Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Side 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2003, Side 21
FRÆÐIGREIN Álit sjúklinga á gæðum hjúkrunar á lungnadeild Umhyggja fyrir skjólstæðingum er grundvöllur hjúkrunarfræði sem starfsmiðaðrar fræðigreinar (Watson, 1985/1988). Umhyggjusöm hjúkrun hefur mikla þýðingu fyrir ánægju sjúklinga (Dingman, Williams, Fosbinder og Warnick, 1999) og því hefur einnig verið haldið fram að umhyggja hjúkrunarfræðinga hafi áhrif á heilsu og velferð skjólstæðinga þeirra (Cronin og Harri- son, 1988). Anægja sjúklinga gefur upplýsingar um gæði heilbrigðisþjónustunnar (Bull, Hansen og Gross, 2000) en sjúklingaánægju má skil- greina sem mat sjúklinga á gæðum hjúkrunar (Larrabee og Bolden, 2001). Mælingar á sjúk- lingaánægju gefa vísbendingar um hvar úrbóta í heilbrigðisþjónustunni er þörf en gefa um leið til kynna hvaða þáttum er vel sinnt (Tishelman og Sachs, 1992). Þegar ánægja sjúklinga með veitta heilbrigðisþjónustu er metin í rannsóknum kem- ur í ljós að þáttur hjúkrunar skiptir veigamiklu máli (Carey og Siebert, 1993, sjá í Leiter, Harvie og Frizzell, 1998). í þessari rannsókn var sjónum sérstaklega beint að gæðum hjúkrunar en tilgangur hennar var að kanna álit sjúklinga á gæðum hjúkrunar á lungnadeild Landspítala-háskólasjúkra- húss á Vffilsstöðum (LSH-Víf). Ahugi fyrir rannsóknarverk- efninu vaknaði þegar fyrirséð var að lungnadeildin mundi flytja frá Vífilsstöðum í Fossvog. Ahugavert þótti að bera sam- an álit sjúklinga á gæðum hjúkrunar fyrir og eftir flutninginn en ljóst var að ýmsar breytingar myndu verða á starfseminni því samfara. Þessi grein fjallar um fyrri hluta þessarar rann- sóknar, það er álit sjúklinga á gæðum hjúkrunarinnar fyrir flutning. Gæði hjúkrunar og ánægja sjúklinga Frá tímum Florence Nightingale hefur umhyggja verið órjúf- anlegur þáttur hjúkrunarstarfsins (Forrest, 1989) enda kemur það skýrt fram í inntaki siðareglna Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga (1997) en þar segir: „Kjarni hjúkrunar er umhyggja fyrir skjólstæðingnum og virðing fyrir Iífi hans og mannhelgi." Umhyggjusöm hjúkrun hefur mikla þýðingu fyrir ánægju sjúklinga (Dingman o.fl., 1999) og því hefur verið haldið fram Timarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 79. árg. 2003

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.