Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Side 38
Gudrun Simonsen
Framhaldssaga - Björg Einarsdóttir íslenskaði
^tönna y\i4kt'in4i{U
- kxar vrtr nknV
13. kafli - Sögulok
EFSTU ÁRIN GETA VERIÐ ÞAU BESTU
Krímstríðið var án efa áhrifamesta tímbilið á ævi Florence
Nightingale, enda þótt síðar hafi ekki skort dramatíska við-
burði í líf hennar. Sjálf áleit hún tímann í Skutari mikilvægan
en ekki örðugasta skeið ævinnar.
Ákafinn var henni í blóð borinn. Það þurfti næstum að
beita hana valdi svo hún fengist til að taka sér hvíldar-
stund, gera smá hlé frá þeim erfiðu verkefnum sem hún
jafnan fann sér og var sjálf drifkrafturinn í. „Florence heldur
að hún geti snúið heiminum með handafli,” sagði Suther-
land læknir.
Það urðu margvísleg vonbrigði og oft sló í baksegl í þeim
umfangsmiklu opinberu aðgerðum sem hún barðist fyrir. En
henni auðnaðist líka að sjá árangur af störfum sínum, í það
minnsta að skynja breytingar og mál komust í betra horf.
Á Indlandi, sem stóð hjarta hennar nær, urðu framfarir
afar hægfara einkum fyrir íbúana. Austurlandabúum var það
lítt skiljanlegt og þeim fjarlægt að fást við málefni sem snertu
hollustu og heilbrigði. Fyrir þeim lá leiðin til betra lífs um
trúarbrögðin. Hreinlæti var að þeirra dómi í ætt við hjátrú.
Ef ég hefði getað verið þar sjálf hefðu máiin kannski
gengið hraðar fyrir sig. En ég varð að láta mér nægja þá
tilhugsun að hafa sáð frækorni til framfara og betra lífs.
Florence missti heldur aldrei alveg sjónar á hernum.
Svo síðla sem árið 1895, þegar hún var orðin sjötíu og
fimm ára, skrifaði hún yfirmanni í hernum meðal annars
eftirfarandi:
„Þú, þrjóturinn þinn, Sir Douglas, að þú skulir ekki hafa
látið mig vita að þú værir í Lundúnum svo ég gæti borið
upp við þig nokkarar brennandi spurningar: Fá herflokk-
arnir sem vinna að Kumassi-rannsókninni heilnæmt drykkjar-
vatn allan sólarhrínginn? Áfengisskammt aðeins sem lyf?
Er litið almennilega eftir fótabúnaði þeirra, skóm, sokkum
og stígvélum?
Enda þótt Florence yrði smám saman að sleppa hend-
inni af áhugamálum sínum rofnuðu aldrei tengsl hennar við
tölfræðina, sem nánast var ástríða hennar, „þýðingarmestu
grein vísindanna" eins og hún orðaði það. Hún var fullviss
um að samband væri á milli „Guðs laga” og „Guðs eðli’’ og
118
þeirrar vitneskju um samfélagið, gerð þess og aðstæður,
sem tölfræðin varpaði Ijósi á.
Fyrst og fremst verður það fólk sem ber ábyrgð á þjóð-
félaginu og stjórnar því að kunna að beita tölfræðinni til að
afla sér upplýsinga.
Hún sýndi fram á, með fjölda dæma, hvernig rannsaka
mætti skóla, vinnumarkaðinn og húsnæðismál hjá mis-
munandi þjóðfélagshópum eftir búsetu. Sjálf útfærði hún
oft og mörgum sinnum rannsóknir sem hún gat átt til að
senda vinum sínum niðurstöður af í jólagjöf:
„Kæri vinur! Hérna sendi ég stórkostlegt yfirlit sem ég
hef nýlega unnið um fátækrahverfin og undirheima Liver-
poolborgar ásamt tillögum til úrbóta. Átt þú eitthvað svip-
að að senda mér?"
Florence lagði sig mjög fram um að stuðla að því að
stofnuð yrði prófessorsstaða í tölfræði við Oxfordháskóla.
En hugmyndin var nýstárleg og fólki framandi og sjálf hafði
hún ekki orku til að berjast gegn þeim fordómum og hindr-
úpum sem stóðu í vegi fyrir því að þessi snilldarhugmynd
gæti orðið að veruleika.
Tölfræði, trúmál og heimspeki voru af sömu rót að mati
Florence. Hinir gömlu grísku heimspekingar og kristin sið-
fræði voru henni sífelld uppspretta til íhugunar og upp-
byggingar. Hún skrifar ungri frænku sinni sem er að hefja
framhaldsnám:
„Ég trúi á Guð. Hann er allt í öllu. En samt má ekki
gleyma hinum gömlu trúleysingjum Piaton og Askylosi..."
Florence Nightingale var trúaður dulspekingur sem alla
ævi sína var í nánu sambandi við Guðdóminn. Ekki væri
nokkur leið að þrengja henni inn í eitthvert tiltekið trúar-
samfélag eða kirkjudeild. Kreddur og ófrelsi hugans voru
henni víðs fjarri.
Eftir því sem árín liðu fann ég æ betur það sem ég hef
alltaf álitið vilja Guðs og lögmál:
Það mennska á að móta hið manneskjulega. Öllu
skiptir að nýta afl sitt og orku í þágu sköpunarverksins.
Síðasta opinbera baráttumál Florence var um 1890.
Á þremur áratugum hafði átján stórum sjúkrahúsum verið
komið á fót í Englandi og fjölda mörgum öðrum stofnun-
um, bæði innan lands og utan, sem voru undir forystu
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 74. árg. 1998