Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Qupperneq 9
FRÆÐIGREIN
Hvaö er Magnetviöurkenningin?
• Skipulögð aðlögun nýrra starfsmanna er í boði
• Ahersla á starfsþjálfun og símenntun
• Virk stjórnendaþjálfun
(Hinshaw, 2002; McClure, Poulin, Sovie og
Wandelt, 2002)
Hvers vegna telja hjúkrunarfræðingar gott að
vinna á magnetstofnun? I rannsóknum Kramer
og Schmalenberg undanfarin 15 ár hefur marg-
oft komið fram að eftirfarandi 8 einkenni eru
aðalforsenda þess að hjúkrunarfræðingar telja
sig geta veitt góða þjónustu:
• Þeir vinna með færum hjúkrunarfræðingum
• Það eru góð samskipti milli hjúkrunarfræð-
inga/ljósmæðra og lækna
• Hjúkrunarfræðingar/ljósmæður eru sjálfstæð
og bera ábyrgð á sínum störfum
• Stjórnandi hjúkrunar styður hjúkrunarfræð-
inga/ljósmæður
• Hjúkrunarfræðingar/ljósmæður hafa sjálfræði
yfir þjónustunni sem þeir veita og vinnuum-
hverfinu
• Stjórnendur stofnunar hvetja starfsmenn til
menntunar
• Það er nægileg mönnun
• Það er áhersla á velferð sjúklinganna meðal
allra á stofnuninni
(Kramer og Schmalenberg, 2002)
Öll framantalin atriði benda í sömu átt, að þar
sem starfsfólk er virt og tekur þátt í skipulagn-
ingu starfsgreinar og mótun vinnuumhverfis síns
næst bestur árangur við meðferð sjúklinganna.
Mikilvægi hjúkrunarfræðinga. Rannsóknir hafa
sýnt að fylgikvillar, svo sem þvagfærasýkingar,
lungnasýkingar, blæðingar frá meltingarvegi og
byltur, eru marktækt færri (p<0,05) þar sem næg
mönnun hjúkrunarfræðinga er og þeir veita
meirihluta hjúkrunarinnar. Einnig er legutími
sjúklinga marktækt styttri (p<0,001) (Needle-
man, Buerhaus, Mattke, Stewart og Zelevinsky,
2002). Aður hafði komið fram betri árangur í
meðferð og umönnun alnæmissjúklinga á sjúkra-
húsum þar sem hjúkrunarmönnun var góð
(Aiken, Smith og Lake, 1994).
Nýleg rannsókn Aiken o.fl. (2002), sem kannað
hafa árangur magnetsjúkrahúsa í Bandaríkjun-
um sl. 15 ár, bendir ótvírætt til hve mikilvægt er
að hjúkrunarfræðingar sinni eftirliti með sjúklingum því
reikna má líkur á dánartíðni miðað við mönnun hjúkrunar-
fræðinga. Þessir rannsakendur fundu að með auknu vinnu-
álagi hjúkrunarfræðings jókst dánaráhætta innan 30 daga frá
innlögn um 7% fyrir hvern sjúkling (1,07 áhættuhlutfall (OR),
95% öryggisbil (CI), 1,03-1,12). Hver viðbótarsjúklingur, sem
hjúkrunarfræðingur sinnti, var talinn auka áhættu á kulnun
um 23% (1,23 áhættuhlutfall; 95% öryggisbil 1,13-1,34) og
hættu á starfsóánægju um 15% (1.15 áhættuhlutfall; 95% ör-
yggisbil 1,07-1,25).
Einnig kom fram í rannsókn Blendon o.fl. (2002) um viðhorf
starfandi lækna og almennings til læknamistaka að 51% lækna
og 69% almennings (p<0,001) töldu að fjölgun hjúkrunar-
fræðinga á sjúkrahúsum væri næstmikilvægasta stjórnunarað-
gerð til að minnka líkur á lækningamistökum. Mikilvægast var
talið að koma á viðeigandi eftirlitskerfi með lyfjafyrirmælum
og lyfjagjöf á stofnunum.
Niðurstaðan, sem draga má af þessum rannsóknum og öðrum
á undanförnum árum, er að hjúkrunarfræðingar skipta höfuð-
máli um árangur og öryggi sjúklinga á sjúkrahúsum. Hjúkrun-
arfræðingar eru þeir sem stöðugt fylgjast með sjúklingum og
eru í lykilhlutverki til að greina frávik sem krefjast meðferðar
þannig að sjúklingar geti útskrifast fljótt og örugglega.
Eins og sjá má í töflu 1 eru mörg háskólasjúkrahús í Banda-
ríkjunum á listanum yfir þau sjúkrahús sem komist hafa í úr-
valsflokk magnetstofnana. Hins vegar eru einnig á listanum
smærri sjúkrahús og einkasjúkrahús sem hafa nýtt sér þessa
þekkingu til að breyta starfsháttum sínum til þess að geta
fengið viðurkenninguna.
Nokkur þekkt sjúkrahús í Bandaríkjunum meö magnetviöurkenningu
Alls höfðu 67 stofnanir fengið magnetviöurkenningu í mars 2003
The University of Alabama Hospital, Birmingham, Alabama
Cedars-Sinai Medical Center, Los Angeles, Kaliforníu
University of California, Davis Medical Center, Sacramento, Kaliforníu
University of Colorado Hospital, Denver, Kóloradó
Mount Sinai Medical Center, Miami Beach, Flórída
Saint Joseph's Hospital of Atlanta, Atlanta, Georgíu
Rush-Presbytarian-St. Luke's Medical Center, Chicago, lllinois
University of Kentucky Hospital, Lexington, Kentucky
Mayo-Rochester Hospitals, Rochester, Minnesota
Hackensak University Medical Center, Hackensack, New Jersey
Robert Wood Johnson University Hospital, New Brunswick, New Jersey
North Shore University Hospital, Manhasset, New Vork
Long Island Jewish Medical Center, New Hyde Park, New York
Hospital for Special Surgery, New York, New York
Fox Chase Cancer Center, Philadelphia, Pennsylvaniu
The Methodist Hospital, Houston, Texas
St. Luke's Episcopal Hospital, Houston, Texas
The University of Texas M.D. Anderson Cancer Center, Houston, Texas
University ofWashington Medical Center, Seattle, Washington
St. Mary's Hospital Medical Center, Madison, Wisconsin
Timarit íslenskra hjúkrunarfræflinga 3. tbl. 79. árg. 2003 7