Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 51

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 51
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir, M.Sc., Ph.D. sérfræðingur á atvinnusjúkdóma- og heilsugæsludeild Vinnueftirlits ríksins Um bakverki kjúkrunAv'fólk.s Vikan 23.-27. október er helguð vinnuvernd í Evrópu og þemað eru varnir gegn bakverkjum undir kjörorðinu bak- verkinn burt. Vinnueftirlit ríkisins tekur þátt í átakinu með ýmiss konar kynningu og fræðslu. í þessari grein er sérstaklega fjallað um bakverki hjúkrunarfólks. Sjúkraliðum er sex sinnum hættara við að verða fyrir slysi í vinnunni en öðrum launakonum í Svíþjóð og þótt áhættan meðal hjúkrunarfræðinga sé ekki eins mikil, munar þar litlu. Flest slysanna henda þegar verið er að lyfta sjúklingum og færa þá til. Úrbætur ættu að beinast bæði að vinnuskipulaginu og vinnuaðstæðunum. Þetta eru helstu niðurstöður nýlegrar doktorsritgerðar Inga-Lill Engkvist í Svíþjóð. Aðrar rannsóknir benda til að verkir í stoðkerfi séu álíka algengir meðal hjúkrunarfræðinga og hjá konum almennt eða tæp 60%. Þær rannsóknir sýndu einnig að bakverkir voru minni hjá hjúkrunarfræðingum en sjúkraliðum og öðru umönnunarfólki. Meiri hætta er á mjóbaksverkjum ef fólk þarf mikið að lyfta sjúklingum. Hjúkrunarfólk á öldrunar-, bæklunar- og endurhæfingardeildum á fremur á hættu að lenda í vanda varðandi stoðkerfið en hjúkrunarfólk sem starfar á deildum þar sem minna er um lyftingar. Hjúkrunarfólk, sem lyftir oft, er í nærri fjórum sinnum meiri hættu að fá bakverki en það hjúkrunarfólk sem síður lyftir sjúklingum eða færir þá til. Ófyrirséð atvik auka hættuna á að hjúkrunarfólk beiti líkamanum óheppilega eins og þegar sjúklingur missir skyndilega fótanna eða dettur. Hjúkrunarfólk er oft undir miklu andlegu álagi. Miklar kröfur í starfi, takmarkaðir möguleikar á að hafa áhrif í vinnunni og lítill stuðningur vinnuféiaga tengist óþægindum í mjóbaki hjá hjúkrunarfólki. í rannsókn á hjúkrunarfræð- ingum á spítölum í Belgíu og Hollandi kom vel fram mikilvægi starfsánægju. Þótt hollensku hjúkrunarfræðing- arnir ynnu meira en hinir belgísku voru þær ánægðari í starfi, tóku léttar á óþægindum, stunduðu fremur líkams- rækt, voru færari um að takast á við vandamál og höfðu síður bakverki en belgísku hjúkrunarfræðingarnir. Þegar fáliðað er á hjúkrunardeildum er meiri hætta á að starfsmenn fái bakverki, enda þá hættara við að hjúkr- unarfólk þurfi að vinna meira eitt, langan vinnudag og að lyfta sjúklingum hjálparlaust. Verkir í mjóbaki hjá konum aukast yfirleitt með aldrinum eða fram til 50-60 ára. Þetta kom m.a. fram árið 1986 í hóprannsókn á úrtaki íslendinga. Rannsókn meðal franskra hjúkrunarfræðinga sýndi að verkur í mjóbaki meðal þeirra sem voru 40-44 ára var helmingi algengari en meðal þeirra sem voru yngri en 35 ára. Talið er að reykingar geti aukið hættu á bakverkjum og hafa ýmsar skýringar verið gefnar á því. Á hinn bóginn er það vörn gegn álagseinkennum að vera líkamlega vel á sig komin og stunda reglulega líkamsrækt, en ekki er óalgengt að hjúkrunarfólk sé í lélegri líkamlegri þjálfun. Til þess að koma í veg fyrir bakverki meðal hjúkrunar- fólks virðist ekki nóg að kenna rétta líkamsbeitingu. Til þess að árangur náist verður að huga að: • hönnun vinnuumhverfisins og vinnuskipulaginu • að hjálpartæki séu tiltæk og notuð • að hjúkrunarfólk fái leiðbeiningar um líkamsbeitingu við lyftingar og notkun hjálpartækja Rúmlega er ekki best til þess fallin að bæta bakverk. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 76. árg. 2000 231

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.