Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Page 7
■0t(' <003/
RITSTJÓRASPJALL
FRAMTÍÐ TÍMARITS HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Meö þessu spjalli þakka ég fyrir
mig sem ritstjóri og býð Valgerði
velkomna aftur til starfa. Það
hefur verið heilmikil reynsla að
fá tækifæri til þess að ritstýra
tveimur tölublöðum Tímarits
hjúkrunarfræðinga. Jafnvel þó að
ég hafi talsverða reynslu af því
að skrifa skýrslur og fræðilega
texta kom það mér á óvart hversu
mikið tiltölulega einföld grein getur
Christer Magnusson breyst milli þess að höfundur skilar
henni frá sér og þar til hún er
komin úr prentsmiðju. Það er líka upplifun fyrir sig að sjá svart-
hvítt Word-skjal breytast í litskrúðuga tímaritsgrein.
Fyrir utan að hafa lært mjög mikið um útgáfu hef ég haft ástæðu
til þess að íhuga hlutverk tímaritsins. Það er ekki sjálfgefið
hvaða efni á heima í blaði eins og þessu og margar mismunandi
skoðanir eru um þetta hjá hjúkrunarfræðingum. Ég held sjálfur
að innihaldið þurfi að vera mjög fjölbreytt. Blaðið á ekki að
vera ritrýnt tímarit eingöngu en það á heldur ekki að vera
hreinræktað félagsblað. í því þurfa að vera áhugaverðar greinar
um líf og starf hjúkrunarfræðinga, stuttar fréttir um það sem er
á döfinni en líka fræðslugreinar sem fara dýpra í málefnin. Eitt
sem mér finnst hafa vantað í blaðinu eru klínískar greinar þar
sem er sagt frá mismunandi hjúkrunarmeðferð og vangaveltum
um meðferð. Það hefur reynst erfitt að finna höfunda að
slíkum greinum en þær hafa mikið lesendagildi. Ég myndi líka
vilja sjá gagnrýnar greinar um heilbrigðismál þar sem stórum
spurningum er velt upp - erum við á réttri leið, er það sjálfsagða
alltaf svo sjálfsagt? Til dæmis er nú í undirbúningi grein um
næringu sjúklinga þar sem verður skoðað hvort við fullnýtum
næringu sem meðferðarleið. Það er Ijóst að hefðbundin
læknisfræði hefur takmarkaðan áhuga á næringarfræði, en
gerum við hjúkrunarfræðingar svo miklu betur?
í vetur hafa verið umræður um uppbyggingu og framtíð
félagsins og munu þær umræður standa fram að aðalfundi í
maf. Þar hafa komið fram skoðanir og hugmyndir um innihald
og stefnu tímaritsins. Hjúkrunarfræðingar hafa nú tækifæri
til að taka þátt og móta tímaritið. Eitt mikilvægt tækifæri
er málþingið um tímaritið sem ritnefnd stendur fyrir 9. apríl
nk. En í því samhengi verður að muna að tímaritið er ekki
hluti af félagsstarfinu á sama hátt og stjórn og nefndir. Það
verður að fá að standa aðeins til hliðar. Aðalfundur og aðrar
fulltrúasamkomur geta tjáð sig um tímaritið en geta ekki tekið
ákvarðanir um útlit og innihald. Það hefur sýnt sig margsinnis
að tímarit, sem ekki hefur ritstjórnarlegt sjálfstæði, mun þorna
upp innan frá og verða dautt blað sem enginn hefur áhuga á
að lesa. Ef tímaritið verður of sjálfstætt getur það hins vegar
misst traust og stuðning hjúkrunarfræðinga. Einhvers staðar
þar á milli er að finna uppskriftina að lifandi tímariti.
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
5