Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Síða 46

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Síða 46
Undirbúningur fyrir heimferð. viðhorf barna til dauðans. Báða dagana voru myndbönd notuð sem fræðsluefni og til að skapa umræður. Það var ánægjulegt hve námsstefnugestir höfðu mikið til málanna að leggja. Hjúkrunarfræðingar stigu í púlt og sögðu frá hvernig staðið er að málefnum krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra í eigin heimabyggð. [ máli þeirra kom skýrt fram að allt of oft skortir upplýsingar um sjúklinga þegar þeir flytjast á milli stofnana eða útskrifast heim. ( sumum tilvikum máttu sjúklingar og aðstandendur þeirra þola kvíða og óöryggi sem hefði mátt draga úr eða komast hjá ef upplýsingaflæði hefði verið skjótvirkara og markvissara. Oft og tíðum var um algjöran upplýsingaskort að ræða. Einn hjúkrunarfræðingurinn lýsti þessu sem ein- hliða samskiptum, hún þyrfti alltaf sjálf að leita eftir upp- lýsingum um sjúklingana. Annar áberandi þáttur í umræðum á námsstefnunni var að aukinn þrýstingur er frá mikið veikum og dauðvona sjúklingum um að fá að vera heima og að deyja heima. Þar sem ekki er starfandi heimahlynning krabbameinssjúkra hafa slíkar beiðnir borist heilsugæslu- stöðvum á viðkomandi stað. í Ijós kom að stundum er það undir góðvild viðkomandi hjúkrunarfræðings komið hvort hægt er að verða við óskum sjúklings. Að lokum reifaði Valgerður Valgarðsdóttir, djákni, mikilvægi sjálfsræktar. í samantekt voru þátttakendur námsstefnunnar sammála um að helstu niðurstöður hennar væru þessar: • Markviss og árangursrík samskipti á milli fagfólks, sem tekur þátt í meðferð sjúklingsins á mismunandi stigum sjúkdómsins, eru nauðsynleg til að sem bestur árangur náist. • Sjúklingar og fjölskyldur þeirra eiga rétt á skýrum og skilmerkilegum skilaboðum. Tryggja þarf öruggar boð- leiðir í tengslum við flutninga sjúklings á milli stofnana, sérfræðinga, sjúkrahúsa eða þjónustu sem veitt er utan sjúkrahúsa. • Þörf er á því að finna leiðir til að verða við óskum sjúklinga hvar sem þeir búa um að fá að vera heima með alvarlega og/eða langt gengna sjúkdóma. Allir sjúklingar eiga rétt á sömu þjónustu og hana þarf að veita eins nálægt dvalarstað sjúklings og mögulegt er, inni á heimilum þeirra eða á sjúkrahúsi 226 Námskeið Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands Konur, fíkn og meðvirkni Fjallað er um tengsl ánetjunar við kynjahlutverk og kvennakúgun og um mismunandi þarfir kvenna og karla í áfengis- og vímuefnameðferð. Kennari: Páll Biering MSN, geðhjúkrunarfræðingur á Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði við HÍ. Tími: 14. nóvember kl. 9:00-16:00 Verð: 8.800 kr. Túlkandi fyrirbærafræði -heimspeki og hversdagsieiki í hjúkrun Námskeiðið er einkum ætlað hjúkrunarfræðingum en er opið öðrum. Kennari: Christer Magnusson MScN, hjúkrunar- fræðingur á fræðsludeild Landspítala í Fossvogi. Tími: 7. og 9. nóvember Verð: 8.800 kr. Fötlun, langvarandi veikindi og meðvirkar fjölskyldur Kynntar eru nýjar hugmyndir sem Andrés hefur þróað á þessu sviði, meðal annars um „lamaðar, ofvirkar og meðvirkar fjölskyidur." Kennarar: Andrés Ragnarsson og Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingar. Tími: 27. október kl. 9:00-16:00 og 28. október kl. 9:30-12:30 Verð: 12.200 kr. Lestur fræðigreina og notkun upplýsingakerfa Námskeiðinu er ætlað að þjálfa þátttakendur í að beita fræðilegri þekkingu í starfi með öflun heimilda í gegn- um upplýsingakerfi og með gagnrýnum lestri heimilda. Umsjón: Helga Jónsdóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild H.í. Tírni: 20 stundir í nóvember. Verð: 17.800 kr. Stöðug vinna á sér stað á FSA sem miðar að því að bæta þjónustu við krabbameinssjúklinga og fjölskyldur þeirra. Nefna má rannsókn á þörf endurhæfingar/hæfingar fyrir sjúklinga með ólæknandi krabbamein og athugun á aukinni og fjölbreyttari þjónustu við krabbameinssjúklinga í heimahúsum. Með kveðju frá Akureyri, Bryndís Þórhallsdóttir, Elísabet Hjörleifsdóttir. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.