. Kolbeins, endurhæfingar- og taugadeild Borgarspítala að Grensási, formaður, Ásta St. Thoroddsen, lektor við námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands, varaformaður, Helga Hinriksdóttir, deildarstjóri Reykjalundi, ritari, Jónína Hafliðadóttir, taugadeild Landspítala, gjaldkeri, Gunnhildur Valdimarsdóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsustofnunar NLFÍ Hveragerði, meðstjórnandi. Starfsreglur fagdeildar hjúkrunarfræðinga á sviði endurhæfingar 1. gr. Nafn fagdeildar er Fagdeild hjúkrunarfræðinga á sviði endur- hæfingar. Hún starfar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Heimili og varnarþing er í Reykjavík en umdæmið er landið allt. Lög Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru lög fagdeildar. 2. gr. Markmið fagdeildar hjúkrunarfræðinga á sviði endurhæfingar eru: • Að vera stjóm og nefndum Félags íslenskra hjúkmnarfræðinga til ráðgjafar í öllu því er snýr að endurhæfingarhjúkrun. • Að hafa áhrif á stefnumótun í heilbrigðismálum • Að bæta menntun í endurhæfingar- hjúkmn á íslandi og hvetja hjúkmnarfræðinga til að viðhalda og auka hæfni sína á þvf sviði. • Að stuðla að aukinni fræðslu um endurhæfingu og efla forvarnir. • Að hvetja til rannsókna í hjúkmn á sviði endurhæfingar, fylgjast með nýjungum og tileinka sér þær. • Að stuðla að tengslum við hjúkmnarfræðinga á sviði endurhæfingar í öðmm löndum. • Að stuðla að bættri þjónustu í endur- hæfingarhjúkmn í samstarfi við aðrar starfsstéttir. 3. gr. Aðild Félagar geta orðið allir hjúkmnar- fræðingar innan Félags íslenskra hjúkmnarfræðinga sem starfa á endur- hæfingar- og taugadeildum. Aðrir hjúkmnarfræðingar sem óska eftir aðild skulu sækja um inngöngu til stjómar fagdeildar hjúkurnarfræðinga á sviði endurhæfingar. 4. gr. Kosning Stjórn deildarinnar skipa 5 félagsmenn: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnandi. Stjóm deildarinnar skal kosin á aðalfundi og sitja tvö ár í senn, skulu 2 stjórnarmenn ganga út annað árið en þrír hitt. Einfaldur meirihluti ræður kjöri. 5. gr. Aðalfundur Aðalfundur skal haldinn í september eða október ár hvert. Aðalfund skal boða skriflega með tveggja vikna fyrirvara hið minnsta. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað. Dagskrá aðalfundar: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram. 3. Kosning stjórnar skv. 4. gr. 4. Kosning tveggja endurskoðenda. 5. Árgjald ákveðið. 6. Önnur mál. 6. gr. Starfsreglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og skulu skriflegar tillögur um breytingar á reglum berast stjórn eigi sfðar en einni viku fyrir aðalfund. Samþykkt 13. maí 1995 154 TÍMARIT IIJÚKRUNARFRÆÐINGA 4. tbl. 71. árg. 1995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.