Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 19

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 19
Fjöldi Fjöldi 44,4% 33.3% 18,5% 3,7% ,I I, Já Nei Veit ekki Svöruðu ekki Mynd 3. Telur þú þig hafa hlotið næga menntun til þess að hjúkra fjölskyldum? félagslegum þörfum fjölskyldna (sjá mynd 3). 72% þátttakenda fannst streituvaldandi að hjúkra fjölskyldum og 48% töldu sig oft hafa þörf fyrir tilfinningalegan stuðn- ing (sjá mynd 4). Þrátt fyrir þessar niðurstöður hafði meirihluti þátttakenda (54%) ekki aðgang að faglegum stuðningi á vinnustað. Varðandi úrvinnslu á streituvaldandi atburðum kom í Ijós að flestir þátttakenda (61%) ræddu Fjöldi Mynd 4. Telur þú þig oft hafa þörf fyrir tilfinningalegan stuðning? um þá við samstarfsmenn sína. Þátttakendur könnuðust ekki við að hafa fengið faglega svörun við umönnun fjölskyldna og aðeins 15% sögðust sækjast eftir svörun frá fjölskyldum. Ástæður, sem gefnar voru fyrir því að ekki var sóst eftir svörun á frammistöðu, voru þessar helstar: a) það væri ekki starfsvenja, b) tímaskortur, c) það ylli uþpnámi hjá fjölskyldum, d) þátttakendur hefðu ekki velt því fyrir sér. Þátttakendur töldu að varðandi umönnun fjölskyldna vantaði skýrar línur um ábyrgð, einnig töldu þeir þörf fyrir skriflegar upplýsingar fyrir fjölskyldur varðandi trúarlega og lagalega þætti og ýmiss konar stuðnings- og hjálparþjónustu og samtök sem leita mætti til. Meirihluti þátttakenda (71%) taldi að ákveðnar reglur ættu að gilda um nærveru fjölskyldumeðlima við endur- lífgunartilraunir (sjá mynd 5). 80% þeirra töldu að sérstakur starfsmaður ætti að vera með fjölskyldum væru þær viðstaddar endurlífgun. Hátt hlutfall þátttakenda (48%) var ekki visst um hvort fjölskyldum skyldi leyft að vera við Mynd 5. Telur þú að ákveðnar reglur ættu að gilda um nærveru fjölskyldna víð endurlífgun? endurlífgun. Af þátttakendum höfðu 39% reynslu af nærveru fjölskyldna við endurlífgun. Eins og við mátti búast sögðu margir þá reynslu streituvaldandi, ekki síst þar sem þeir höfðu ekki haft tækifæri til þess að vera fjölskyldunum til stuðnings vegna annarra starfa. Samt sem áður lýstu 15% því mjög skýrt hve þessi reynsla veitti fjölskyldum mikla öryggiskennd þar sem þær gátu séð það sem gert var fyrir sjúklinginn og fengið skýringar á því. í sumum tilfellum hafði þetta gert hjúkrunina og önnur samskipti við fjölskyldurnar auðveldari eftir á. Mikilvægi góðrar aðstöðu fyrir fjölskyldur á bráða- deildum var staðfest af þátttakendum, svo sem þægilegt herbergi með síma, drykkjarföngum og salernisaðstöðu. Upplýsingar varðandi sorg og sorgarviðbrögð voru fjölskyldum tiltækar og 85% þátttakenda staðfestu að upplýsingar um frekari stuðning og ráðgjöf væru fyrir hendi. Aðeins 15% þátttakenda gat staðfest að fyrr- greindar upplýsingar væru tiltækar á öðrum tungumálum en ensku. Þjálfun í hjúkrun syrgjenda stóð 54% þátttak- enda til boða. Áætlun um að fylgja syrgjendum eftir var ekki til staðar á þessum deildum en 56% þátttakenda vildu gjarnan hafa slíka áætlun. Mikill meirihluti þátttakenda (80%) taldi umönnun syrgj- enda erfiðasta þáttinn í hjúkrun fjölskyldna. Meginhindrun fyrir umönnun fjölskyldna var að sögn 72% þátttakenda skortur á starfsfólki þar sem ekki gafst nægur tími til hjúkrunarinnar. UMRÆÐA Niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta að þátttakendur telja sig bera ábyrgð á umönnun fjölskyldna sjúklinga sem eru í þeirra umsjá og styðja það með þeim rökum að mikilvægt væri fyrir sjúklinga að fjölskyldur þeirra nytu umönnunar. Þessar niðurstöður styðja sjónarmið Kleinpells og Þowers (1992) um forsendur ákjósanlegrar hjúkrunar- þjónustu. Þrátt fyrir fyrrgreindar niðurstöður var nokkur fjöldi þátttakenda ekki sammála þessu. En niðurstöður Chelsa og Stannards (1997) gefa til kynna að óljós ábyrgð varðandi hjúkrun fjölskyldna hindrar hjúkrunina. Þátttakendur töldu mikilvægt að greina þarfir fjöl- 203 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.