Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Blaðsíða 23
• starfsfólkið er betur upplagt á næturnar
• það sefur betur þegar heim er komið
• því finnst það betur úthvílt þegar það fer á fætur
• það er öruggara fyrir umferðina og í henni þegar ekið er
heim eftir næturvakt
• hvíldarhlé gefur betra líf utan vinnutíma.
í Bandaríkjunum, Kanada og Japan er orkublundur útbreidd-
ur í vinnutímanum. í Danmörku gefa vinnutímaákvæði
hjúkrunarfræðinga heimild til að hjúkrunarfæðingar geti
gert hlé þegar vinnutíminn er lengri en sex tímar. Á íslandi
er einnig gert ráð fyrir hléum á næturvaktinni þó veruleg
skerðing hafi orðið á þeim rétti með svokallaðri sölu
á matar- og kaffitímum. Vel má þó koma því við með
samkomulagi starfsmanna við deildarstjóra að gefin sé
heimild til orkublunds á næturvaktinni. í Ijósi þeirra áhrifa,
sem orkublundur hefur á vinnuframlag og vökuástand,
ættu stjórnendur að taka tillögu starfsmanna um slíkan
blund fegins hendi og stuðla að því að aðstaða til hans
verði sem best.
Margar kannanir sýna að orkublundur á næturvaktinni á
þátt í að bæta frammistöðu og auka árvekni í vinnu. Það
getur nýst sem rök fyrir því að auk matarhlés skuli vera
svefnhlé þar sem það eykur vinnugæðin.
í riti DSR um orkublund er greint frá því hvað koma ætti
fram í samkomulagi deilda um orkublund:
Hvenær og hversu lengi? Hvíldarhlé í 29 mínútur milli
klukkan 3 og 6.
Undantekning! Einungis á að reikna með hvíldarhléum á
rólegum vöktum og ef vinnan leyfir það.
Hvar? Á skrifstofu deildarstjóra á dýnu á gólfinu, bak við
lokaðar dyr. í starfsmannaherbergi á svefnsófa. í sérstökum
hvíldar- eða nuddstól.
Hver og hvenær? Starfsfólk kemur sér saman um þetta
sín á milli í byrjun vaktar. Starfsfólk skrifar sig á svefnlista.
Ræs! Notuð er vekjaraklukku til að vekja.
Áður en vinna hefst að nýju. Hvíldarhléinu á að Ijúka með
smá-leikfimi (5 mín.) til að koma vöðvum og blóðrás í gang og
til að koma í veg fyrir vökutregðu (doða eða mók eftir svefn).
Undirritun samkomulags. Deildar- eða sviðsstjóri ásamt
trúnaðarmanni.
Ég hef hér farið lauslega yfir forsendur þess að skynsamlegt sé
að gera samninga um orkublund þar sem hjúkrunarfræðingar
vinna á næturvöktum. Ég hvet hjúkrunarfræðinga alla til að
taka höndum saman um að koma á slíku fyrirkomulagi á
sínum vinnustað. Þegar mest á reynir er nauðsynlegt að líta
til þeirra þátta sem geta gert vinnustaði okkar tryggari fyrir
okkur og skjólstæðinga okkar.
Frekari upplýsingaleit: Power-nap, night shift and sleep
deprivation, dognrytme, circadian disruption, circadian
rythm.
Þær sætta sig ekki við:
• Kláða og þurrk
• Óþægindi við samfarir
• Þvagfærasýkingar
• Þvagleka
Staðbundin estrógenmeðferð,
sem virkar....
organon> www.breytingaskeid.is
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
21