Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 41
Niðurlag Vaxandi eftirspurn er eftir hjúkrunarfræðingum til starfa þannig að brýnt er að fjölga námsplássum við háskólana til að mennta fleiri hjúkrunarfræðinga svo mæta megi þörf samfélagsins, ekki síst öldrunarþjónustunnar. Spennandi viðleitni er í fjarkennslu í Keflavík og á ísafirði í þessu sam- hengi. Höfða verður til ábyrgðar forsvarsmanna háskól- anna í landinu, að þeir beiti sér fyrir því að sinna þörfum atvinnulífsins fyrir sérfræðimenntað starfsfólk og axli þar með ábyrgð á hlutverki sínu. Sjúkraliðanám er nú á framhaldsskólastigi og algengt að sjúkraliðinn Ijúki framhaldsskólanum með stúdentsprófi og haldi síðan í háskólanám. Þannig skilar hann sér ekki til umönnunarstarfa sem sjúkraliði inn '\ öldrunarþjónustuna og ófaglærðir koma í stað þeirra sem láta af störfum vegna aldurs. Endurskoða þarf starfs- og ábyrgðarsvið sjúkraliða í öldrunarþjónustunni og nýta menntun þeirra betur. Treysta þarf möguleika þeirra til að byggja upp starfsframa sinn innan stofnana og heimaþjónustu. Meta þarf störfin að verðleikum og bæta launakjör. Ná þarf athygli ungra íslendingar og beina þeim til starfa í öldrunarþjónustu þar sem atvinnutækifæri eru næg, bæði fyrir háskólamenntaða, eins og hjúkrunar- fræðinga, lækna og sjúkraþjálfara, fagaðila, eins og sjúkraliða og þroskaþjálfa, sem og almenna starfsmenn. Þjóðin ber sameiginlega ábyrgð á að sjá velferðar- þjónustu sinni farborða. Á tímum þenslu og velmegunar vantar vinnuafl svo öllum störfum sé sinnt. Þá ríður á að menn standi vörð um grundvallarumönnunarstörfin. Jákvæð umfjöllun, mannræktin og meðvitundin um hvað skiptir mestu máli verður að hafa í hávegum. Tryggja þarf sanngjörn laun svo að starfsmenn sjái sér fært að starfa í svo gefandi starfi sem störf með öldruðum eru. Dyggilega hefur verið unnið að því gagnvart háskólamenntuðum starfsmönnum. Þeir verða nú að sýna biðlund því brýnt er að vinna áfram að hækkun lægstu launa í umönnunar- störfum. Það gerist ekki nema aðilar vinnumarkaðarins sýni samstöðu og styðji hverjar þær efnahagslegu aðgerðir sem bæta lífskjör þeirra lægst launuðu. Þeir ráðherrar ríkisstjórnarinnar, sem þau Ingibjörg, Björn, Þétur og Geir sem hjúkrunarforstjórar, leituðu til, eiga hrós skilið fyrir þann skilning, áhuga, samvinnu og vilja til að láta verkin tala sem þeir sýndu í þessu samhengi. Öldrunarþjónustan á trausta bakhjarla þar sem ríkisstjórnin er. Samfélagið allt þarf að standa með þeim og öldrunarþjónustunni svo tryggja megi áfram bestu öldrunarþjónustu í heimi. LIKKISTUVINNUSTOFA EYVINDAR ÁRNASONAR 1899 OSWALDS simi 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AÐALSTRÆTI 4B • 101 RF.YKJAVIK Inger Ólafur Umsjón Útfararstj. Davíð Otfararstj. 12 ATRIÐI TIL UMHUGSUNAR FYRIR FORELDRA 9 Takið virkan þátt í lífi barnsins. 9 Sýnið viðfangsefnum barnsins áhuga. '■9- Hlustið á barnið á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. '9 Eflið sjálfsímynd barnsins. Hrósið fyrir viðleitni jafnt sem árangur. ~9 Hjálpið barninu að takast á við hópþrýsting. 9 Verið barninu góð fyrirmynd. '9 Gefið skýr skilaboð. '9 Setjið barninu skýrar reglur. 9 Hvetjið barnið til íþrótta- og tómstundaiðkunar. 9 Verið í góðu sambandi við foreldra bekkjarsystkina og vina. 9 Ræðið hreinskilnislega við barnið. um áfengi og önnur vímuefni. 9 Leitið aðstoðar ef þið teljið barnið eiga í vanda. www.vimuvarmr.is ÁFE N - 0 G VÍMUVARNARÁÐ Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 76. árg. 2000 221

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.