Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Side 20

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Side 20
skyldna og sinna þeim þrátt fyrir að mikill meirihluti þátt- takenda teldi að upplýsa ætti fjölskyldur um ástand sjúkl- inga. Nokkru færri töldu það í verkahring hjúkrunar- fræðinga að upplýsa þær. Hickey og Lewandowski (1988) færa rök fyrir því að meðal þess sem dragi úr samskiptum hjúkrunarfræðinga við fjölskyldur sé óvissa um hvaða upplýsingar læknar hafa gefið sjúklingum. Aðeins lítill hluti þátttakenda taldi nálægð við sjúklinga mikilvæga fyrir fjölskyldur, en niðurstöður víðtækra rannsókna Leske (1991, 1992) hafa hins vegar staðfest að það er eitt það mikilvægasta fyrir fjölskyldurnar. Minnihluti þátttakenda fylgdist með fræðilegum skrifum um hjúkrun fjölskyldna eða taldi störf sín byggð á vísinda- legum grunni sem ætti að vera leiðbeinandi fyrir hjúkrunina (Leske, 1991; Reeder, 1991). Ekki var mikill stuðningur við notkun hjúkrunarlíkana en George (1995) og Meleis (1997) hafa fært rök fyrir því að notkun þeirra geri hjúkrun árangursríkari og skilvirkari og niðurstöður Leaheys, Harper-Jaques, Stouts og Levacs (1995) styðja það. Færa má rök fyrir því að áhersla á þekkingu á rannsóknum í hjúkrun og notkun hjúkrunarkenninga og hugtakalíkana hafi aukist með háskólamenntun hjúkrunarfræðinga og hugsanlega geta niðurstöður þessarar rannsóknar tengst lágu hlutfalli háskólamenntunar meðal þátttakenda. Önnur tilgáta er að hugmyndafræði stofnananna og staðbundnar áherslur í hjúkrun hafi áhrif á viðhorf hjúkrunarfræðinga (Hanneman og Cardin, 1992; Chelsa og Stannard, 1997). Hins vegar hefur Friedmann (1989) bent á að hjúkrunarkenningar og hugtakalíkön séu flest gerð með einstaklinga í huga og henti því illa fyrir fjölskyldur. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar töldu þátttak- endur sig ekki hafa næga menntun til að sinna þörfum fjölskyldna, einnig taldi meirihlutinn sig oft hafa þörf fyrir tilfinningalegan stuðning en minnihluti þátttakenda gat fengið slíkan stuðning á vinnustað. Þessar niðurstöður eru samsvarandi niðurstöðum Hickeys og Lewandowskis (1988), Chelsa og Stannards (1997) og Fox og Jeffreys (1997). En að mati samtaka breskra bráðalækna og hjúkrunarfræðinga (British Association for Emergency Medi- cine and the Royal Collage of Nursing) (1995) er stuðningur við starfsfólk talinn grundvallaratriði í umönnun syrgjenda. Þátttakendur sóttust ekki eftir því að fá mat á störf sín, hvorki fagleg né frá fjölskyldum, en færa má rök að því að slíkt mat er nauðsynlegt til að meta samræmi milli markmiða og árangurs. Niðurstöður Thorntons (1996) benda á að nauðsynlegt sé að hjúkrunarfræðingar sækist eftir svörun við frammistöðu sinni frá fjölskyldum. Leske (1991), McClowry (1992) og Rotocky (1993) undirstrika mikilvægi þess fyrir heilbrigðisstofnanir að hafa skýrar kröfur um frammistöðu starfsmanna og samræmdan mælikvarða frammistöðumats. Tiltölulega margir þátttakendur höfðu reynslu af nærveru fjölskyldna við endurlífgun og er það í samræmi 204 við niðurstöður Chalks (1995) og Redleys og Hoods (1996). Þátttakendur töldu að ákveðnar reglur ættu að gilda um nærveru fjölskyldna við endurlífgun og að ákveð- inn starfsmaður ætti að vera fjölskyldum til stuðnings. Þessar niðurstöður eru í samræmi við tillögur samtaka breskra bráðalækna og hjúkrunarfræðinga (1995), Mitchells og Lynchs (1997) og Robinsons, Mackenzie- Ross, Campell Hewsons, Eglestons og Prevosts (1998). Enda er óhætt að fullyrða að lítill tími er fyrir slíkar vangaveltur við fyrrgreindar aðstæður. Fáir þátttakendur töldu að gefa skyldi fjölskyldum kost á því að vera við endurlífgun en það samræmist ekki niðurstöðum Chalks (1995). Þá hafa Hanson og Strawser (1992) greint frá þörf fjölskyldna fyrir nálægð við sjúklinga við endurlífgun og niðurstöður Robinson o.fl. (1998) greina ekki neikvæð sálræn áhrif þess á fjölskyldur að vera við endurlífgun samanborið við fjölskyldur sem ekki voru við endurlífgun. Þátttakendur töldu sig vanbúna til þess að hjúkra syrgj- endum vegna þekkingarskorts og skortur á starfsfólki jók enn á vandann en Cooke, Cooke og Glucksman (1992) og Tye (1993) komust að sömu niðurstöðum í rann- sóknum sínum. Um áframhaldandi stuðning við fjölskyldur var ekki að ræða á þessum deiidum sem er svipuð niðurstaða og Cook o.fl. (1992) fengu í víðtækum breskum rannsóknum. Aðeins naumur meirihluti þátttakenda í rannsókn þessari vildi hafa áætlun um frekari stuðning fyrir fjölskyldur, en það er ekki í fullu samræmi við auknar kröfur um áframhaldandi stuðning við syrgjendur (Wiseman, 1992; British Association for Accident and Emergency Medicine and the Royal College of Nursing (1995); Ellison, 1998). Niðurstöður þessa hluta rannsóknarinnar styðja fullyrðingar McClelland (1993) og Ellison (1998) um að fullnægjandi hjúkrun syrgjenda geti aðeins orðið þar sem tiltekinn hjúkrunarfræðingur er ábyrgur fyrir hjúkruninni. LOKAORÐ Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á bráðamóttökum hvað varðar hjúkrun fjölskyldna og engin sambærileg rannsókn þessari fannst þrátt fyrir ýtarlega leit. Því er lítið vitað um þjónustu bráðamóttökudeilda við fjölskyldur, gæði hennar og árangur. Meðal þess sem þarf að rannsaka frekar á þessum vettvangi eru þarfir fjölskyldna, þjónusta við þær og ánægja þeirra með veitta þjónustu. Slík þróun vísinda- legrar þekkingar á hjúkrun fjölskyldna, sem byggist á viðhorfum og reynslu fjölskyldna og hjúkrunarfræðinga, mun verulega styðja við árangursríka hjúkrun bráðahjúkr- unarfræðinga. Það auðveldar stefnumörkun og áætlana- gerð fyrir þjónustu og símenntun starfsfólks sem tekur mið af þörfum og kröfum samfélagsins hverju sinni. Þakkarorð Alna Robb og Margaret Leit, kennarar við hjúkrunar- fræðiskor Glasgow-háskóla, fá bestu þakkir fyrir veitta Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.