Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Page 40
^ðsmk^ÓMurþótti Ijótt orð
Starf hjúkrunarfræðinga, sem starfa við geðhjúkrun, er ekki
mjög þekkt meðal hjúkrunarfræðinga almennt og ætlar Tíma-
rit hjúkrunarfæðinga að bæta þar aðeins úr með umijöllun um
störf þeirra. Viðtölin við fjóra hjúkrunarfræðinga gefa væntan-
lega nokkra innsýn í störf þeirra en starfið getur farið fram á
mjög mörgum og mismunandi stöðum. Eitt er þó sameigin-
legt, burtséð frá því hvar starfið fer fram, og það er að hjúkr-
unarffæðingar, sem vinna við geðhjúkrun, eru í mjög nánum
tengslum við sína sjúklinga og þeir nota sjálfa sig í meðferð-
inni - hér duga nefnilega engin hátæknitæki og tól!
Svava Þorkelsdóttir og Díaita Liz Franksdóttir, í sólinni í
garðinum vió geðdeildina á Kleppi.
Hjúkrunarfræðingarnir, sem talað er við, eru Svava Þor-
kelsdóttir, formaður fagdeildar geðhjúkrunarfræðinga, Díana
Liz Franksdóttir, deildarstjóri geðdeildar Landspítala á Kleppi,
Bergþóra Reynisdóttir, sem er sjálfstætt starfandi geðhjúkrun-
arfræðingur, og Guðbjörg Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri á
Vin - athvarfi Rauða kross íslands fyrir geðfatlaða, en fyrst
var spjallað örstutt við Þórunni Pálsdóttur, geðhjúkrunarfræð-
ing og fyrrverandi hjúkrunarforstjóra geðdeildar Landspítal-
ans, um upphaf geðhjúkrunar á íslandi.
Geðhjúkrun hafði mun meira vægi í hjúkrunarnámi áður
fyrr. Til að útskrifast áttu hjúkrunarfræðingar að hafa unnið
eitt ár á geðdeild og lágmarks verklegt nám á geðdeild var 6
mánuðir. Þórunn var fyrsti hjúkrunarfræðingurinn sem fór í
sérnám í geðhjúkrun en það var árið 1966. Hún fór til Noregs
þar sem námið var þannig upp byggt að hjúkrunarfræðingar
unnu á stofnunum víðs vegar um landið. Með vilja var valið
að hjúkrunarfræðingarnir ynnu bæði á stofnunum sem voru
vel mannaðar og þeirn sem illa voru mannaðar. Þetta var til að
leggja áherslu á að í starfinu ættu geðhjúkrunarfræðingar
alltaf að vera að byggja upp. Um 2-3 árum síðar fóru aðrir þrír
hjúkrunarfræðingar einnig í sérnám en ekki í sama skóla og
Þórunn. Örfáir í viðbót fylgdu svo í kjölfar þeirra. Geðhjúkr-
unarffæðingar, með dyggri aðstoð Maríu Pétursdóttur, fóru
síðan að beq'ast fyrir því að sémámi í geðhjúkran yrði komið
á hérlendis og baráttan bar árangur. Námið fór ffam í Nýja
hjúkrunarskólanum og var Þóra Arnfinnsdóttir aðalkennarinn.
Einnig aðstoðaði skólastjórinn við norska skólann, þar sem
Þórunn lærði, við uppbyggingu námsins. 1 fyrstu tók námið
1 'h ár en þróaðist svo í 2 ára nám. Þrisvar var boðið upp á
þetta sémám og frá skólanum útskrifuðust um 60-70 geð-
hjúkrunarfræðingar. í núverandi hjúkrunarnámi vinna nemar í
6 vikur á geðdeild, 20 verklega tíma á viku og telur Þórunn að
sá tími sé alltof stuttur og eigi án efa sinn þátt í að ekki takist
að laða fleiri hjúkrunarffæðinga til starfa á geðdeildum en
raun ber vitni.
Reynslan er mjög góður skóli
Leiðin liggur fyrst á gamla vinnustaðinn hennar Þórunnar,
Kleppsspítalann, en nú til að hitta þær Díönu og Svövu. Díana
stýrir þar deild sem flutt var frá Vífilsstöðum að Kleppi í byrj-
un janúar. Viðtalið hefst á að þær era spurðar um viðhorf sitt
til starfsins:
Svava: „Það sem höfðar mest til mín varðandi geðhjúkrun
er staða hjúkrunarfræðinga sem vinna við geðhjúkrun; við
erum virtir og virkir þátttakendur í meðferð geðsjúkra og að
mínu áliti er staða okkar mjög sterk. Stjórn fagdeildarinnar er
að leggja síðustu hönd á kynningu á geðhjúkrun sem verður á
heimasíðu Félags íslenskra hjúkrunarffæðinga og í þeirri
vinnu höfum við skoðað hvar þeir hjúkrunarffæðingar hafa
starfað sem hafa unnið á geðsviði og sérmenntað sig í faginu.
Þar höfum við séð að þeir hafa komið mjög víða við. Þeir hafa
m.a. starfað hjá Landlæknisembættinu, ýmsum félagasamtök-
um, unnið að forvamastarfi í skólum, starfað hjá félagsþjón-
ustunni, Barnavemdarstofu, heilbrigðisráðuneytinu, mennta-
málaráðuneytinu, lyfjafyrirtækjum og við kennslu.
Hjúkrunarfræðingar, sem starfa við geðhjúkrun, hafa ver-
ið iðnir við að bæta menntun sína, sótt námskeið og nám
innanlands sem erlendis. Einnig hefur dugnaður við að miðla
þekkingu löngum fylgt geðhjúkrun og er virk fræðsla inni á
deildum mjög einkennandi fyrir fagið. Hins vegar er það
104
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002