Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Page 15

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Page 15
RITRÝND GREIN Kenning um samskiptahætti og áhrif þeirra Auösæranleikinn - röddin/raddleysið og valdiö Ein af meginniðurstöðunum í samskiptarannsóknum mínum er að sjúklingar séu auðsærðir og stundum algjörlega ber- skjaldaðir fyrir niðurbrjótandi samskiptum við heilbrigðis- starfsmenn. Þessi staðreynd er ein meginstoðin í samskipta- kenningunni. Ut frá ofangreindum rannsóknum mínum virðast mér margir sjúklingar vera frekar hræddir við að vera ósammála heil- brigðisstarfsmönnum. Þeir virðast skynja ákveðna hættu á að vera hafnað eða beinlínis verða fyrir höfnun ef þeir dirfast að vera ósammála, hvað þá heldur ef þeir kvarta. Margir þeirra þegja því þegar þeir ættu að tala, eins og þessi unga kona, sem er nú dáin úr krabbameini, útskýrði: Að auki byggi ég kenninguna á eftirfarandi skilningi á mannverunni: 1. Hver mannvera er einstök og jöfn öðrum að virðingu og persónulegum réttindum. Mann- verur hafa samvisku og eiga að umgangast hver aðra af virðingu og alúð. 2. Hver mannvera er óendanlega dýrmæt en finnur ekki hversu dýrmæt hún er nema við samskipti við þá sem birta þennan sannleika. 3. Sem mannverur erum við nátengd hvert öðru. Við erum sífellt með líf hvert annars í hönd- unum. Samkvæmt kenningunni er þjónustuþeginn- /sjúklingurinn auðsærð persóna sem hefur þörf fyrir jákvæð og uppbyggileg samskipti við heil- brigðisstarfsmenn vegna stöðunnar sem sjúkl- ingurinn/þjónustuþeginn er í. Staða sjúklingsins/þjónustuþegans er með tvennum hætti: • Innri staða: mat hans á eigin þörfum, fyrri reynslu og upplifun af sjálfum sér. • Ytri staða: sjúkrahúsumhverfið/heilbrigðis- þjónustan eins og sjúklingurinn/þjónustu- þeginn sér þetta. Framsetning kenningarinnar Kenningin er sett fram í yfirlitsmynd/líkani sem sýnir fimm grundvallarsamskiptahætti þar sem áherslan er á hvernig sá einstaklingur, sem hefur valdið, beitir því og hvaða áhrif samskiptin hafa á þann sem fyrir verður og þá einkum á „rödd“ hans og varnarleysi. Frá sjónarhóli heilbrigðis- þjónustunnar eru grunneiningar kenningarinnar annars vegar hinir ýmsu samskiptahættir sem byggjast á því hvernig heilbrigðisstarfsmenn nota vald sitt (eða misnota það) og hins vegar áhrif þeirra á auðsæranleika sjúklinga og á „rödd“ eða raddleysi þeirra. Við framsetningu kenningarinnar fjalla ég fyrst um varnarleysið, röddina/raddleysið og valdið og vitna í fyrrverandi sjúklinga um þessa þætti. Þá mun ég kynna líkanið af grundvallarsam- skiptaháttum þar sem ég geri ítarlega grein fyrir hverjum samskiptahætti fyrir sig. Ég hef upplifað að það hefur verið talað niður til mín. Og oft ertu svo auðsæranleg innan sjúkrahússins að þú lætur þetta draga þig verulega niður, en eftir á verðurðu alltaf mjög reið og þú sérð eftir því að þú sagðir ekkert, því að auðvitað ætti engum að leyfast að koma svona fram við aðra manneskju. Ég meina ég fæ gæsahúð þegar ég fer í gegnum bygginguna. I hvert skipti sem ég þarf að fara þangað inn þá þorna ég öll upp í hálsinum og verður hreinlega illt... þannig líður mér. Um leið og hún var farin byrjar hugurinn að fást við þessi samskipti sem höfðu átt sér stað og þú byrjar að hugsa „af hverju gerði ég ekki þetta?“ og „af hverju sagði ég ekki þetta?" Ég kalla þetta „óuppgerð samskipti". Fyrir hana var þetta áreiðanlega ekki neitt, hún áttar sig ekki einu sinni á því hvað hún var að gera, en þú sem sjúklingur ert skilinn eftir með þessa bitru reynslu og ég fann að hugur minn var að fást við þetta, og mig langar svo að fara til þessarar manneskju og segja: „Af hverju í ósköpunum varstu svona andstyggileg við mig? Ég átti þetta ekki skilið!“ Ég glímdi við þetta í nokkur ár á eftir og ég var alltaf að fara til baka til hennar og ...ljúka mínum samskiptum við hana. Mig I sumum tilfellum safnast reiðin upp hið innra með sjúklin- gunum og þegar þeir yfirgefa sjúkrahúsið eru þeir fullir gremju í garð stofnunarinnar, eins og eftirfarandi ummæli sýna en þetta er menntakona sem orðið hafði fyrir valdníðslu á sængurkvennadeild: Sama kona fann sárt fyrir varnarleysi sínum og raddleysi og kvartaði undan því hvað sumum heilbrigðisstarfsmönnum væri eiginlegt að þagga niður f sjúklingum og útskýrði af hverju hún kvartaði aldrei undan valdníðslunni sem hún varð fyrir: Timarit íslenskra hjúkrunarfræðinga 3. tbl. 79. árg. 2003 13

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.