Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Blaðsíða 27

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Blaðsíða 27
þangað fer fólk stundum til hvíldar þegar það er búið að ganga endurtekið í gegnum meðferð. Dvölin á Ási gefur frí frá meðferð á Kleppsspítala í 2-3 ár. Hjúkrunarfræðingar göngudeildarinnar að Kleppi fara þangað vikulega til að sinna geðeftirliti. Göngudeild geðdeildar Landspítalans Björg Guðmundsdóttir, hjúkrunar- framkvæmdarstjóri á göngudeild geðdeildar Landspítalans, segir að þar fari fram öll þráðamóttaka. Einnig fer þar fram eftirmeðferð og hópur langveikra sjúklinga sækir þangað einnig stuðning og fær lyf og reglubundið eftirlit. Ef fólk veikist skyndilega fær það viðtal á þráðamóttökunni og í framhaldi af því er ákveðið hvort það þarf að leggjast inn eða ekki. Sumir fara heim aftur en koma reglulega í stuðningsviðtöl á göngudeild. Stöðuheimildir á deildinni eru 4 en starfandi eru 3 hjúkrunarfræðingar í 2,7 stöðugildum. Árið 1997 komu alls 2279 bráðatilfelli á deildina sem hjúkrunarfræðingar og læknar sinntu saman, 387 þeirra komu á dagvinnutíma en 1892 utan dagvinnutíma. Skipulagðar komur voru 2017. Hjúkrunarfræðingar göngudeildar gefa lyf, veita stuðn- ingsviðtöl, bráðaviðtöl, slökun og fara í vitjanir. Allir sjúk- lingar fá mat læknis á hvernig aðstoð það þarf og síðan er haft samband við viðkomandi fagaðila. Hjúkrunarfræðingar deildarinnar hafa áralanga þjálfun í að veita djúpslökun. Þeir leggja metnað sinn í að veita þá þjónustu þó mannekla sé á deildinni og meðferðin sé tíma- frek, u.þ.b. 1 klst. hvert skipti. Þannig komu 83 einstaklingar til þeirra í djúpslökun árið 1997. Samanlagt komu þeir 630 sinnum og mætti hver og einn í 35-204 skipti. Fólk sem kemur í stuðningsviðtöl á gjarnan í tímabundnum erfiðleik- um og djúpslökun hentar mörgum vel í þeim aðstæðum. „Sjúklingahópurinn hér er mjög fjölbreyttur og það er metið hverjir geta notfært sér þessa meðferð," segir Björg. „Með djúpslökun er m.a. hægt að bæta líðan og draga úr kvíða og spennu. Þannig getur djúpslökun dregið úr einkennum, hjálpað til með svefn og styrkt sjálfsmynd fólks. í þessu felst í raun sjálfsstyrkjandi vinna fyrir fólk.“ Björg segir að stöðugt megi hugsa sér eitthvað sem hægt væri að gera betur. Hún segir t.d. að æskilegt væri að geta veitt fólkið í tímabundinni kreppu markvissari þjón- ustu. Hún segir að fólk í kreppu þurfi ekki endilega að leggjast inn en þurfi hins vegar tíð viðtöl í afmarkaðan tíma. Þá segir hún einnig að mikilvægt væri að auka stuðning og meðferð fyrir fjölskyldur á deildinni en að til þess þyrfti meiri mannafla. Sjúkrahús Reykjavíkur Hvíta bandið Göngudeild geðdeildar Sjúkra- húss Reykjavíkur er á Hvíta band- inu á Skólavörðustíg. í húsinu er dagdeild fyrir um 20 langlegu- sjúklinga á 1. hæðinni, dagdeild fyrir 20-30 sjúklinga á annarri hæð og á þriðju hæð göngudeild þar sem læknar og hjúkrunar- fræðingar sinna göngudeildarsjúk- lingum sjúkrahússins. Þar fer einnig fram hópmeðferð sem byggir á kenningum sálgreiningar og hand- leiðsla fyrir starfsfólk sjúkrahússins, einstaklinga og fjöl- skyldur. Á 4. hæð hússins er loks listmeðferð.. Soffía Snorradóttir er hjúkrunardeildarstjóri á göngu- deild og dagdeildinni á annarri hæð hússins. Dagdeildin var opnuð í ágúst 1997 koma þeim ut í þjóðfélagið þar sem hann geti staðið á eigin fótum. Sjúklingarnir þar eru í yngri kantinum 19-50 ára. „Beiðni um meðferð á deildinni berst ýmist frá deild A-2 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur eða frá sérfræðingum úti í bæ,“ segir Soffía. Á deildinni er ástand sjúklinganna fyrst metið og svo er sett upp markviss virkniáætlun í samvinnu við þá. Jafnt og þétt er síðan met- ið hvernig miðar í átt að settu markmiði. Hver sjúklingur fylgir einstaklingsbundinni stundaskrá og haldin er viðveru- skrá. „Fyrir suma sem jafnvel hafa lengi snúið sólarhringn- um við er það heilmikið átak að þurfa að mæta einhvers staðar á réttum tíma,“ segir Soffía. Byrjað er á hópfundi á hverjum morgni og að honum loknum bíða mismunandi viðfangsefni. Ýmsir hópar eru starfræktir t.d. gönguhópur, sundhópur, hreyfingar- og slökunarhópur og menningar- hópur. Þá er í boði undirstöðukennsla á tölvur og frekari námskeið annars staðar í framhaldi af því fyrir þá sem hafa áhuga. Margir eru í iðjuþjálfun þar sem m.a. hefur verið unnið með keramik, endurunninn pappír og blómaskreyt- ingar. Sumir fara í skóla eða í vinnu og ef þörf krefur er þeim boðin fylgd á meðan þeir eru að venjast nýjum að- stæðum. „Við reiknum ekki með langri viðdvöl fólks hér hjá okkur. Þetta eru einstaklingar sem ætlar sér eitthvað og við setjum tímamörk í samvinnu við þá. Þegar meðferð lýkur geta þeir sótt stuðning hingað áfram í vikulega hóp- tíma," segir Soffía. Hún segir að hópmeðferð sé mikið notuð á deildinni þar sem hún hafi reynst vel og sé auk þess hagkvæm. Þá er töluvert lagt upp úr fræðslu ýmiss konar og vikulega eru fyrirlestrar t.d. um þunglyndi, sam- skipti, svefntruflanir og stuðning sem geðsjúkum stendur til boða í þjóðfélaginu. Björg Guðmundsdóttir Soffía Snorradóttir Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 74. árg. 1998 107
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.