Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2008, Síða 37
Elsa B. Friðfinnsdóttir, elsa@hjukrun.is
BREYTINGAR Á STARFSEMI OG SKIPULAGI BHM
Síðastliðið ár hefur stefnumótunarnefnd starfað innan
Bandalags háskólamanna (BHM) en nefndinni er ætlað að
leggja fram tillögur til breytinga á skipulagi og starfsemi
bandalagsins. Fríða Björg Leifsdóttir er fulltrúi Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) í nefndinni.
Eins og margsinnis hefur komið fram
í ræðu og riti hjá FÍH hafa verið uppi
spurningar um ávinning hjúkrunarfræðinga
af samstarfinu innan BHM. í BHM eru
félög sem eru afar ólík að stærð og starfa
á ólíkum vettvangi. Sem dæmi má nefna
að fjöldi félagsmanna í stéttarfélagshluta
FÍH er 2.562 en í fámennasta
félaginu, Leikarafélagi íslands, eru 35
félagsmenn. Félagar í FÍH vinna auk
þess á ólíkum stofnunum úti um allt
land, með fjölbreytilegan vinnutíma,
en félagsmenn í Leikarafélagi íslands
vinna allir við Þjóðleikhúsið. Eðlilega hafa
hjúkrunarfræðingar spurt sig og forystu
félagsins að því hvað þessir hópar eigi
þá sameiginlegt. Eins og flestum ætti að
vera kunnugt var tillaga um úrsögn FÍH úr
BHM lögð fram á fulltrúaþingi félagsins í
maí 2007. Þar var eftirfarandi samþykkt:
Fulltrúaþing felur stjórn Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga að beita sér fyrir
boðun aukaaðalfundar Bandalags
háskólamanna sem haldinn verði
eigi síðar en 7. september 2007. Þar
verði teknar til umræðu og afgreiðslu
tillögur um breytingar á eðli og starf-
semi Bandalags háskólamanna.
Jafnframt felur fulltrúaþing stjórn Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga að boða
til aukafulltrúaþings Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga í síðustu viku
septembermánaðar 2007. Þar verði, í
Ijósi niðurstöðu aukaaðalfundar BHM,
teknar til umræðu og afgreiðslu tillögur
um áframhaldandi aðild Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga að Bandalagi háskóla-
manna eða úrsögn FÍH úr bandalaginu.
Eftir ýtarlega kynningu og umræður á
aukaaðalfundi FÍH, sem haldinn var 27.
september 2007, var samþykkt að Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga yrði aðili að
Elsa B. Friðfinnsdóttir
Bandalagi háskólamanna enn um sinn.
Tvennt kom þar helst til, annars vegar
yfirstandandi stefnumótunarvinna innan
BHM og hins vegar sú staðreynd að aðild
að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins er
bandalagabundin skv. núgildandi lögum.
Jafnframt var samþykkt að FÍH tæki
virkan þátt í og beitti sér fyrir þeim
breytingum á BHM sem æskilegar eru
taldar, t.d. hvað varðar uppbyggingu
þess, markmið og áherslur, þjónustu við
aðildarfélögin, starfsemi og mannafla á
skrifstofu bandalagsins, og annað það
sem eflt getur BHM.
Á aukaaðalfundi BHM, sem haldinn
var 12. október sl., var kynnt sú vinna
við stefnumótunina sem þá hafði farið
fram. Þar voru sett fram eftirfarandi
meginmarkmið:
• BHM er fyrsta val háskólamanna
hvort sem er hjá hinu opinbera eða á
einkamarkaði og sinnir hagsmunagæslu
fyrir alla háskólamenn á íslandi.
BHM gegnir þannig lykilhlutverki í að
viðhalda og skapa háskólamönnum á
íslandi kjör og aðrar aðstæður sem eru
með því besta sem þekkist.
• BHM hefur skýra mynd og sterka
rödd í samfélaginu sem áhrifamikill
aðili við mótun og framkvæmd þeirra
áherslna sem forysta bandalagsins
vinnur í umboði aðildarfélaganna.
• BHM er framsækið, nútímalegt og
vel rekið bandalag sem nýtir fjöl-
þætta þekkingu og reynslu félags-
manna aðildarfélaganna í þágu þeirra
hagsmunamála sem bandalagið vinnur
að á hverjum tíma. BHM er þannig í
fremstu röð íslenskra bandalaga um
nýjungar og þróun starfseminnar og
skapar aðildarfélögunum aðstæður
til að veita félagsmönnum viðeigandi
þjónustu.
Til að ná þessum markmiðum er lagt til
að skipulag BHM verði skv. svokölluðu
fléttuskipulagi og að skilgreindar verði
fjórar stoðdeildir sem vinni þvert á
aðildarfélögin. Þessar stoðdeildir eru:
þróun og nýsköpun, rekstur eigna og
sjóða, hagfræði og kjararannsóknir, og
lögfræði. Enn er sem sagt gert ráð
fyrir að öll aðildarfélög BHM séu þar á
sömu forsendum, greiði sama gjald til
bandalagsins óháð því hvaða þjónustu
þau nýta sér hjá BHM, að aðgöngumiðinn
að bandalaginu sé aðeins einn - allt eða
ekkert.
Nú hefur sérstök laganefnd kynnt á
miðstjórnarfundi BHM tillögurtil breytinga
á lögum bandalagsins sem lagðar verða
fram á aðalfundi BHM 3. og 4. apríl
næstkomandi. Aðeins eru lagðar til
lágmarksbreytingar á lögunum að sinni,
þó þannig að breytingar á skipulagi
og stjórnun bandalagsins geti átt sér
stað innan ekki of langs tíma. Helstu
breytingar, sem lagðar eru til, eru að
árlegir aðalfundir verði teknir upp, að ef
boðað er til aukaaðalfunda hafi þeir fundir
sama vægi og aðalfundir, og að kosið
verði í fastanefndir BHM á aðalfundi.
Rétt er að ítreka að stefnumótunarnefnd
BHM vinnur áfram að tillögugerð sinni fram
að aðalfundi. Sérstök áhersla í störfum
nefndarinnar er á tímasetta framkvæmda-
áætlun. Skipaður hefur verið svokallaður
innleiðingarhópur sem mun síðan fylgja
væntanlegum breytingum eftir.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 84. árg. 2008
35