Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Blaðsíða 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Blaðsíða 22
eiginmenn/sambýlismenn. Af þessu má leiða líkur að skiln- aður/sambúðarslit eru út af fyrir sig ekki nægileg trygging fyrir að ofbeldinu linni. Ofbeldið þróast oft á þann veg að það verður tíðara, alvarlegra og getur lyktað með dauða. Því lengur sem konur þúa við ofbeldið því meiri líkur eru á alvarlegum áverkum bæði líkamlegum og andlegum. [ gegnum árin hafa komið í Ijós atriði sem eru nokkur sameiginleg í and- legu ofbeldi: • Konurnar fara að líta á sig sem minna virði en aðra og að eitthvað sé athugavert við þær, e.t.v. að þær séu heimskar, Ijótar, vanhæfar á flestum sviðum og að fátt sem þær geri sé rétt eða viðeigandi. • Lífið einkennist af ótta, kvíða og tortryggni þar sem and- rúmsloftið á heimilunum er stöðugt hlaðið spennu m.a. vegna yfirvofandi „árása,“ sem þolendur reyna árang- urslaust að koma í veg fyrir. Það hefur alvarleg áhrif á líðan og heilsu að hafa litla sem enga stjórn á eigin öryggi á eigin heimili. Á vissan hátt eru því konurnar heimilislausar, þar sem þar er ekki lengur að finna öryggi, skjól og vernd. • Ruglun á raunveruleikaskynjun gerist þegar konurnar fara að efast um eigin upplifanir. Það sem þær skynja segja karlarnir að sé „öðruvísi" og að þeirra túlkun sé röng. Konurnar fara smám saman að halda að eitthvað verulega mikið sé að þeim, jafnvel alvarleg geðveiki. Stuðningur heilbrigðisþjónustunnar Ýmsar rannsóknir sýna að konur sem búa við ofbeldi leita marktækt meira í heilbrigðisþjónustuna en aðrar. Jafnframt er lyfjanotkun þeirra mun meiri og þá aðallega á geðdeyfð- ar-, svefn- og verkjalyfjum. Samkvæmt hugmyndum lækn^ isfræðinnar er tilhneiging til að líta á þá sem leita aðstoðar sem „sjúklinga" og fá þeir meðhöndlun sem slíkir. Konur sem búa við ofbeldi og leita aðstoðar í heilbrigðiskerfið £ eiga því á hættu að vera álitnar „sjúklingar" og með- höndlaðar sem. slíkar. Þar yfirsést því oft að einkennin sem þær hafa eru „heilbrigð" og „eðlileg" einkenni kvenna sem búa við óþolandi aðstæður - en ekki „sjúkdómar" sem beri að lækna og þá sé vandinn leystur. Einkennin sem konur leita aðstoðar við eru margskonar m.a. líkamleg einkenni eins og höfuðverkur, svefntruflanir, þreyta, al- mennt slen, ýmis stoðkerfiseinkenni, meltingaróþægindi, átröskun, og einkenni frá hjarta. Andlegu einkennin geta verið þunglyndi, kvíði, ótti, spenna, kynlífsvandamál, áráttu- þráhyggjuhegðun, áfengis- og lyfjamisnotkun og sjálfs- vígstilraunir. Einnig kemur víða fram að konur sem búa við ofbeldi leita mun oftar en aðrar konur með börn sín til læknis vegna heilsuvandamála barnanna. Ef eingöngu er beitt læknisfræðilegri sýn á vandamál kvennanna getur það þrengt verulega möguleika þeirra á að fá frekari raun- hæfa aðstoð. Einnig er töluverð hætta á að þær fari þá sjálfar að líta á sig sem „sjúklinga" með „sjúkdóma" og að 102 þeir séu rótin að því að þær búi við ofbeldi. Ef þetta gerist þá festast þær enn frekar í flóknu neti ofbeldisins, þar sem heilbrigðisstarfsfólkið er þá farið að styrkja þau skilaboð sem karlarnir senda þeim þ.e. að vandamálið sé að þær séu ekki „í lagi“ og allt verði gott ef þær „læknast". Þegar svo er komið er leiðin út úr ofbeldinu vandfundin og í besta falli gæti þá stuðningur heilbrigðiskerfisins verið gagnslaus. Góður stuðningur byggir á virðingu og jafnrétti, án ásakana, dómhörku og forræðishyggju. Tilgangurinn er að konurnar endurheimti sjálfsvirðinguna og stjórnina á eigin lífi og aðstæðum. Það gera þær m.a. með því að vera studdar til að átta sig sem best á stöðunni, við hvað þær hafi búið og hvaða valmöguleikar eru til að vinna sig út úr ofbeldinu. Mismunandi aðlögunarleiðir kvennanna Konur sem búa við ofbeldi þróa oftast með sér ákveðnar aðlögunarleiðir til þess að „lifa af“ og reyna að gera afleið- ingar ofbeldisins sem vægastar fyrir sig og börnin. Margar þeirra telja sig bera ábyrgð á ofbeldishegðun karlanna og reyna því að breyta eigin hegðun í samræmi við „óskir“ þeirra. Einnig eru þær oft meðvitaðar um að ábyrgðin er karlanna en telja að það sé á þeirra ábyrgð og valdi að breyta þeim. Konur se'm leita til Kvennaathvarfsins nefna ýmsar aðlögunarleiðir s.s. að fara inn í eigin ímyndunar- heim þar sem „allt er í lagi,“ reyna að „læra á“ karlana til reyna að afstýra því að þeir reiðist, ásaka aðra, telja að feðurnir - þó ofbeldisfullir séu - eigi rétt á að búa með fjölskyldum sínum, leita til læknis, nota áfengi ótæpilega, nota róandi lyf - geðdeyfðarlyf - svefnlyf, halda heimilun- um „óaðfinnanlegum," aðstoða aðra í þeirra erfiðleikum. Nokkuð er einnig algengt að konurnar eigi erfitt með að finna og skilgreina eigin þarfir og langanir. Ofbeldið hefur kennt þeim að það borgar sig ekki að hafa vonir og væntingar og því hafa þær ómeðvitað og meðvitað eytt þeim. Nauðsynlegt er fyrir konur að finna að stuðningsaðilar hafi skilning á þessum leiðum en dæmi þær ekki hugs- unarlítið sem „slæmar og óheilbrigðar," því það eykur enn á niðurlæginguna og vanmáttinn. Aldur kvennanna getur skipt máli Nokkuð er misjafnt eftir aldri hvað það er sem einkennir helst líf þeirra í ofbeldinu. M.a. samkvæmt reynslu af starfi í Kvennaathvarfinu þá eru oft viðkvæmustu konurnar, þær konur sem eru á barneignaraldri með ung börn. Þær eru oft illa haldnar af sektarkennd, kvíða og vanmætti um að geta ekki staðið sig sem mæður og verndað börn sín og veitt þeim viðunandi uppeldisskilyrði. Á móti geta þessar konur oft verið nokkuð fljótar að átta sig á því við hvað þær búa og þannig byrjað að vinna sig út úr ofbeldinu. Langfjölmennasti hópurinn, sem leitar sér aðstoðar í Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 74. árg. 1998
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.