Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Blaðsíða 16

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Blaðsíða 16
Guðbjörg Sveinsdóttir forstöðumaður Vinjar ugleiðíngar um vun. utan ktjþbwvJaimaa stofnana Hjúkrunarfræðingar verða, eins og aðrar stéttir sem tengjast heilbrigðisþjónustunni, að bregðast við og laga sig að breyttum þjóðfélagsaðstæð- um og nýjum áherslum í heilbrigðismálum. Aðlögunin er óhjákvæmileg vegna ytri breytinga og áherslu yfirvalda og stofnana. Oft skeður hún líka innra með okkur og jafnvel ómeðvitað og við viðurkennum eða sættum okkur við breytingar sem jafnvel stangast á við siðferðis- kennd okkar og hlutverk sem málsvara sjúklinga/skjólstæðinga okkar. Þannig geta mörk þess sem hægt er að sætta sig við í aðstæðum fólks færst til. Þarna á ég til dæmis við afleiðing- ar niðurskurðar og sparnaðar í geðheilbrigðis- málum á undanförnum árum. Þannig getur það færst til sem ásættanlegt þykir í aðstæðum fólks. Hjúkrunarfræðingar, og sérstaklega geðhjúkrunarfræð- ingar, hafa sérlega góð tækifæri til þess að átta sig á áhrifum aðstæðna fólks á heilsu þeirra og lífsgæði. Þunga- miðja allrar hjúkrunar eru samskiptin við skjólstæðinga og í geðhjúkrun er vægi þeirra oft enn meira þar sem nálgun og viðmót skipta sköpum við tengslamyndun og samband okkar við sjúklinginn. Við getum í litlum mæli stutt okkur við annað en okkur sjálf og verðum því að vera vel meðvit- uð um tilfinningar okkar, veikleika og styrk. Geðhjúkrun Hér á landi eru 58 hjúkrunarfræðingar með sérleyfi í geð- hjúkrun. Þrisvar sinnum hefur farið fram nám í geðhjúkrun í Nýja Hjúkrunarskólanum og einu sinni hefur framhaldsnám í geðhjúkrun í tengslum við námsbraut í hjúkrunarfræði verið í boði á undanförnum árum. Það nám gaf ekki sérfræðingsleyfi. Nú fá þeir einir sérfræðingsleyfi sem lokið hafa meistaragráðu í geðhjúkrun. Þar sem mikill skortur hefur verið á hjúkrunar- fræðingum á geðdeildum þyrfti að koma til annars konar menntun. Það þarf að mennta geðhjúkrunarfræðinga í stórum stH ef við eigum ekki að missa ákveðna þætti umönnunar úr 96 höndum okkar til annarra starfstétta. Og þá er of langt að bíða þess að allir verði komnir með meistaragráðu. Samkvæmt einni skilgreiningu á geðhjúkrun berum við meðábyrgð á að einstaklingar fái að lifa við fullnægjandi félagslegar aðstæður og erum skyldug til að benda á og hafa áhrif á þjóðfélagslegar aðstæður sem stefna heilbrigði í hættu. Á því verður oft misbrestur og orsakir þess eru fjölmargar svo sem þreyta og óhóflegt vinnuálag. Það er líka erfitt að gagnrýna opinbera kerfið um leið og maður tilheyrir því. Maður lendir milli steins og sleggju. Hér á landi hefur starfsvettvangur geðhjúkrunarfræðinga að mestu leyti verið inni á stóru geðdeildunum. í nágrannalöndum okkar hefur starfsvettvangur þeirra flust yfir til sveitafélag- anna (distrikt sykepleie), í heimahjúkrun, umsjónarhjúkrun (case management), félagsmiðstöðvar, athvörf og heilsu- gæslustöðvar. Við breyttar þjóðfélagsaðstæður og breytingar í með- ferð og við endurhæfingu geðsjúkra hér á landi búa nú æ fleiri þeirra utan stofnana. Þótt þeir eigi jafnan rétt og aðrir ■þjóðfélagsþegnar vill þar því miður verða misbrestur á. Margir kvarta yfir lélegri samhæfingu og samfellu í þjónust- unni, meðhöndlun er í höndum allt of margra, það skortir á fagleg vinnubrögð og sjúklingum og aðstandendum þeirra finnst þeir vera í félagslegu tómarúmi. Fá úrræði eru fyrir hendi nema félagsmiðstöð Geðhjálpar og athvarf Rauða krossins Vin en þangað komu að meðaltaii 27 manns á dag síðasta ár, 277 einstaklingar og gestakomur voru um 7000. Sýna þessar tölur að þörf er á stuðningi og slíkri þjónustu. Fátítt er að geðsjúkir séu á hinum hefðbundna vinnumarkaði, margir lenda í eins konar hringrás milli iðju- þjálfunar, verndaðra vinnustaða og starfsþjálfunar og geð- deildarinnar aftur. Iðjuþjálfunardeildir spítalanna eiga erfitt með að útskrifa sjúklingana vegna úrræðaleysis í þjónust- unni. Það er jákvætt að undanfarið hafa hugmyndir um úrræði fyrir utan hefðbundna þjónustu fengið meðbyr svo sem Klúbburinn Geysir sem sækir fyrirmynd sína í Guðbjörg Sveinsdóttir lauk hjúkrunarprófi frá HSÍ árið 1978 og námi í geðhjúkrun frá Bergen Noregi árið 1991. Hún er fyrrverandi formaður fagdeildar geðhjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga. Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 74. árg. 1998
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.