Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Blaðsíða 19
flutt til borgarinnar Banja Luka sem er
höfuðborg serbneska hlutans. Þar sem
búist var við töluverðum óróa á svæðinu
vildu yfirmenn hersins hafa íslenska
bráðateymið nálægt ef illa færi. Miklar
öryggisráðstafanir voru viðhafðar og varð
Bára að ganga með hjálm og í skotheldu
vesti hvert sem farið var.
Við hjúkrun á herspítala í Bosníu
Meginstarf Báru var að vera hjúkrunar-
fræðingur á herspítalanum í Sipovo
sem var aðallega fyrir breska her-
menn. Spítalanum var síðan breytt í
alþjóðlegan spítala sem tók fyrst og
fremst á móti hermönnum SFOR,
friðargæsluliði Atlantshafsbandalagsins.
Óhjákvæmilegt var að taka á móti
óbreyttum borgurum þegar líf lá við,
til dæmis úr umferðarslysum, þar sem
enginn borgaralegur spítali var í bænum.
Þessir sjúklingar voru fluttir eins fljótt og
hægt var á spítala í Banja Luka. Oft voru
aðstæður til sjúkraflutninga mjög bágar,
nánast enginn aðbúnaður í bílunum
sem voru í raun óbreytt „rúgbrauð" og
sjúkraflutningsmenn ómenntaðir og með
lítinn áhuga á sjúklingunum.
Annan í jólum 2004 varð jarðskjálfti með
flóðbylgju í Suður-Asíu þar sem margir
létust og slösuðust. í samráði við sænsk
stjórnvöld fór snemma eftir áramót flugvél
á vegum íslenska utanríkisráðuneytisins
til Tælands að sækja slasaða Svía. Þetta
var mjög erfið reynsla. í Bangkok voru
38 sjúklingar fluttir um borð og haldið
til Svfðjóðar með millilendingu í Dubai.
Flestir voru slasaðir, sumir alvarlega,
og allir höfðu misst aðstandendur og
voru sorgmæddir og í losti. „Þegar við
tókum við fólkinu var það búið að liggja á
spítala í framandi landi, hafði misst börn,
maka eða aðra aðstandendur og var svo
aftur að hitta útlendinga. Það fór ekki
að treysta á okkur fyrr en á leið,“ segir
Bára. Á Arlandaflugvelli í Stokkhólmi var
vélinni ekið beint í flugskýli til að forðast
blaðamenn.
Aðstæður til sjúkraflutninga voru mjög
góðar í flugvélinni. Hólf og gólf voru
vel skipulögð og nýtt fyrir búnað og
hjúkrunarvörur. Þessari Boeing 757 var í
raun breytt í fljúgandi sjúkrahús þar sem
f 8 sjúklingar voru á börum og hinir í sæti
og heilbrigðisstarfsfólkið dreift um vélina.
Reynt var að láta fjölskyldur vera saman. I
íslenska hópnum voru hjúkrunarfræðingar,
læknar og bráðatæknar ásamt starfsfólki
frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra,
Rauða kross íslands og blaðafulltrúa
Flugleiða, samtals 24 manns.
Jafnvel þó að Bára sé nú að fara í ný
verkefni er hjúkrun á slysavettvangi og
sjúkraflutningar stórt áhugamál. Henni
finnst hún nú vera farin að sjá árangur
af starfi sínu að flugslysamálum. Ferðir
hennar um landið hafa gert það að
verkum að hún þekkir vel ísland og
aðstæður úti á landi sem mun áfram
gagnast henni vel í starfinu á slysa- og
bráðadeild.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í húsnæði Heilsuverndar-
stöðvarinnar við Barónsstíg sem í rúm 50 ár hefur verið
einn af hornsteinum íslenskrar heilbrigðisþjónustu.
Stefna fyrirtækisins er að endurreisa og glæða þetta
táknræna hús í miðborginni lífi. Er það í samræmi við
upphaflegt ætlunarverk sem lýtur að því að efla andlega,
líkamlega og félagslega heilsu landsmanna. Á þann hátt
verður tryggt að húsið haldi áfram að gegna veigamiklu
hlutverki í heilsuvernd, heilsueflingu, vinnuvernd og
heilbrigðisþjónustu landsmanna um ókomin ár.
FRETTAPUNKTUR
Heilsuverndarstöðin er eftir sem áður fyrirtæki á sviði
heilbrigðisþjónustu, heilsuverndar og vinnuverndar og
stefna þess er að veita faglega þjónustu, lagaða að
þörfum viðskiptavinarins með það að markmiði að auka
lífsgæði fólks.
Upplýsingar um starfsemi Heilsuverndarstöðvarinnar má finna
á nýrri heimasíðu fyrirtækisins, www.heilsuverndarstodin.is.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
17