Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Blaðsíða 18
Bára lenti þar í ýmsum uppákomum. Á
miöri flugslysaæfingunni mætti óþekktur
aðili á söfnunarsvæöi slasaðra og
heimtaði að fá að fara þar inn. Bára skildi
illa ensku hans og ætlaði að neita honum
inngöngu og brást hann þá reiður við og
var ógnandi. Hún gat þá kallað á aðstoð
og kom í Ijós að maðurinn var háttsettur
franskur herforingi frá KFOR, eftirlitssveit
frá Atlantshafsbandalaginu sem var að
fylgjast með her Kosovo-Albana. Það
voru reyndar heilbrigðisstarfsmenn frá
her Kosovo-Albana sem stóðu sig best af
öllum í þessari flugslysaæfingu.
Það var ekki alltaf auðvelt að vinna með
mönnum frá Kosovo, flestir múslimar og
mikið karlasamfélag. í seinna skiptið var
hún hins vegar orðin þekkt og fólk tók
meira mark á henni.
Eftir heimkomuna hefur Bára haldið
tengslum við starfsmenn á flugvellinum
í Pristina og meðal annars var útrunnum
búnaði hér heima safnað saman og hann
sendur út svo hægt væri að nota hann
við æfingar.
Friðargæsla í Bosníu og flóð í Asíu
Áður en Bára fór til Kosovo hafði hún
þegar aflað sér reynslu erlendis. Árið
1999 starfaði hún á vegum íslensku
í flugi yfir Bosníu með þyrlu frá SFOR 1999
friðargæslunnar með breska hernum í
Bosníu. Bára hafði ekki hátt um það að
hún hefði sótt um og reiknaði ekki með
að komast með. Þetta fór allt svo leynt
að þegar hún fór til Pálínu Ásgeirsdóttur
deildarstjóra til að láta vita að hún hafði
orðið fyrir valinu kom í Ijós að Pálína
hafði líka sótt um og komist með! Tveir
hjúkrunarfræðingar og einn læknir fóru í
þetta verkefni frá íslandi. Fyrst var farið
í einn mánuð í þjálfun í Bretlandi og svo
í sex mánuði í Bosníu. Herdeildin rak
hersjúkrahús í smábæ sem heitir Sipovo
í serbneska hluta Bosníu. Á þessum
tíma réðst Atlantshafsbandalagið inn í
Kosovo. Bára og félagar hennar voru þá
InPro og MEDICA verða
Heilsuverndarstöðin ehf.
Fyrirtækin InPro ehf. og MEDICA ehf., sem starfað
hafa á sviðum heilbrigðisþjónustu, heilsuverndar
og vinnuverndar, hafa sameinast undir nafninu
Heilsuverndarstöðin ehf. Félögin sameinuðust í
ágúst 2007 og er nafnabreytingin síðasta þrepið
í samrunaáætlun fyrirtækjanna og skapast þannig
fleiri tækifæri til þess að takast á við ný verkefni.
16
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 1. tbl. 84. árg. 2008