Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Síða 51

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1998, Síða 51
^imArorlof Ýmsar upplýsingar úr kjarasamningi til athugunar fyrir félagsmenn: Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl, þegar orlofsrétturinn er áunninn. Sumarorlofstímabil er frá 15. maí til 1. október. Taka orlofs: Yfirmaður skal ákveða, í samráði við starfsmenn, hvenær orlof skuli veitt. Hann skal að lokinni könnun á vilja starfsmanna tilkynna eins fljótt og unnt er, í síðasta lagi mánuði fyrir byrjun orlofs, hvenær orlof skuli hefjast (gr. 4.5.1). Starfsmenn eiga rétt á að fá a.m.k. 20 virka daga (160 vinnuskyldustundir) af orlofi sínu á sumarorlofstímabilinu. Lenging orlofs: Orlof sem tekið er að loknu sumarorlofstímabili lengist um 1/4 og sama gildir ef orlof er tekið fyrir sumarorlofstímabil að ósk vinnuveitanda (gr. 4.4.3). Veikindi í orlofi: Ef starfsmaður veikist í orlofi telst veikindatíminn ekki til orlofs, enda séu veikindin sönnuð með vottorði eins fljótt og við verður komið (gr. 4.6.1). Hafi starfsmaður ekki getað tekið orlof vegna veikinda frá þeim tíma er hann átti að taka orlof til loka þess orlofstökuárs, á hann rétt á að fá orlofslaun sín greidd. Frestun á töku orlofs: Heimilt er að fresta töku orlofs um allt að einu ári með samþykki yfirmanns. Ef starfsmaður ákveður, með samþykki yfirmanns, að fresta töku orlofs þá þarf hann að Ijúka því fyrir lok síðara orlofstökuársins. Ef starfsmaður tekur ekki orlof eða hluta af orlofi skv. beiðni yfirmanns síns þá geymist orlofið til næsta árs, eða þá ber að greiða honum yfirvinnukaup fyrir starf sitt þann tíma (gr. 4.7.2). Ef starfsmaður vinnur í stað þess að taka orlof skal hann fá stað- festingu þess efnis hjá sínum yfirmanni. Það er á ábyrgð yfir- manns að tilkynna launadeild, þegar hann hefur gefið samþykki sitt fyrr því að starfsmaður vinni í orlofi. Lengd orlofs Lengd orlofs í nýju launakerfi, þ.e. orlofs sem ávinnst á orlofs- árinu 1997-1998 fer eftir aldri. Lágmarksorlof eru tveir vinnudag- ar eða 16 vinnuskyldustundir fyrir hvern unninn mánuð í fullu starfi. Taflan hér að neðan sýnir áunnið orlof eftir aldri. Áunnið orlof / orlofsréttur: aldur vinnuskyldustundir á ári á mánuði vi'nnudagar á ári < 30 ára 192 16 24 30 ára 216 18 27 38 ára 240 20 30 Taflan sýnir áunnið orlof eða orlofsrétt miðað við fullt starf. Miðað er við að orlof lengist ef starfsmaður nær t.d. 30 ára aldri á því almanaksári sem tímabil sumarorlofs tilheyrir. Það skiptir ekki máli hvenær almanaksársins hann verður 30 ára. Orlofsréttur ef unnið er hlutastarf: Ef starfsmaður vinnur hlutastarf allt orlofsárið þá er orlofsréttur hans sama hlutfall af 192, 216 eða 240 vinnuskyldustundum eins og starfið er mikill hluti af fullu starfi. Hjúkrunarfræðingar athugið: Lengd orlofs sem ávinnst á á orlofsárinu 1997-1998 fer eingöngu eftir lífaldri. Dæmi: Ef starfsmaður 38 ára eða eldri vinnur 80% starf allt orlofsárið þá er orlofsréttur hans 240 • 0,8 = 192 vinnuskyldustundir. Orlofsréttur ef unnið er hluta af orlofsárinu: Ef starfsmaður hefur unnið hluta úr orlofsárinu, er orlofsrétturinn reiknaður þannig að deilt er með 12 (mánuðir á ári) í orlofsrétt starfsmannsins eins og hann væri fyrir heilt orlofsár og síðan margfaldað með mánaðafjölda í starfi fram til 30 apríl. Dæmi: Ef starfsmaður 38 ára eða eldri hefur starf 1. september þá er orlofsréttur hans 240 • 8/12 = 160 vinnuskyldustundir. Vaktavinnufólk sem fær ekki helgidagafrí á að fá lengingu á orlofi þegar helgidagar (aðrir en laugardagar og sunnudagar) koma inn á orlofstímann. Lengingin er jafnhátt hlutfall af vinnu- stundum á sérstökum frídögum eins og starfið er mikill hluti af fullu starfi. Dæmi: Ef starfsmaður er í 60% starfi, vinnur þrjár 8 tíma vaktir í viku, og einn sérstakur frídagur fellur á orlofsviku (t.d. frídagur verslunarmanna) þá teljast: 24 - (8 • 0,6) = 19,2 vinnuskyldustundir í orlofi þá vikuna. Orlofsfé Samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er lágmarksupphæð orlofsfjár 8.353 kr. Lágmarksupphæð orlofsflár er greidd þeim starfsmönnum sem vinna eingöngu dagvinnu eða vinna mjög litla álags- og yfirvinnu. Þeir sem vinna álags- og yfirvinnu fá orlofsfé af þeirri vinnu sem hér segir: Yngri en 30 ára 10,17% 30-37 ára 11,59% 38 ára og eldri 13,04% Orlofsfé er lagt inn á póstgíróreikning eða bankareikninga og greitt út í lok orlofsárs. Orlofsprósentan kemur oft ekki fram á launaseðli svo fylgjast þarf með því að hún sé rétt. Orlofsuppbót: Orlofsuppbót er greidd út 1. júní ár hvert. Hjúkrunarfræðingar sem eru í starfi til 30. aprfl næst á undan eiga að fá orlofsuppbót. Orlofsuppbót er sérstök eingreiðsla og á árinu 1998 er hún að upphæð 8.800 kr. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Lenging á sumarorlofi Um lengingu á sumarorlofi segir í grein 4.4.3 í kjarasamningi: „Sé orlof eða hluti orlofs tekið eftir að sumarorlofstímabili lýkur, skal sá hluti orlofsins lengjast um fjórðung. Sama gildir um orlof sem tekið er fyrir sumarorlofstímabil samkvæmt beiðni stofnunar.” Að gefnu tilefni er ástæða til að benda á eftirfarandi varðandi lengingu á sumarorlofi: Lenging á orlof sem tekið er eftir sumarorlofstímabil Orlof lengist alltaf ef það er tekið eftir að sumarorlofstímabili lýkur, þ.e. eftir 30. september, og gildir þá einu hvort vinnuveitandi hafi beðið viðkomandi starfsmann um að fara í orlof á þeim tíma eða ekki. Lenging á orlof sem tekið er fyrir sumarorlofstímabil Orlof sem tekið er fyrir sumarorlofstímabil lengist aðeins ef vinnuveitandi biður viðkomandi starfsmann um að fara í orlof áður en sumarorlofstímabil hefst, þ.e. fyrir 15. maí. V.J. 131 Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 74. árg. 1998

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.