Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Blaðsíða 7

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Blaðsíða 7
Guðný Anna Arnþórsdóttir makamissí Hræðsla við dauðann er sameiginleg öllum mönnum. Svo er og með sorgarviðbrögð og sorgarúrvinnslu. Rannsóknir hafa þó sýnt að aldraðir einstaklingar eru í meiri hættu en aðrir varðandi truflun á sorgarúrvinnslu. Mismunandi aðlögun eftir kyni hefur og verið til rannsóknar og svo virðist sem karlmenn séu í meiri hættu en konur varðandi andlega og félagslega röskun við makamissi. Mikil þörf er á frekari rannsókn- um á þessu efni til hagnýtingar við mat og um- önnun á öldruðum syrgjendum. Um dauðann og dauðahræðsluna Ceasar sagði: „Memento mori" eða „mundu að þú átt að deyja," en ein af þversögnum mannlífsins er að við mannfólkið reynum sífellt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að dauðinn sé hluti lífsins. Okkur stendur yfirleitt stuggur af því að hugsa um eigin dauða og notum ýmsar rökrænar og vitsmunalegar aðferðir til að skilja og eiga við hann. Freud (1955) sagði, „það er ógerningur fyrir okkur að ímynda okkur eigin dauða; ef okkur tekst það gerum við samt sem áður ráð fyrir, að við stöndum hjá til að skoða fyrirbærið. Því ættu meðferðar- og umönnunaraðilar að ganga út frá þeirri grunnstaðreynd, að enginn trúi í raun á eigin dauða, eða það sama sagt á annan hátt, að ómeðvitað séum við öll sannfærð um eigin ódauðleika." Dauðaótti mannanna er sennilega að stórum hluta nátengdur þvl sem kallað hefur verið hinn algildi ótti mannsins við hið óþekkta. Þegar grannt er skoðað, vitum við í rauninni ekki hvað dauðinn er, né heldur hvað eða hvort nokkuð gerist eftir hann. Eakes (1985) framkvæmdi rannsókn á tengslum dauða- hræðslu manneskjunnar og viðhorfi hjúkrunarfræðinga til aldraðra á öldrunarheimilum í Bandaríkjunum. Notaður var dauðahræðslumælikvarði Templers (Templer's Death Anxi- ety Scale). Niðurstöður voru á þann veg, að þeir hjúkrunar- fræðingar, sem haldnir voru mestri dauðahræðslu sýndu almennt neikvæðara viðhorf til aldraðra en þeir sem voru minna kvíðnir. Þetta er umhugsunarefni fyrir þá, sem sinna öldruðum og minnir okkur á nauðsyn þess, að hafa eigið gildismat og viðhorf sífellt til skoðunar hvar sem við vinnum. Mótsagnarkennd er sú staðreynd að reynsla af dauða og missi er hvorutveggja almennur og einstakur hluti mann- legrar reynslu. Reynslan er almenn í þeim skilningi, að allir verða einhvern tímann á lífsgöngunni fyrir sorg og missi en jafnframt einstök í þeim skilningi að sérhver hefur einstak- lingsbundinn persónuþroska sem endurspeglar einstætt lífshlaup sem aldrei verður endurtekið eða endursagt ná- kvæmlega eins. Um sorgina og sorgarviðbrögð almennt Sorg eða harmur er sálarástand, sem einkennist af tilfinn- ingalegum sársauka. Sorgarferlið vísar til reynslunnar af sorg- inni yfir ákveðinn tíma. Averill (1968) hefur skilgreint sorgar- ferli sem „margþætt viðbrögð, sálfræðileg og lífeðlisfræði- leg, sem orsökuð eru af missi, venjulega missi ástvinar." Averill og fleiri hafa bent á að í raun sé um tvo þætti að ræða sem séu sama fyrirbæri séð frá mismunandi sjónar- hornum. Þannig sé sorgin samsett úr lífeðlisfræðilegum, Guöný Anna Arnþórsdóttir lauk BS prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla islands 1977, kennslu- og menntunarfræði frá sama skóla 1979 og MS prófi í geðhjúkrun og stjórnun frá University of Colorado, Denver, 1995. Guðný Anna hefur verið hjúkrunarframkvæmdastjóri geðsviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur frá 1989 og jafnframt stundakennari við Há- skóla íslands. Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 74. árg. 1998 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.