Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Síða 15
Þessir góðu
BEDDAR
eru þægilegir, sterkir og
góð eign á hverju heimili.
Erfitt var aö koma húsgögnum fyrir í herbergjum hjúkrunarkvenna. Þá gat
verið gott að nota bedda eins og þá sem Haraldur Ámason kaupmaður
auglýsti í Hjúkrunarkvennablaðinu í marsmánuði 1940.
kvennabústaðir sem reistir voru á íslandi og bygging þeirra
vakti að vonum mikla eftirvæntingu meðal stéttarinnar.
Stuttu eftir að hjúkrunarkonur á Vífilsstöðum fluttu ínn í nýja
húsið kom Sigríður Eiríksdóttir formaður í heimsókn. Herbergi
hjúkrunarkvenna voru full-lítil að dómi formannsins. Skápkríli,
sem stóðu í einu horninu, rúmuðu aðeins með góðu móti
kjól, blússu, dragt og kápu eða fjögur til fimm herðatré með
fatnaði. Hjúkrunarkonur höfðu því brugðið á það ráð að flytja
með sér lausa skápa sem tóku að vonum töluvert pláss.
Handlaugar fylgdu ekki vistarverum hjúkrunarkvenna en tvær
voru í baðherbergi sem íbúarnir deildu með sér. Býtibúr með
skápum var komið fyrir á gangi hússins en þar var hins vegar
engin aðstaða til að þvo, þurrka eða strjúka flík. Hjúkrunarkonur
neyddust til að þvo í höndunum á baðherberginu eða í
vistarverum sínum. Fatnað urðu þær síðan að hengja til þerris
í baðherberginu. Yfirhjúkrunarkonan ein hafði tvö herbergi,
setustofu og lítið svefnherbergi - svo lítið að ekki var unnt
að koma fyrir rúmi, aðeins stuttum legubekk. Húsið var að
sögn Sigríðar mjög hljóðbært en þar var ekkert hljóðeinangrað
herbergi fyrir hjúkrunarkonur á næturvöktum. í þessum fyrsta
hjúkrunarkvennabústað, sem reis hérálandi, varekki sameiginleg
setustofa, ekkert útvarp, enginn sími eða geymslur. Við hönnun
hússins skorti að mati formannsins verulega á skilning „á nútíma
þörfum og þægindum" hjúkrunarkvenna. Sigríður taldi það
bera vott um vantraust á stéttinni að fulltrúa hjúkrunarkvenna
hefði ekki gefist kostur á að fylgjast með undirbúningi og
byggingu hússins frá upphafi. Formaðurinn felldi þungan dóm
yfir hjúkrunarkvennabústaðnum á Vífilsstöðum:
tel ég hann vera byggðan af svo mikilli vanþekkingu, að
undrun sætir að þarna skuli hafa verið fagmenn að verki, sem
vissulega bar skylda til þess að leita til þeirra, sem eitthvað
hugboð hafa um slíka hluti. Svo illa hefir tekist við byggingu
þessa húss, að þeir, sem til þess þekkja, telja bústaðinn
okkur til minnkunar. Við hjúkrunarkonur komum okkur saman
um það, að þegar hið myndarlega Vífilsstaðaheilsuhæli yrði
skoðað af norrænu hjúkrunarkonunum, yrðum við fyrir allan
mun að halda þeim frá hjúkrunarkvennabústaðnum, og ef svo
óheppilega vildi til, að einhver þeirra villtist þangað, mætti ekki
með nokkru móti láta þær vita, að þetta væri ný bygging, sem
upprunalega hefði verið byggð sem hjúkrunarkvennaheimili.
Okkur fannst stétt okkar hafa verið sýnd of mikil lítilsvirðing
með því að bjóða henni slíkt (Sigríður Eiríksdóttir, 1939).
Hjúkrunarkonum var misboðið. Þær höfðu lengi sætt sig við
mikil þrengsli og lítil þægindi. Þegar sérstakt hús var loks
byggt mættu þær sinnuleysi sem endurspeglaði hróplegt
vanmat á hlutverki þeirra og störfum.
Hjúkrunarkonur, sem störfuðu á sjúkrastofnunum á fyrstu
áratugum nýliðinnar aldar, höfðu takmarkaða möguleika til
að njóta einkalífs. Húsakynni þeirra voru fyrst og fremst
íburðarsnauðir og þægindalitlir svefnstaðir og þar var yfirleitt
ekki hægt að taka á móti gestum. Stjórnendur sjúkrastofnana
höfðu ekki sýnilegan metnað til að búa vel að hjúkrunarkonum
en bústaðir yfirlækna báru oft vott um lofsverðan stórhug.
Heimildir:
Félag íslenskra hjúkrunarkvenna. Skjalasafn (FÍH): B/2 2, bréfaskipti 1932-
1935, og B/3, bréfaskipti 1935-1937.
Guðrún P. Helgadóttir (1989). Helgi læknir Ingvarsson. Baráttumaður fyrir
betra lífi. Reykjavik.
Héraðsskjalasafn Skagafirðinga, Sauðárkróki (HSK): Reikningar
Sjúkrahússins á Sauðárkróki 1920-1928 og skrá yfir innanstokksmuni
Sjúkrahússins á Sauðárkróki 31. desember 1928.
Margrét Guðmundsdóttir. Handrit. Saga hjúkrunar á Islandi.
Sigríður Eiríksdóttir (1939). Hjúkrunarkvennabústaðurinn á Vífilsstöðum.
Hjúkrunarkvennablaðið, 15:3, bls. 9-12.
SvafarMagnússon
útfararþjónusta
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Hugrún Jónsdóttir Guðmundur Baldvinsson Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta útfararþjónusta ú tfararþ jónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Sfiegar ancffáí £er ac) fiöncfum
Onnumsi aíía þœiíi úifararinnar
ÚTFARARSTOFA
Vjf KIRKJ UGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. érg. 2008
13